Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Qupperneq 6
Ákvörðun um lokun Suður -
bæjar laugar 1. júní - 10. júlí
snýst um lokun vegna viðgerða
og viðhalds bæði innan og
utanhúss að sögn Steinunnar
Þorsteinsdóttur, upp lýs inafull -
trúa Hafnarfjarðarbæjar. Kom -
inn sé tími á viðgerðir á þessari
20 ára gömlu laug. Starfsfólk
sundlaugarinnar verður í sumar -
fríi á meðan.
Lokunartíminn er ekki valinn
af handahófi að sögn Steinunnar
en lauginni verður lokað um leið
og skólasundi lýkur.
Á meðan Suðurbæjarlaug er
lokuð munu tvær sundlaugar,
Sund höllin við Herjólfsgötu og
Ás vallalaug vera opnar og þar er
úti aðstaða í boði á báðum
stöðum, heitir pottar. Segir hún
lokun á þessum tíma vera sam -
bærilega því sem gert hefur verið
í öðrum bæjarfélögum.
Framkvæmdirnar:
1. Farið yfir þenslu fúgur,
flísa fúgur og flísa lögn bæði í
botni og hliðum. Tæma þarf
sund laugar kerin og þurrka þau.
2. Endurflísaleggja stóran
hluta bakkanna.
3. Flísaleggja heitan pott nr 1.
4. Flísaleggja grunnan pott.
5. Yfirfara og lagfæra
snjóbræðslu á útisvæði.
6. Klára endurnýjun þaks,
lagfæring að hluta.
7. Yfirfara og lagfæra hreinsi -
búnað og stjórnbúnað fyrir
laugar.
8. Yfirfara og endurnýja lagn -
ir og stjórnbúnað í kjallara.
9. Yfirfara og endurnýja
loftræsilagnir og stjórnbúnað.
10. Setja upp
brunaöryggiskerfi.
11. Mála aðkomurými.
Endurbætur og viðhald í Suðurbæjarlaug
Suðurbæjarlaug verður lokuð 1. júní - 10. júlí vegna nauðsynlegs viðhalds
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Bókhaldsuppgjör • Skattaframtöl
Fyrir einstaklinga og fyrirtæki - lítil sem stór
Rekstrargreining ehf.
Bæjarhrauni 2, 2.h. • sími 555 1090
Ólafur Haukur Magnússon,
viðskipta- og rekstrarhagfræðingur
Það hefur alla tíð verið góð
samstaða um byggingu Ásvalla -
laugar. Hún hófst um mitt ár
2006, en íþróttamannvirkið var
samþykkt í forgangs -
röðun á íþróttaþingi
ÍBH árið 1997. Bygg -
ing ar nefnd var sett á
laggirnar 2001, en allir
stjórn málaflokkar í
Hafn arfirði studdu það.
Drög að forsögn voru
sam þykkt af þeirri
nefnd vorið fyrir kosn -
ingarnar 2002, en þá
var um 12.000 m².
mann virki að ræða.
Við endurskoðun húsrýmis -
lykla og í sérstakri þarfagreiningu
sem unnin var ítarlega á árunum
2003-2004 í samvinnu við Sund -
félag Hafnarfjarðar og Íþrótta -
félagið Fjörð voru þarfir almenn -
ings, skólasundsins og íþrótta -
félaganna metnar til 7.550 m²
mannvirkis.
Það má því segja að undir -
búningsvinna og ákvörðun hafi
mótast af hafnfirsku samfélagi
fyrir um áratug síðan. Starfshópar
um sundmiðstöðina voru starf -
andi frá árinu 2001 og að því
verki komu pólitískir fulltrúar,
embættismenn og íþróttahreyf -
ingin.
