Fjarðarpósturinn - 29.01.2009, Qupperneq 2
Af hverju er til meirihluti og minnihluti í
bæjarstjórn? Var boðið upp á að kjósa meiri-
eða minnihluta? Ekki á mínum kjörseðli. Sama
má segja um Alþingi. Er það eitthvað innbyggt
í stjórnmálamenn að raða sér í fylkingar eftir
félögum en ekki málefnum? Af hverju eru
haldnir sérstakir „meirihlutafundir“ á undan
ráðsfundum? Nú eru undur og stórmerki að
gerast í íslenskum stjórnmálum. Ráðherra segir
af sér, fær ekki að hætta, minnihlutastjórn í burðarliðunum og
forsætisráðherraefnið er ráðherra sem tapaði formannsslag í sínum
flokki fyrir löngu en sagði þá „Minn tími mun koma!“ Sumir segja
að hennar tími sé kominn núna. Verði hún forsætisráðherra verður
það ekkert hennar tími - nú er tími allra til verka. Samt ætla menn
sér að kjósa bráðlega og flestir hallast á að Samfylking og VG fái
hreinan meirihluta, hafi þeir ekki klúðrað miklu á þessum stutta
tíma sem þeir hafa fram að kosningum. Þá breytist minni hluta -
stjórn í meirihlutastjórn. Þannig er flokksræðið sem skerðir
lýðræð ið sem við eigum.
St. Jósefsspítali virðist vera að sleppa með skrekkinn. Enn hefur
ráðherrann ekki getað framvísað tölum um sparnað og kostnað.
Því eru rökin fyrir aðgerðum hans haldlítil. Það getur vel verið að
það sé hægt að hagræða í starfseminni sem fer fram á St. Jósefs -
spítala, það getur vel verið að þar séu eins og svo víða kýli sem
þarf að stinga á. Sennilega mun enginn sleppa við niðurskurð í
þeim þrengingum sem ganga yfir okkur. En breytingar verða ekki
gerðar á röngum forsendum eða illa undirbúnar. Engum heilvita
manni í rekstri kæmi í hug að segja upp starfsemi, vissi hann ekki
hvaða afleiðingar það hefði á fyrirtæki og hvaða sparnað og hvaða
tekjumissi það hefði. Slakleg vinnubrögð ráðherrans eru sjálfhætt.
Guðni Gíslason
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. janúar 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudagurinn 1. febrúar
Messa kl. 11
Prestar: sr. Gunnþór Þ. Ingason
Kantor: Guðmundur Sigurðsson, Kór: Barbörukórinn í
Hafnarfirði. Kirkjuþjónn: Ottó R. Jónsson
Sunnudagakóli á sama tíma í Strandbergi
Ungbarnamorgnar fimmtudaga kl. 10-12
í umsjá Línu Guðnadóttur.
TTT starf 10-12 ára þriðjudaga kl. 17.15 - 18.15
Barnastarf fyrir 7-9 ára fimmtudaga kl. 17-18
www.hafnarfjardarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 1. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11.00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Einsöngur: Lilja Dögg Gunnarsdóttir, söngnemi
Prestur: Sr. Þórhallur Heimisson héraðsprestur
Sunnudagaskólinn kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri,
fer fram í loftsal kirkjunnar.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Allir velkomnir!
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Evrópufundaröð
Samfylkingarinnar
Lýðræði og sóknarfæri sveitarstjórna.
Mánudag 2. febrúar kl. 20 í Sam fylk -
ingarhúsinu, Strandgötu 43.
Frummælendur: Gunnar Svavarsson
þingmaður, Dagur B. Eggertsson
borg arfulltrúi, Kristrún Heimisdóttir
aðstoðarmaður utanríkisráðherra
Fundarstjóri: Gunnar Axel Axelsson
formaður Samfylkingarfélagsins í
Hafnarfirði
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
mynda safn Íslands japönsku kvik -
myndina Floating Weeds (1959) eða
Reikult er þangið í leikstjórn Yasujiro Ozu.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik mynda -
safnið The Purple Rose of Cairo eftir
Woody Allen sem kannar mörkin milli
skáldskapar og veruleika. Kvikmyndin
gerist í kreppunni miklu og greinir frá
misheppnaðri gengilbeinu, Ceciliu (Mia
Farrow) sem situr dag einn í kvik mynda -
sal og verður ástfangin af aðalpersónu
mynd arinnar Tom Baxter (Jeff Daniels).
Sýningar í Hafnarborg
Íslenskir listamenn ljósmyndir eftir
Jónatan Grétarsson og Þættir verk
eftir Björgu Þorsteins dóttur. Sýning -
arnar eru opnar kl. 11-17 en fimmtu -
daga kl. 11-21. Lokað er á þriðju dög -
um. Frítt er inn.
Með blóm í haga
Myndlistarmaðurinn Ásdís Þórarins -
dóttir opnar sýningu sína ...með blóm
í haga, á laugardaginn kl. 14-16 í
Gallerí Thors, Linnetsstíg 2. Sýningin
stendur til 10. febrúar. Opið daglega frá
kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-14.
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 860-7537
Í 56 ár
Guðmundur Valdimarsson
lætur af störfum hjá Þjónustu -
miðstöð Hafnarfjarðar á morg -
un, 30. janúar og hefur hann þá
starfað samfleytt hjá Hafnar -
fjarðarbæ í 56 ár við hin ýmsu
störf.
Honum var haldið hóf í
hádeginu á þriðjudaginn þar
sem Lúðvík Geirsson, bæjar -
stjóri og Reynir Kristjánsson,
yfirverkstjóri þökkuðu honum
fyrir störf í þágu Hafnar fjarð -
ar bæjar.
Stolið frá
Nonna Gull
Rúða var brotin í skart gripa -
verslun Nonna Gull á Strand -
götunni í fyrrinótt. Var arm -
bandsúrum og armböndum
sem voru í sýningarglugga
stol ið. Málið er í rannsókn.
Innbrot í hest -
hús upplýst
Lögreglan hefur haldlagt yfir
þrjátíu hnakka sem stolið var í
innbrotum í hesthús á höfuð -
borgarsvæðinu fyrr í mánuð in -
um og síðast hér í Hafnarfirði
fyrir rúmri viku. Tvær konur
voru handteknar og hafa þær
báð ar játað sök. Tveir til við -
bót ar tengjast inn brotunum sem
eru að mestu upplýst. Þjóf unum
tókst að selja eitt hvað af
hnökkum en unnið er að því að
endur heimta þá. Hnakk arnir
voru faldir á ýms um stöðum á
höf uð borgar svæð inu en þeir
fund ust við hús leitir sem og
nokkrir aðrir munir sem einnig
var stolið í þess um innbrotum.
Lögreglu menn á svæðis stöð -
inni í Hafn arfirði sjá um rann -
sókn málsins.
Einar K. Guðfinnsson, sjávar -
útvegs- og landbúnaðarráðherra
hefur gefið út reglugerð sem
heimilar veiði á hrefnu og lang -
reyði til ársins 2013 skv. veiði -
ráðgjöf Hafrannsóknar stofn unar.
Eitt hafnfirskt fyrir tæki, Hvalur
hf. hefur stundað hvalveiðar og
seldi síðast hval kjöt til Japans.
Skip félagsins eru í Reykja -
víkurhöfn og vinnslu stöð í Hval -
firði en frystigeymslur hér í bæ.
Hvalveiðar heimilaðar