Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Síða 2
Nú eru margir komnir í framboðshaminn og
væri gaman ef Hafnfirðingar næðu góðum
árangri í komandi kosningum. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir stefnir á að halda efsta sæti
sjálfstæðismanna en Gunnar Svavarsson segir
skilið við Alþingi, var orðinn þreyttur á að for -
maður flokksins virtist hunsa Hafnar fjarðar -
kratana. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri útilokar
ekki framboð og nýr frambjóðandi bætist á lista
Sjálfstæðismanna en Jón Rúnar Halldórsson, framkvæmdastjóri
stefnir ofarlega á listann í SV-kjördæmi. Þá er ekki, þegar þetta er
skrifað, útséð með það hvort Rósa Guðbjartsdóttir taki á ný þátt í
prófkjörinu. Amal Tamimi og Sara Dögg Jónsdóttir hafa þegar
tilkynnt framboð sitt hjá Samfylkingu. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
verður 14. mars en Samfylkingin verður með netkosningu um 5
efstu sætin 12.-14. mars en framboðsfrestur rennur út á morgun. VG
verður með forval 5.-6. mars.
Það verður ekki léttara nú en fyrr að velja frambjóðendur og þeir
sem ekki eru flokksbundnir eða vilja ekki undirrita stuðnings -
yfirlýsingu við óákveðinn lista eru útilokaðir frá þátttöku.
Breytingar á kosningalögum virðast ekki ætla að ná í gegn en þar
sem nú er aðeins ár í sveitarstjórnarkosningar þá er rétt að benda
þingmönnum á að huga að breytingum á lögum um þær kosningar.
Þar er flokkakerfið úrelt og fólk á heimtingu á að fá að kjósa
einstaklinga. Annað er ekki sanngjarnt.
Guðni Gíslason
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Í dag, fimmtudaginn 26. febrúar:
Aftansöngur kl. 18 í dag
Aftansöngur að gregorskum hætti
Fullorðinsfræðsla í kvöld kl. 20
Sr. Þórhallur Heimisson,
fjallar um 10 leiðir til lífshamingju.
Sunnudagurinn 1. mars, æskulýðsdaginn:
Fjölskylduhátíð kl. 11
Stoppleikhópurinn sýnir Ósýnilega vininn
eftir Astrid Lindgren.
Kvöldmessa kl. 20
Dagskrá í höndum æskulýðsfélagsins.
Bjarni Arason syngur - hljómsveitin GIG kemur í heimsókn
Kaffiveitingar í boði fermingarbarna.
Þriðjudagur 3. mars kl. 17.30:
Kyrrðarstund með kristinni íhugun
Umsjón: Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, guðfræðingur
Fimmtudagur 5. mars
Aftansöngur kl. 18 að gregorskum hætti
Fullorðinsfræðsla kl. 20, Fjármál heimilanna
Sigurjón Gunnarsson, bankamaður, fjallar um efnið
og gefur góð ráð.
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 860-7537
Listsmiðja fyrir börn í
Hafnarborg
Á sunnudaginn kl. 14-16 verður list -
smiðja fyrir börn og forelda í Hafnar -
borg og er í tengslum við sýninguna
Verund sem var opnuð sl. helgi en þar
getur að líta ný verk eftir Helga Gísla -
son myndhöggvara. Hluti sýning -
arýmisins hefur verið lagður undir
verk stæði þar sem sýningargestir geta
teiknað og skoðað bækur.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
mynda safn Íslands bandarísku Ósk -
ars verð launa myndina Hannah and
Her Sisters (1986) eftir Woody Allen.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
mynda safnið Vestfjarðakvikmynd
Guð laugs Rósinkranz. G u ð l a u g u r
Rósinkranz fyrrum Þjóðleikhússtjóri
stóð fyrir töku á myndum á Vest -
fjörðum í kring um 1950. Í myndinni,
sem sennilega er tekin af Kjartani Ó.
Bjarnasyni, er víða komið við og
sýndar myndir frá ýmsum kaup -
stöðum, bæjum og menningar -
stofnunum. Þar má meðal annars sjá
ungl ingaheimilið í Breiðu vík, frá Núpi í
Dýrafirði, Héraðs skól anum í Reykja -
nesi, Kirkjubóli í Bjarnardal, Þingeyri
ofl. stöðum.
Aðalfundur Kvenfélags
Hafnarfjarðarkirkju
Aðalfundur Kvenfélagsins Hafnar -
fjarðar kirkju er í kvöld, fimmtudag kl.
20.30 í Vonarhöfn. Hefðbundin aðal -
fundarstörf, bingó og kaffiveitingar.
Fræðsluganga um Straum
Menningar- og fræðsluganga um
Straumsvíkursvæðið með Jónatan
Garðarssyni verður farin sunnudaginn
1. mars kl. 13. Eftir gönguna verður
tekið á móti göngufólki í goðafræði -
miðstöð Víkingahringsins í Straumi.
Láttu nudda
þig til góðs!
Heilsunudd og verkjameðferð
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Bæjarhrauni 2, 2.h sími 699 0858
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 1. mars
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Matti Ósvald Stefánsson flytur hugleiðingu:
Hvað er best að gera í miklu andstreymi?
(Þrír lyklar til að sigra andstreymi)
Anna Sigga Helgadóttir söngkona leiðir
sönginn ásamt Skarphéðni Þór Hjartarsyni.
Verið velkomin
í Fríkirkjuna!
www.frikirkja.is
10 leiðir til
lífshamingju
– í þremur kirkjum
Hafnarfjarðar
Námskeiðin 10 leiðir til
lífshamingju eru komin á fullt
skrið en þau eru haldin á
vegum Þjóðkirkjunnar um öll
Suðurnes og í Vest manna -
eyjum á þessu vori.
Þegar hefur verið boðið upp
á námskeiðið í Grindavík og í
Fræðslusetrinu Virkjuninni á
gamla Vallarsvæðinu í Kefla -
vík. Auk þess hefur nám skeið -
ið verið haldið hjá ýms um
félagasamtökum. Mjög margir
hafa þegar nýtt sér námskeiðið
sem stendur aðeins eitt kvöld
og er ókeypis.
Nú er komið að Hafnarfirði
og verður námskeiðið haldið í
Hafnarfjarðarkirkju, Víð i -
staða kirkju og Ástjarnarkirkju
næstu misserin. Fyrsta nám -
skeiðið í Hafnarfirði verður
haldið í kvöld í Hafnar fjarð ar -
kirkju og hefst það kl. 20.
Markmið námskeiðsins er að
styrkja fólk á þeim erfiðu
tímum sem nú ganga yfir, auka
mönnum bjartsýni og kraft og
kenna mönnum að lífið opnar
nýjar dyr þegar þær gömlu
lokast.
Einkennisorð námskeiðins
eru Bjartsýni - Virðing -
Sjálfsskoðun og Umhyggja.
Á námskeiðinu gefst gestum
tækifæri til þess að segja frá
eigin reynslu og gefa öðrum
góð ráð. Þar hafa komið fram
miklar upplýsingar um ástand -
ið eins og það blasir nú við svo
allt of mörgum en einnig
frábærar ábendingar um leiðir
til úrlausna. Einnig hafa fjöl -
miðlar sætt mikilli gagnrýni
fyr ir að stara á neikvæðu hlut -
ina en gleyma hinum jákvæðu,
rétt eins og stjórnmálamenn
allra flokka.
Námskeiðin eru öllum opin
óháð trúfélagsaðild og lífs -
skoð unum og eru ókeypis.