Fjarðarpósturinn - 17.01.2008, Side 2
Bíbí á fræðslufundi í kvöld
Fræðslufundur verður haldinn hjá
Sálarrannsóknarfélaginu í Hafnarfirði í
Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu í
kvöld, fimmtudag kl. 20.30. Gestur
fundarins verður Bíbí Ólafsdóttir miðill
og mun hún segja frá sjálfri sér og ef
til vill eitthvað fleira. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir. Kaffir á
boðstólum.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands myndina „À bout
de souffle“, lykilmynd í sögu frönsku
nýbylgjunnar frá árinu 1960 eftir Jean-
Luc Godard.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands myndina Apoca -
lypse Now eftir Francis Ford Coppola.
Myndin gerist í Vietnam stríðinu og
segir sögu Benjamin L. Willard
höfuðsmanns, sem sendur er inn í
frumskóginn til að ráða af dögum
ofursta í sérsveit bandaríska hersins,
Walter E. Kurtz, sem álitið er að
genginn sé af vitinu. Myndin lýsir
ferðalagi inn í ystu myrkur manns -
sálarinnar. Myndin varð fræg af
endem um vegna langvinns fram -
leiðslu tíma. Um síðustu aldmót
endurklippti Coppola myndina sem
lengdist við það um 49 mínútur.
Storaro, kvikmyndatökumaður mynd -
ar innar, fékk því til leiðar komið að því
besta varð náð út úr myndefninu.
Hljóðið var tekið til meðferðar, þar með
talin tónlistin, sem auka þurfti við.
Félagsmálaráðherra á fundi
Almennur fundur á vegum 60+
Hafnarfirði verður haldinn á laugar -
daginn kl. 11 að Strandgötu 43.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála -
ráð herra flytur ræðu; Nýir tímar í
félags málum á Íslandi, staða eftir -
launa fólks á Íslandi. Guðmundur
Rúnar Árnason bæjarfulltrúi og for -
maður fjölskyldu ráðs flytur ræðu;
Staða og framtíðarsýn öldrunarmála í
Hafnarfirði. Gunnar Svavarsson al -
þing is maður og formaður fjár laga -
nefndar Alþingis; Hvað segja fjár lög
2008 um fjármagn til eftirlauna þega?
Pall borð: Jóhanna, Guðmundur Rúnar
og Gunnar. Lúðvík Geirsson stjórnar
pallborði. Súpa og brauð í hádeginu.
Aukatónleikar með Tríói
Reykjavíkur í Hafnarborg
Aukatónleikar verða með Tríói Reykja -
víkur í Hafnarborg á mánu daginn kl.
20. Eftir þriggja ára hlé eru söngv -
ararnir ástsælu, Sigrún Hjálmtýsdóttir
og Bergþór Pálsson mættir aftur til
leiks með tríóinu. Fimmmeykið mun
fara með tónleikagesti víða um Evrópu
og einnig vestur um haf til Banda -
ríkjanna. Umfram allt eru þetta
tónleikar til þess að koma öllum í létt
og gott skap í upphafi nýs árs. Meðal
viðkomustaða verða Ítalía, Írland og
Ungverjaland. Vínartónlistin verður á
sínum stað, að sjálfu höfuðtónskáldi
borgarinnar ógleymdu, Wolfgang
Ama deus Mozart. Lehár, Strauss, Kál -
mán og Kreisler koma líka við sögu.
2. Suðurgata 18, deiliskipulag
Skipulags- og byggingaráð
vísar á fundi sínum 10. janúar sl.
breytingu á deiliskipulagi lóðar -
innar Suðurgötu 18 til umsagnar
hjá miðbæjarnefnd.
Miðbæjarnefnd tekur jákvætt í
byggingu hótels í miðbæ Hafnar -
fjarðar og telur að slík starfsemi
styrki miðbæinn. Tryggja þarf að -
komu Suðurgötu 24 og 28 en telur
nefndin útlit hótelsins Suður götu -
megin samræmast vel götu mynd -
inni. Unnið er að úttekt á umferða -
málum og skuggavarpi og óskar
nefndin eftir því að fylgjast með
niðurstöðum þeirrar úttektar.
18. Reykjanesbraut í
Hafnarfirði tvöföldun
Gísli Ó. Valdimarsson tók til
máls. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti samhljóða með 11 atkv.
að tillaga að deiliskipulagi Reykja -
nesbrautar frá Strandgötu að
Krísuvíkurvegi dags. 18.12.07
verði auglýst samkvæmt 25. grein
skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997. Jafnframt verði auglýstar
breytingar á mörkum eftirtalinna
deiliskipulaga: Hvaleyrarholt suð-
austur, Hafnarfjörður Hvammar,
Ásland 1. áfangi, Selhraun norður,
Hellnahraun 1. áfangi og Vellir
mið svæði.
