Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Opið hús
Opið hús hjá SVH í kvöld kl. 20 í sal félagsins
að Flatahrauni 29.
Pétur Maack flytur erindi um veiði og
veiðistaði í Þingvallavatni.
Heitt á könnunni – Allir velomnir
www.svh.is
Fermingarmyndatökur
30%
afsláttur
Jónatan Grétarson
Sími 553 2006 jonatan@photographer.is
Hafnfirðingar hafa löngum
lagt metnað sinn í að búa vel að
sínu íþróttafólki. Unnið hefur
verið í góðu samráði
við íþrótta hreyfinguna
sjálfa að því að meta
þörfina og raða verk -
efnum í for gangs röð.
Um mikil vægi þessa
hefur verið rík sam -
staða í bæjar stjórn í
gegnum tíðina.
Það vita allir hverju
þetta hefur skilað.
Þetta hefur skilað okk -
ur afreksfólki í fremstu röð. Auk
þess hefur stuðn ingur bæjar yfir -
valda við íþróttir og annað
æskulýðsstarf átt ríkan þátt í því
að í Hafnarfirði hefur náðst meiri
árangur í forvarnamálum en í
flestum öðrum sveitarfélögum.
Ekki bara íþróttaaðstaða
Þegar íþróttamiðstöðvar FH,
Hauka og Bjarkanna voru
byggð ar, svo dæmi séu tekin, var
lögð mikil áhersla á að félögin
fengju myndarlega aðstöðu fyrir
annað félagsstarf en íþrótta iðk -
unina sjálfa. Þar er um að ræða
aðstöðu til fundahalda, skrif -
stofu halds og þess háttar.
Nýjasta íþróttamannvirkið í
Hafnarfirði er sundmiðstöðin að
Ásvöllum. Til viðbótar við glæsi -
lega íþróttaaðstöðu, hefur orð ið
algjör bylting hvað varðar
félagslega aðstöðu tveggja
íþrótta félaga, Sundfélags Hafn ar -
fjarðar og íþróttafélagsins Fjarð ar.
Það vita þeir sem fylgjast með
íþróttum, að heimavöllur skiptir
miklu máli. Það skiptir miklu
máli að geta tekið myndarlega á
móti gestum og staðið fyrir
stórum mótum, jafnvel verið
gestgjafi á alþjóðlegum stór -
mótum. Helgina 21. -
22. mars fer fram í
Ásvallalaug Ís lands -
mót Íþrótta sambands
fatlaðra í sundi, í 50
metra laug. Mótið er
haldið á sama tíma og
Ís lands mót Íþrótta -
sambands fatlaðra í
boccia, bog fimi, frjáls -
um íþrótt um og lyft -
ing um í Laug ar dals -
höll og Frjáls íþróttahöllinni.
Hefði aðstaðan í Ásvallalaug
ekki verið til staðar, hefði ekki
ver ið hægt að halda sundmótið á
sama tíma, því Laugardalslaug er
upptekin. Fyrir keppendur skiptir
miklu máli að geta haldið mótið
á sama tíma, því móti sem þessu
fylgir margvíslegt félagslíf, t.d.
sameiginlegt lokahóf.
Nú geta bæði Fjörður og Sund -
félagið haldið stórmót með mikl -
um sóma. Félagar í þessum
félögum eru stoltir af sinni að -
stöðu – heimavellinum – og því
er dapurlegt til þess að vita að
einhverjir kjósi að tala niður
þessa glæsilegu aðstöðu, eins og
við höfum orðið vitni að undan -
farið. Í þeirri umræðu hefur verið
farið ítrekað með rangt mál, að
því er virðist til þess eins að slá
pólitískar keilur. Neikvæð um -
ræða af þessu tagi bitnar á þeim
félögum sem þarna eiga sinn
heimavöll.
Höfundur er formaður
bæjarráðs og fjölskylduráðs
Orð eru dýr
Guðmundur Rúnar
Árnason
Í síðasta Fjarðarpósti var birt
opið bréf til fræðsluráðs Hafnar -
fjarðar þar sem ákvörðun ráðsins
um fjögurra vikna sumarlokun
leik skóla Hafnar fjarð -
ar er gagnrýnd.
Umrædd ákvörðun
var tekin á fundi ráðs -
ins þann 12. janúar sl.
og byggir á tillögu um
hagræðingu sem sett
var fram við gerð fjár -
hagsáætlunar fyrir árið
2009. Vegna banka -
hruns ins og þeirrar
efna hagskreppu sem
fylgdi í kjölfarði varð
Hafnar fjarðarbær líkt og fleiri
sveit arfélög, fyrirtæki og heimili
á Íslandi að hagræða í sínum
rekstri. Þar var litið til allra þátta
og sviða í rekstri bæjarins. Þró -
unarfulltrúa leikskóla og nokkr -
um leikskólastjórum var falið að
koma með tillögur að hagræð -
ingu á sviði leikskólamála og
settu m.a. fram tillögu um fjög -
urra vikan sumarlokun leikskól -
anna sem felur í sér 30 milljón
króna hagræðingu á árinu.
Á undanförnum árum hafa
ýms ar útfærslur verið á sumar -
lok unum leikskólanna, sumarið
2008 voru leikskólarnir lokaðir í
tvær vikur, en börnin eiga að
taka fjögurra vikna sumarfrí og
for eldrar gátu því bætt þeim
tveim ur vikum sem upp á vant -
aði framan eða aftan við lokun -
ar vikurnar. Til sanns vegar má
færa að það komi sér best fyrir
marga foreldra að
leikskólarnir loki ekki
yfir sumar mánuðina
og í um ræddu bréfi til
fræðslu ráðs er þess
getið að Garðabær sé
ekki með ákveðnar
sumar lokanir.
