Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 26. febrúar 2009
DEIGLAN
Uppspretta hugmynda,
hvatningar og samstöðu
Í dag opnar DEIGLAN, atvinnu- og þróunarsetur Hafnarfjarðarbæjar,
í Menntasetrinu við Lækinn.
Deiglan er vettvangur fyrir fólk sem vill hrinda hugmyndum til atvinnusköpunar í
framkvæmd auk þess að vera aðstaða fyrir námskeið, samveru, hugmyndavinnu og
þróun nýrra atvinnutækifæra.
Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið og ráðgjöf í kjölfar atvinnumissis. Fulltrúar
stéttafélaga, Vinnumálastofnunar, Nýsköpunarmiðstöðvar o. fl. verða með fasta
viðtalstíma til að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum, leiðum til úrbóta og
hugsanlegum atvinnutækifærum.
Allir sem vilja leggja hönd á plóginn við uppbyggingu Deiglunnar eru hvattir til að
líta inn eða hafa samband við Brynhildi Barðadóttur, verkefnisstjóra Deiglunnar, í
síma 664 5526 eða á netfangið brynhildur@hafnarfjordur.is.
Deiglan verður opin frá 09.00 – 12.00 alla virka daga.
Við höfum alltaf heitt á könnunni – láttu sjá þig!
F
A
B
R
I
K
A
N
www.hafnarfjordur.is