Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Page 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Öll orð og allar hugsanir hafa
orku eða tíðni. Mismunandi orð
gefa frá sér mismunandi tíðni eða
orku og öll þessi orka hefur áhrif
á líkamann okkar og huga. Þetta
hefur verið sannað vís inda lega
með vatnakristöllum sem er búið
að mynda í gegnum smásjá. Orð -
in þakklæti og kærleikur eru þau
orð sem mynda fallegustu
kirstallanna. Þau eru grund vall ar -
lögmál náttúrunnar og lífs und -
ursins.
Tileinkum okkur kærleika og
þakklæti
Með því að tileinka okkur kær -
leika og þakklæti erum við að
skapa frið í huga okkar og höfum
þar með áhrif á líf okkar, líkama
og heilsu. Við erum að byggja
upp og sameina. Hins vegar ef við
blótum, rökk um fólk niður, meið -
um og hæð um erum við að skapa
sundr ungu þar sem þessi orð eru
afsprengi ómenningar og eru ekki
til í náttúrunni.
Við erum skaparar
Tilgangur mannkynsins er að
upp götva frjálsan vilja. Áttum
okkur á því að það er undir okkur
sjálf um komið hvernig lífi við lif -
um, hvernig okkur liður og
hvernig umhverfi okkar er. Við
erum skaparar og við erum öll að
vinna saman að því að skapa eina
heild og frið á jörð þar sem við
getum öll búið í sátt og samlyndi.
Öll stríð byrja í huga okkar
Hættum að klekkja á sam ferð -
amönnum okkar og ljúga að okk -
ur að þeir hafi átt refsinguna skil -
ið. Þegar við klekkjum á sam -
ferðamönnum okkar erum við
líka að klekkja á okkur sjálfum.
Öll stríð byrja í huga okkar og þar
getum við líka skapað frið og
verið fordæmi fyrir aðra. Okkar
er valið. Þannig getum við lagt
okkar af mörkum við að gera
heiminn að betri stað til að búa á.
Því fleiri sem verja orku sinni í
þakklæti og kærleika því meira af
þakklæti og kærleika löðum við
að í lífi okkar. Við minnum ykkur
á að við öll skiptum máli.
Hvað er að vera í velsæld?
Það er til nóg af öllu fyrir alla
og sem betur fer viljum við ekki
öll það sama. Við þurfum bara að
vera vakandi og hafa hugrekki til
þess að sjá það. Er ekki komin
tími til að vakna til vitundar, taka
ábyrgð, skipuleggja líf okkar og
standa við gefin loforð svo að við
getum leyft okkur fulla birtingu.
Byrjum á því að segja sann -
leikann og þakka fyrir það sem
við erum höfum og eigum. Hætt -
um að vorkenna okkur og væla
fyrir það sem við höfum misst
eða eigum ekki eða erum og get -
um ekki. Gerum okkur grein fyrir
því hvað það er sem að mestu
máli skiptir í lífinu. Hvað er að
vera í velsæld og vera auðugur?
Við vitum það öll en gleymum
því bara allt of oft. Í hvert sinn
sem að við stöndum okkur að því
að vorkenna okkur hugsum þá
um það sem við erum þakklát fyr -
ir og hvað það er sem við eigum.
Við getum öll, ef við viljum,
fund ið eitthvað sem við erum
þakk lát fyrir. En að sjálfsögðu
verð um við að vilja það. Þegar
við uppgötvum að við höfum val
að þá höfum við öðlast vald okkar
aftur og byrjum að lifa ham -
ingjusömu og ánægulegu lífi, laus
við kvíða, ótta og áhyggjur.
Sagan af kaupmanninum.
