Fjarðarpósturinn - 05.06.2008, Side 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 5. júní 2008
www.flensborg. is
Innritun fyrir haustönn 2008 stendur nú yfir.
Umsóknarfrestur er til 11. júní.
Öll innritun er rafræn og fer í gegnum
www.menntagatt.is.
Innritun í
Flensborgarskólann
fyrir haustönn 2008
Eftirtaldar námbrautir eru í boði:
Stúdentsbrautir
Félagsfræðabraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Viðskipta- og hagfræðibraut
Íþróttasvið af öllum stúdentsbrautum
Íþróttaafrekssvið af öllum stúdentsbrautum
Hraðbraut í gegnum allar stúdentsbrautir
Upplýsinga- og fjölmiðlabraut
Almenn námsbraut (AN2)
Starfsbraut
Unnt að fá aðstoð við innritun í skólanum
alla virka daga kl. 9:00 – 14:30.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef skólans
www.flensborg.is. Sérstaklega er bent á
Skólanámskrá skólans og Námsvísi úr skólanámskrá.
Upplýsingar eru einnig veittar í netfanginu
flensborg@flensborg.is, síma 550 400
eða á skrifstofu skólans.
Skólameistari
Vinkonurnar Ásthildur Andrea
Ásmundsdóttir og Andrea
Smára dóttir sem báðar eru 8 ára
færðu Rauða krossinum afrakst -
ur tombólu, alls 2.615 kr. „Við
vorum fyrir utan Fjörð og fólk
var mjög duglegt að kaupa miða.
Allt var með númerum og svo
mátti draga um vinning,“ sagði
Ásthildur Andrea aðspurð um
hvernig tombólan hefði gengið.
Allur peningurinn rennur í sjóð
þar sem börn hjálpa börn um.
Styrktu Rauða krossinn
Andrea Smáradóttir og Ásthildur Andrea Ásmundsdóttir.
Sigurður Sigurjónsson, leikari
var útnefndur bæjarlistamaður
2008 á hátíðarsamkomu í Hafn -
ar borg á sunnu daginn, á 100 ára
af mælis degi Hafnar fjarðar kaup -
staðar.
Eiríkur Smith, myndlista mað -
ur var við þetta tækifæri út nefnd -
ur heiðurs lista maður Hafnar -
fjarðar og mun það vera í fyrsta
sinn sem það er gert hér í bæ.
Sigurður Sigurjónsson er bor -
inn og barnfæddur Hafn firð -
ingur, fæddur 6. júlí 1955.
Hann kynntist leiklistargyðjunni
í skáta starfi með Hraunbúum og
í Flensborg og var síðan í fjögur
ár í Leiklistarskóla Íslands og
útskrifaðist þaðan 1976.
Eftir leiklistarnám réðst Sig -
urður strax til starfa hjá Þjóð leik -
húinu og var þar fastráðinn í hart
nær 30 ár og lék þar í á annað
hundrað leiksýningum. Hann
hefur leikið í fjölmörgum kvik -
myndum og sjón varps þátt um.
Hann hefur síðustu árin snú ið sér
í auknum mæli að leik stjórn.
Eiríkur Smith fæddist í Hafn -
arfirði 9. ágúst 1925 og stundaði
nám við Handíða skólann og í
einkaskóla Rostrup Böye sens í
Kaupmannahöfn. Eiríkur hélt
sína fyrstu mál verkasýningu í
Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði
1948 og hélt stóra sýningu í
Listamannaskálanum eftir að
hann kom frá námi 1952. Eiríkur
er farsæll málari, löngu
landsþekktur og Hafnfirðingar
geta notið verka hans um
ókomna tíð en hann gaf Hafnar -
borg veglega málverkagjöf fyrir
allmörgum árum.
Hvatningarstyrkir
Þá voru veittir tveir hvatn -
ingar styrkir til ungra listamanna
og þá hlutu Ástríður Alda Sig -
urðardóttir, píanóleikari og
Andrés Þór Gunnlaugsson, tón -
listarmaður.
Eiríkur Smith og Sigurður
Sigurjónsson heiðraðir
Eiríkur heiðurslistamaður Hafnarfjarðar og Sigurður
bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2008
Bryndís Sigurðardóttir, Eiríkur Smith, Sigurður Sigurjónsson og Lísa Charlotte Harðardóttir ásamt
móður Sigurðar, Kristbjörgu Guðmundsdóttur við afhendingu verðlaunanna
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Á 80 ára afmæli Iðnskólans í
Hafnarfirði luku 103 nemendur
prófi, 61 í löggiltum iðngreinum
og 42 nemendur í tækniteiknun,
listnámi og af útstillingabraut. 26
nemendur í húsasmíði og
pípulögnum sem jafnframt hafa
lokið sveinsprófi útskrifuðust
með full sveinsréttindi.
Þetta er langstærsti hópurinn
sem hefur brautskráðst í einu frá
upphafi í skólanum og til
viðbótar voru 56 brautskráðir í
lok haustannar s.l eða samtals
159 nemendur á þessu námsári.
Hæstu einkunn á burtfararprófi
hlaut Sveinn Haukur Albertsson,
nemendi af vélsmíðabraut sem
útskrifast með ágætiseinkunn
9,20 og var hann verðlaunaður af
Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar og
Samtökum iðnaðarins sem
einnig verðlaunaði Guðrúnu
Baldursdóttur af tækniteiknara -
braut en hún hlaut einnig ágætis -
einkunn 9,15. Þriðji nemandinn
sem útskrifast með ágætis eink -
unn eða 9,17 var Dröfn Sæ -
munds dóttir og hún fékk viður -
kenningu frá Gáma þjónustunni
en hún hlaut bestan árangur af
listnámsbraut.
Arna Eyjólfsdóttir fékk verð -
laun fyrir hæstan árangur á burt -
fararprófi af hársnyrtibraut.
Inga Ragna Ingjaldsdóttir fékk
verðlaun fyrir hæstan árangur á
lokaprófi af útstillingabraut.
103 útskrifuðust frá Iðnskólanum
Útskriftarnemendur Iðnskólans í Hafnarfirði við skólaslit í Víðistaðakirkju.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig! Auglýsingasíminn er 565 3066