Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Blaðsíða 28
28 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2007
555 0888
20% afsláttur
gegn framvísun þessa miða á
virkum dögum til 1. des. 2007.
Taka skal afslátt fram við pöntun
Eftir nokkuð snarpar umræður
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar á
þriðjudaginn var samþykkt að
nýta ákvæði í viljayfirlýsingu
milli Hafnarfjarðarbæjar og
Orku veitu Reykjavíkur frá 2. júlí
2007 um sölu á eignarhlut bæjar -
félagsins í Hitaveitu Suðurnesja
hf. Eignarhlutur Hafnarfjarðar -
bæjar í Hitaveitu Suðurnesja er
15,4178%. Bæjarstjórn sam -
þykkti að selja til Orkuveitu
Reykja víkur allt að 95% hluta -
fjár Hafnarfjardarbæjar i HS hf.
á sölugenginu 7.0. Þá samþykkti
bæjarstjórn Hafn ar fjarðar jafn -
framt að teknar verði upp form -
legar viðræður við Orkuveitu
Reykjavíkur um möguleg kaup
bæjarfélagsins á hlut í OR.
Tillagan var samþykkt með at -
kvæð um Samfylkingar og VG
gegn atkvæðum Sjálfstæðis -
flokks sem vildi selja allan hlut
bæjarins og nota hann til að
greiða niður skuldir.
Óvíst um kaup í OR
Ekki kemur fram í samþykkt -
inni hversu stór hlutur verður
seldur en viðmælendur Fjarðar -
póstsins telja að það verði 95%.
Hins vegar er óljóst hversu
stóran hlut Hafnarfjarðarbær
eignast í Orkuveitu Reykjavíkur
en það ræðst m.a. af kaupgengi á
bréfum OR en bæjarráði var
falið að ganga frá tillögum um
ráðstöfun söluandvirðisins þegar
þau kaup verða ljós.
Þá samþykkti bæjarstjórn að
fela starfshópi sem skipaður er
odd vitum þeirra stjórnmála -
flokka sem sæti eiga i bæjar -
stjórn að leita eftir samkomulagi
vid Orku veitu Reykja víkur um
hugs an leg hluta fjárskipti. Slíkt
sam komu lag verði i síðasta lagi
gert fyrir lok febrúar 2008. For -
sendur þeirra kaupa ráðist af því
verð mati sem liggi fyrir á Orku -
veit unni og sameiginlegri af -
stöðu varðandi framtíðarskipan
dreifi kerfis rafmagns innan lög -
sögu Hafnarfjarðar.
Suðurlindir eiga að tryggja
hagsmuni sveitarfélaganna
Fyrir liggur að Hafnar fjarðar -
bær verður þriðjungshluthafi í
Suðurlindum ohf. ásamt Grinda -
vík og Sveitarfélaginu Vogum,
en formlegur stofnfundur félags -
ins verður haldinn nk. fimmtu -
dag. Meginverkefni þessa nýja
félags er að standa vörð um sam -
eigin lega hagsmuni sveitarfélag -
anna og íbúa þeirra varðandi
náttúru auðlindir og mögulega
nýt ingu orkuauðlinda innan lög -
sagn ar umdæma sveitar félag -
anna.
Engin breyting á vatnsveitu og
fráveitu
Bæjarstjórn ítrekaði að Hafn -
ar fjarðarbær á og rekur bæði
Vatns veitu Hafnarfjarðar og Frá -
veitu Hafnarfjarðar og muni
halda því eignarhaldi og þeim
rekstri áfram með óbreyttu sniði.
Samþykkt að selja allt að 95% hlut í HS
Leitað verður samninga við OR um kaup á hlut í félaginu
Frá tilraunaborunum við Trölladyngju. Keilir í bakgrunni.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
01
67
1
1/
07
or.isTakið þátt í jólaleik Orkuveitunnar á www.or.is
Hlýjar og bjartar hátíðarkveðjur
Gleðileg jól!
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Krakkarnir kunnu vel að meta
jólasveinana sem komu á
jólagleði St. Georgsskáta við
Hvaleyrarvatn fyrir skömmu.
Að sjálfsögðu komu þeir með
góðgæti enda góðir sveinar.