Kaupmaður sem er búinn að
reka búðina sína í nokkur ár og
það gekk mjög vel á meðan á
„góð ærinu“ stóð og búðin
blómstr aði hjá honum. Það var
eins og hendi hefði verið veifað
og „kreppan“ skall á og það snar -
minnkaði salan og búðin fór að
ganga illa. Kaupmaðurinn var svo
upp tekinn af þeim sem ekki
komu að versla hjá honum, hann
veitti þeim mesta athygli, hann
veitti skortinum athygli, salan fór
minnkandi og minnkandi og
kaup maðurinn varð svartsýnn og
nei kvæður þangað til að hann
heyrði eina setningu sem gjör -
breytti lífi hans og það var setn -
ingin „allt sem þú veitir athygli
vex og dafnar“. Þannig að kaup -
maðurinn byrjað að þakka fyrir
hvern einasta viðskiptavin sem
verslaði hjá honum. Hann veitti
honum fulla athygli og sinnti
hon um vel. Kaupmaðurinn tók
eftir því strax á fyrsta degi að orka
hans og tíðni sem að hann sendi
frá sér breyttist. Hann byrjaði að
laða að sér fleiri viðskiptavini
með degi hverjum. Hann fann að
út geislun hans hafði breyst og
hann var jákvæður og það vildu
alltaf fleiri og fleiri versla við
hann. Litla búðin hans á horninu
hafði aldrei verið eins vinsæl þó
að það væri ennþá „kreppa“.
Kaupmaðurinn hugsaði með
sér: „Vá, þetta er það besta sem
hefur komið fyrir mig í langan
tíma. Ég var nefninlega búin að
týna sjálfum mér, ég hafði enga
ástríðu lengur og ég var hættur að
brosa. Ég var bara að upplifa
græðgi. Núna man ég hver til -
gangur minn er og litlu versl unar -
innar minnar. Núna er ég þakk -
látur og hugsa bara um það eitt
hvernig ég get þjónustað við -
skipavininn sem best og hvernig
ég get breytt og haft áhrif á alla
mina tilveru. Ég er fullur af ást -
ríðu og ég vakna á hverjum
morgni fullur tilhlökkunnar um
að mæta í vinnuna og það sem
meira er að allir verkir úr líkama
mín um eru horfnir. Mér líður alls
staðar vel.“
Höfundarnir eru rope yoga
kennarar hjá elin.is
Elín
Sigurðardóttir
Margrét Ýr
Einarsdóttir
Heilsuþáttur í boði Fjarðarpóstsins og Elin.is
Við veljum líðan okkar
Nú virðist sem aukning sé á
gras- eða marijúanareykingum
ungs fólk á Íslandi.
Sjaldan hefur verið jafn já -
kvæð umræða í kringum gras-
eða marijúanareykingar og nú.
Upp lýsingar úr kvikmyndum og
beinar jákvæðar upplýsingar af
heima síðum telja neyslu efnisins
vera skaðlausa og jafnvel hafa
jákvæð áhrif á þann sem þess
neytir. Við þau er vinnum að
þess um málum höfum áhyggjur
af því að það vanti upplýsingar
um umæðu um málið þannig að
foreldrar geti tekið á þessari um -
ræðu á heimavelli. Foreldrar
verða að vera meðvitaður um
vímuefnahætturnar sem leynast í
um hverfi barna sinna og hafa
dug til að taka á málunum áður
en það er um seinan.
Eftirfarandi atriði er vert að
hafa í huga:
Efnin sem reykt eru á Íslandi
eru afar sterk og hafa jafn slæm -
ar afleiðingar og hass.
• Menn ánetjast efninu líkt og
öðrum eiturlyfjum.
• Nýjar rannsóknir sýna að
grasreykingar auka líkur á að
neytandinn fari að nota önnur
vímuefni í kjölfarið.
• Þeir sem markaðssetja efnið
eru slyngir sölumenn, gefa
það jafnvel frítt til að byrja
með og benda á hve heilsu -
samleg efnin eru.
• Framboð á þessum efnum
virðist vera mikið og auðvelt
fyrir börn að nálgast þau.
Því miður hafa myndast hópar
barna í unglingadeildum grunn -
skólanna sem ánetjast efnunum
og í einhverjum tilfellum með
vitund og samþykki foreldra, en
svo mikill getur sannfæringar -
krafturinn orðið um þetta „holla“
eitur lyf. Einnig virðist viðhorf
ung menna á menntaskólaaldri
oft vera jákvætt til reykinga
kanna bisefna Afleiðingar neyslu
ungling anna og ungmenna eru
nei kvæðar fyrir alla; foreldra,
börnin, systkini og samfélagið
allt. Þetta hægir á eðlilegum en
afar mikilvægum þroska sem
börn taka út á unglingsárum og
hefur bein áhrif á heilastarf -
semina. Oft getur verið erfitt að
átta sig á einkennum neyslunnar
en bent er á heimasíðu lögreglu
og lýðheilsustöðvar eftir nánari
upplýsingum.