Rétt er að halda því
til haga að leik skóla -
gjöld í Garðabæ eru
umtalsvert hærri en í
Hafnarfirði. Grunn -
gjald fyrir hverja klst. á mánuði
er 3.200 kr. í Garðabæ en 2.117
kr. í Hafnarfirði. Ef miðað er við
8 klst. vistun á dag greiða for -
eldrar í Garðabæ rétt tæpum
80.000 kr. hærri upphæð á ári
fyrir leikskólapláss með fæðis -
gjaldi en foreldrar í Hafnar firði.
Í bréfinu kemur fram að við -
komandi er tilbúin til að greiða
hærra leikskólagjald til að kom -
ast hjá þeim óþægindum sem
sumarlokun veldur þeim foreldr -
um sem ekki geta tekið sumar -
leyfi á sama tíma og leik skól -
arnir eru lokaðir. Undirrituð mun
beita sér fyrir því að könnun
verði gerð meðal foreldra hvað
þetta varðar. Í niðurstöðum
viðhorfs könn unar meðal for -
eldra sem gerð var vorið 2007
kemur fram að rúmlega 27%
vilja sumarlokun í tvær vikur eða
skemur, þar á meðal að það eigi
ekki að loka. Liðlega 38%
foreldra telja eðlilegt að leik -
skólinn loki í 3 vikur og liðlega
34% telja að leikskólinn eigi að
loka í 4-5 vikur. Eins og sjá má
þá eru nokk uð misjafnar skoð -
anir hvað þetta varðar og
fræðslu ráð hefur leitast við að
taka mið af þeim almenna vilja
sem kemur fram með al foreldra
Í sömu könnun kemur fram að
flestir vilja loka frá og með 2.
viku í júlí og fram yfir verslunar -
mannahelgi. Það er stefna bæjar -
yfirvalda að fjölskyldan og þá
sérstaklega börn og unglingar sé
í fyrirrúmi í Hafnarfirði og þar
sýna verkin merkin.
Að lokum er rétt að geta þess
að nýlega var tekin um það
ákvörðun í fræðsluráði Hafnar -
fjarðar að skipulagsdagar leik-
og grunnskóla verði samræmdir
næsta skólaár og þannig komið
til móts við óskir foreldra. Áfram
verður skoðað með hvaða hætti
fjögurra vikna sumarleyfi barna í
leikskólum verði best fyrir
komið og álits foreldra leitað
eins og fyrr greinir.
Höfundur er formaður
fræðsluráðs.
Sumarlokun leikskólanna
Ellý
Erlingsdóttir
Heimsóknavinir eru sjálf boða -
liðar Rauða krossins sem yfirleitt
heimsækja gestgjafa sína einu
sinni í viku, klukkustund í senn.
Þeir sem heimsækja eru karlar
og konur, ungir og aldnir, allt
fólk sem er tilbúið að gefa tíma
sinn til að gleðja aðra.
Það fer svolítið eftir áhuga -
málum og aðstæðum þess sem
heimsóttur er, hvernig gestgjafi
og heimsóknavinur verja tím -
anum saman. Sumir vilja bara
spjalla um daginn og veginn, aðr -
ir hlusta á lestur úr góðum
bókum, spila eða fara í göngu -
ferð, svo eitthvað sé nefnt, allt
eft ir því hvað gestgjafi og heim -
sóknavinur koma sér saman um.
Heimsóknir eru meðal annars
á heimili fólks, dvalarheimili,
sjúkrahús eða sambýli, auk þess
sem einnig eru starfandi svo -
kallaðir ökuvinir, sem bjóða
gest gjafa sínum í bíltúr í stað
heim sóknar á heimili.
Heimsóknavinur þarf að hafa
gaman af því að umgangast fólk,
vera traustur og áreiðanlegur og
kunna að hlusta á aðra. Undan -
fari heimsóknavina, voru sjúkra -
vinir sem hófu heimsóknir um
miðjan sjöunda áratug síðustu
aldar, en verkefnið í þeirri mynd
sem nú starfar, hófst árið 2001.
Heim sóknavinir þurfa að
sækja undir búningsnámskeið þar
sem farið yfir stöðu og mark mið
verkefnisins, yfir hlutverk heim -
sókna vina og þær reglur sem
unnið eftir. Heimsóknavinum
stendur einnig til boða fjölbreytt
fræðsla, námskeið og hand -
leiðsla eftir að þeir taka til starfa
og hefja heim sóknir.
Þeir sem hafa áhuga á að
gerast heimsóknavinir eru hvattir
til að hafa samband við Rauða
kross deildina á sínu svæði og
spyrjast fyrir um verkefnið og
námskeið til undirbúnings.
Heimsóknavinir
Leitað er eftir fólki til að heimsækja einman fólk
Er Fjarðarpósturinn besti auglýsingamiðillinn fyrir Hafnarfjörð?
Hafnfirðingar lesa sitt blað og þar ná auglýsingar til lesendanna.
Þurfir þú að ná til Hafnfirðinga – Hafðu þá samband!
w w w . f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
auglýsingasími:
565 3066
auglysingar@fjardarposturinn.is