Ásvallalaug innifelur eftir -
farandi: Anddyri, afgreiðslu, veit -
ingaaðstöðu, sundlaugarsal með
tveimur sundlaugum, annars veg -
ar 25 x 50 m og hins vegar 16 2/3
x 10 m. Auk þess eru tveir heitir
pottar, vaðlaug, nudd pottur og
vatnsrenni braut, bað og búnings -
aðstaða fyrir sundlaug ar sal og
útisundlaugar svæði. Þá er í
húsinu félags aðstaða fyrir Sund -
félag Hafnar fjarð ar og Íþrótta -
félag ið Fjörð. Ekki má gleyma að
í hús næð inu er fullkomin
heilsuræktaraðstaða sem Hress
rekur. Hress hreppti
þann leigu samn ing eft -
ir forval og útboð.
Við hönnun Ásvalla -
laugar hef ur verið lögð
áhersla á að hún sé
aðgengileg öllum í
samræmi við ferlimál
fatlaðra. Hönnuðir al -
verk taka eru Batteríið,
arkitekta stofa og
Strend ingur, verk -
fræði stofa, en alverk taki er hafn -
firska verktaka fyrirtækið Feðgar
ehf.
Kostnaður vegna Ásvallalaugar
Tilboð vegna Ásvallalaugar
voru opnuð þann 11. apríl 2006.
Feðgar ehf áttu hagstæðasta til -
boðið og buðu 1.374.461.000
krónur í verkið. Kostnaðaráætlun
var 1.370.000.000 krónur. Sam -
þykkt var gerð vegna aukaverka í
framkvæmdarráði þann 10. jan -
úar 2008. Samþykktin var
225.000.000 króna. Um var m.a.
að ræða breytingar á laugarkeri
og auknu aðgengi vegna skóla -
sunds og aðgengi fatlaðra. Það
var gert með því að lengja laug ina
í 51 metra en hafa 1 m brú sem
gefur möguleika á að skipta henni
í 2x25 m, án þess fórna hönn -
unargæðum hennar. Þver pólítísk
samstaða var um öll auka verk.
Búið er að greiða 99% fram -
kvæmdarinnar. Heildarkostnaður
vegna verktaka með verðbótum
eru um 1.685.000.000 krónur.
Verk taki á eftir að ljúka verkum
fyrir um 25 milljónir, en verk -
tryggingar eru um 30 milljónir.
Þau verk eru m.a. vegna nýrrar
lyftu vegna sunds fatlaðra svo og
lokafrágangur á útisvæði sem
tengist heitum pottum. Slíkt fellur
alfarið inn í alútboðið og er því
ekki aukaverk að ræða.
Óbilgjörn umræða Rósu um
óráðsíu
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar -
fulltrúi sakaði Hafnarfjarðarbæ
um óráðsíu í Morgunblaðinu um
helg ina vegna sundlaugarinnar.
Ég tel að bæjarfulltrúinn þurfi að
biðja bæjarbúa afsökunar á orð -
um sínum. Hún þarf að biðja alla
sem unnið hafa að verkinu af
heilum hug afsökunar þ.m.t.
íþróttafélögin og stjórn mála -
flokk ana í bænum. Ekki hvað síst
Sjálfstæðisflokkinn, sem á ekki
skilið svona niðurrifstal, frekar en
aðrir.
Ég tek nefnilega mun meira
mark á oddvita Sjálfstæðis flokks -
ins í Hafnarfirði, Haraldi Þór Óla -
syni, sem komið hefur fram heið -
ar lega í allri þessari vinnu um
sund laugina, líkt eins og Almar
Grímsson, bæjarfulltrúi flokksins.
Algjör samstaða hefur einnig
verið innan Samfylkingar og
Vinstri grænna um málið. Það er
skömm að tala niður jafn gott
samfélagslegt verkefni og
sérhæfða sundmiðstöð fyrir fatlað
og ófatlað íþróttafólk, sund mið -
stöð fyrir almenning og skóla -
sund, enda allar kostnaðartölur
bæjarfulltrúa Rósu Guð bjarts -
dóttur úr lausu lofti gripnar.
Gasp ur og upphrópanir eiga ekki
vel við nú á tímum og tími stjórn -
málamanna sem slíkt stunda er
sem betur fer á undanhaldi.
Höfundur formaður
framkvæmdaráðs.