Hjá sveitarfélögunum eru
starf andi aðilar sem veita ráðgjöf
og stuðning, félagsþjónusta,
náms ráðgjafar, félagsmiðstöðvar
auk lögreglunnar. Við hvetjum
foreldra sem hafa áhyggjur af
börnum sínum að leita ráða og
stuðnings hjá okkur.
Geir Bjarnason forvarnafulltrúi
Ellert Baldur Magnússon ÍTH
Páll Ólafsson félagsráðgjafi,
Garðabæ
Helgi Gunnarsson, lögreglunni
Haukur Haraldsson félags -
þjónustunni Hafnarfirði.
Jóhanna Fleckenstein
félagsmiðstöðinni Hrauninu
Jóhannes Ármansson,
lögreglunni.
Marijúana!!!
Foreldrar, verið á varðbergi
Heimasíður með upplýsingum
www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=253
www.fikno.is
www.tollur.is/displayer.asp?cat_id=1837
www.lydheilsustod.is/fraedsla/fraedsluefni/afengi-og-vimuefni/nr/278
Önnur viðureign spurninga -
keppni ÍTH og grunnskólanna
„Veistu svarið?“ fór fram í Ás -
lands skóla á mánudaginn en þar
tók ust á lið Áslandsskóla og
Hraun vallaskóla. Framan af var
keppn in jöfn og gríðarspennandi
en þegar leið á tók Áslandsskóli
örugga forystu og sigraði.
Keppnin var afar vel sótt,
frábær stemmning og voru bæði
lið sínum skóla til mikils sóma.
Lið Víðistaðaskóla sigraði lið
Álftanesskóla í fyrstu viður -
eigninni í æsispennandi keppni
sem endaði í bráðabana.
Næsta viðureign verður á
mánu daginn kemur, 2. mars, en
þá mætast lið Set bergs skóla og
Hvaleyrarskóla. Keppn in fer
fram í Setbergs skóla.
Áslandsskóli áfram
í spurningakeppninni „Veistu svarið?“
Liðsmenn Áslandsskóla, Árni Freyr, Ásta Margrét og Sölvi Steinn.
Aug l ý s i n g í F j a r ð a r p ó s t i n um bo rg a r s i g !
Auglýsingasími: 565 3066
FH-ingar hafa verið sigursælir
í frjálsum íþróttum undanfarin ár
og unnið til allra titla sem lið
nema bikarmeistartitilinn innan -
húss sem nýverið er farið að
keppa um. Úrslit heildar stiga -
keppninnar í ár réðust í síðustu
grein mótsins, 4x400m boð -
hlaupi karla, en fyrir þá grein
hafi ÍR 1,5 stigs forystu á FH.
FH sigraði í boðhlaupinu og ÍR
sveitin varð í 3. sæti, þann ig að
lokaniðurstaðan var að FH hlaut
hálfu stigi meira en ÍR. FH hlaut
118 stig, ÍR 117,5 stig og
Breiðablik varð í 3. sæti með 105
stig.
Lið FH sigraði í karlakeppni
mótins örugglega með 74 stig -
um, sautján stigum meira en
Breiða blik sem varð í öðru sæti
með 57 stig. ÍR sigraði hinsvegar
örugglega í kvennakeppni
mótins með 65,5 stig og lið FH
varð í fimmta sæti með 44 stig.
FH er þriðja liðið á þremur ár -
um sem sigrar í Bikarkeppni FRÍ
innanhúss, en ÍR sigraði í fyrra
með einu stigi meira en FH og
lið Breiðabliks sigraði árið 2007,
þegar keppnin fór fram í fyrsta
skipti.
FH-ingar í fyrsta sinn Bikarmeistarar innanhúss
Frjálsíþróttalið FH sigraði í Bikarkeppni FRÍ eftir mikla keppni við ÍR
Bikarlið FH ásamt þjálfurum og formanni frjálsíþróttadeildarinnar, Sigurði Haraldssyni.Ljó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n