3. Álagning sveitarsjóðsgjalda
2008
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam -
þykkti samhljóða með 11 atkv.
svohljóðandi tillögu:
„Álagningarstofnar fyrir íbúða -
húsnæði lækki með eftirfarandi
hætti:
Fasteigna skattur: Lækki úr
0,27% í 0,24%
Lóðarleiga: Lækki úr 0,295% í
0,27%
Vatnsgjald: Lækki úr 0,119% í
0,115%
Álagningarstofnar fyrir atvinnu -
húsnæði lækki með eftirfarandi
hætti:
Fasteignaskattur: Lækki úr
1,1628% í 1,160%
Vatnsgjald: Lækki úr 0,119% í
0,115%.“
Lagðar voru fram bókanir sem
sjá má í fundargerð bæjarstjórnar
á www.hafnarfjordur.is
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. janúar 2008
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Mikið er gott að vera ráðherra og þurfa ekki
einusinni að koma með gáfulegar skýringar á
aðgerðum sínum. Þykkvabæjarráðherrann sagði
ekki skipta máli hvort hann viki lítið eða mikið frá
áliti matsnefndarinn um hæfi umsækjenda um
dómaraembætti ef hann yfir höfuð viki frá áliti
þeirra. Ég held að þessi ummæli slái öll met.
Hafði hann áður borið ráðgjöf fiskifræðinga við
ákvörðun sjávarútvegsráðherra um leyfilegan
afla. Nei, það voru bara atkvæði sem færðu
dýralækninn í ráðherrastól. Enginn þurfti að meta hæfi hans.
Hafnarfjarðarbær hefur nýverið skipað deildarstjóra æskulýðsmála
og annan deildarstjóra forvarnarmála. Ekki voru þau embætti aug -
lýst. Þar á bæ eru menn fluttir til og ekki man ég til þess að staða
sviðsstjóra fjölskyldumála, yfirmanns deildarstjóranna, hafi nokkurn
tíma verið auglýst. Reyndar eru embættismál íþrótta- og
æskulýðsmál kapítuli út af fyrir sig, æskulýðsnefnd og íþróttanefnd
voru sameinaðar í íþrótta- og æskulýðsnefnd sem síðar var breytt í
íþrótta- og tómstundanefnd en enginn hefur verið tómstunda -
fulltrúinn. Í upphafi var stefnt að sameiningu embættis íþróttafulltrúa
og æskulýðsfulltrúa í eitt embætti en sögur segja að kjark hafi skort
til. Æskulýðsfulltrúinn sagði upp þegar núverandi formaður íþrótta-
og tómstundamála tók við því embætti í upphafi kjörtímabilsins en
nú fyrst er verið að festa í sessi arftaka hans nema þetta sé enn ein
bráðabirgðaaðgerðin.
Ekki veitir af styrkri stjórn á íþrótta- og æskulýðsmálum, í þann
málaflokk fara háar fjárhæðir og aðhald nauðsynlegt ekki síst þegar
styrkjakerfið er eins og það er og erfitt að fá upplýsingar um það frá
yfirvöldum. Sem dæmi auglýsir eitt íþróttafélagið þrjár mismunandi
niðurgreiðslur frá Hafnarfjarðarbæ eftir aldri þó hvergi sé hægt að
finna neinar samþykktir um slíkt.
Guðni Gíslason
Ástjarnarkirkja
Sunnudagurinn 20. janúar
Messa kl. 11
í Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1
Sunnudagskóli
á sama tíma
Prestur: Bára Friðriksdóttir,
Tónlistarstjóri: Helga Þórdís Guðmundsdóttir.
Kaffisopi á eftir og ávextir fyrir börnin.
Allir hjartanlega velkomnir
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 20. janúar
Sunnudagaskóli kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri.
Guðsþjónusta kl. 13.00
Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin!
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Pilturinn
kominn fram
17 ára pilturinn sem lögreglan
lýsti eftir í síðustu viku er
kominn fram heill á húfi.
www.fjardarposturinn.is
Hanskaskinn
óskast
Konur í handavinnuhópi á
Hrafnistu sem eru að sauma
þjóð búningadúkkur leita eftir
skinni til nota við skógerðina.
Væri vel þegið ef einhver, sem
á gamla hanska eða annað þunnt
skinn og má missa, gæti ljáð
hópnum slíkt. Hafa má samband
við Jóhönnu eða Dagbjörtu í
s. 585 3175 eða 6839525.