Ásvallalaug
– Fyrst og fremst fyrir samfélagið
Gunnar
Svavarsson
Ástjarnarkirkja stendur fyrir
sjálfstyrk ingar námskeiði í mars
en aðeins fyrir konur. Sr. Bára
Friðriksdóttir sóknarprestur var
spurð um ástæðu þess:
„Þetta námskeið „Konur eru
konum bestar“ hefur verið notað
yfir tvo áratugi í Þjóðkirkjunni.
Það var mótað út frá þörf. Fyrir
margt löngu var áratugur til eink -
aður konum í kristnum kirkju -
deildum um allan heim. Þá var
spurt, hvers þarfnast konur og
niðurstaðan varð sjálfss tyrking -
ar námskeið fyrir þær. Þetta
námskeið á alltaf við en á tímum
atvinnuleysis og óöryggis kemur
það sér enn betur. Ég notaði þetta
námskeið í Vestmannaeyjum við
góðar undirtektir þegar kviknaði
í Ísfélaginu og fjöldi fólks varð
atvinnulaus á einni nóttu.“
Geturðu lýst námskeiðinu?
„Þetta er 6 klukkustunda nám -
skeið kennt á tveimur kvöldum
2. og 9. mars kl. 19-22. Það
skipt ist í fyrirlestra, einstaklings-
og hópverkefni og upplifun. Í
sumum verkefnum er óhefð -
bundnum aðferðum beitt til að fá
þátttakendur til að hugsa um sig
út frá nýju sjónarhorni. Allt er
það gert svo að konurnar finni
sína góðu kosti, styrki þá og læri
leið ir til að draga úr streitu og
styrkja jákvæð samskipti við
náung ann, Guð og sjálfan sig.
Leið beinandinn er sr. Petrína
Mjöll Jóhannesdóttir en hún hef -
ur margra ára reynslu af að leiða
þessi námskeið.“
Hvert eiga konur að snúa sér ef
þær hafa áhuga?
„Senda má skráningu á
bara.fridriksdottir@kirkjan.is
eða skrá í síma 891 9628. Heild -
arverð fyrir þátttakanda er 1.500
kr. Kirkjan greiðir annað niður.
Fræðslan er innifalin ásamt
námskeiðsgögnum og kvöld -
hressingu. Námskeiðið er opið
öllum konum og vonast ég til að
sjá námskeiðið fyllast. Há marks -
fjöldi er 30 konur á nám skeiði,“
sagði sr. Bára Frið riks dóttir,
sóknar prestur í Ástjarn ar kirkju.
Sjálfstyrkingarnámskeið
kvenna í Ástjarnarkirkju
Sr. Bára Friðriksdóttir
Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
Sjálfstyrkingarnámskeið kvenna
Konur eru konum bestar
Þetta er 6 klukkustunda sjálfstyrkingarnámskeið.
Það er kennt á tveimur kvöldum í Ástjarnarkirkju,
2. og 9. mars kl. 19.00 - 22.00.
Námskeiðið leitast við að hjálpa konum að finna
sína góðu kosti, styrkja þá, læra leiðir til að draga
úr streitu og styrkja jákvæð samskipti við
náungann, Guð og sjálfan sig.
Heildarverð fyrir þátttakanda er 1.500 kr. Kirkjan
greiðir annað niður. Innifalið er fræðslan,
námskeiðsgögn og kvöldhressing.
Skráning er hafin á bara.fridriksdottir@kirkjan.is
og í s. 891 9628. Ef fjárhæðin er vandamál verður
hægt að leysa það. Takmarkaður aðgangur.
Hér er góð upplifun á ferð,
sr. Bára Friðriksdóttir
Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfjörður
www.astjarnarkirkja.is
Rannsóknarlögreglumenn á
svæðisstöðinni í Hafnarfirði fóru í
reglulegt eftirlit á veitingastaði sl.
fimmtudagskvöld. Á einum stað
höfðu lögreglu menn irnir afskipti
af þremur stúlk um. Kom í ljós að
tvær þeirra voru 16 ára og ein 17
ára. Verður rekstraraðili staðarins
kærður fyrir brot á lögum um
veitingastaði og skemmtanahald.
16 ára á veitingastað