Fjarðarpósturinn - 26.02.2009, Qupperneq 11
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 26. febrúar 2009
Úrslit:
Handbolti
Karlar:
Haukar - Víkingur: (miðv.d.)
Haukar - Valur: 25-22
Konur:
FH - HK: 24-36
Haukar - Fylkir: 42-26
Körfubolti
Konur:
Keflavík - Haukar: (miðv.d.)
Haukar - Hamar: 54-61
KR - Haukar: 72-83
Karlar:
Haukar - Hamar: (miðv.d.)
Ármann - Haukar: 68-90
Næstu leikir
Handbolti
27. feb. kl. 20, Ásvellir
Haukar - Hamar
(úrvalsdeild karla)
28. feb. kl. 13.30, Laugard.h.)
FH - Stjarnan
(bikarkeppni kvenna, úrslit)
Körfubolti
27. feb. kl. 20, Ásvellir
Haukar - Hamar
(1. deild karla)
Mætum á heimaleiki
Freyr þjálfar
Hauka áfram
Knattspyrnudeild Hauka
hefur endurnýjað samning um
þjálfun yngri flokka við Freyr
Sverrisson. Gildir samningu r -
inn til 15. september 2011 með
mögu leika á framlengingu um
eitt ár. Freyr er að fara hefja
þjálfun þriðja sumarið hjá
félaginu.
Töluverð fjölgun iðkenda
hefur verið í deildinni síðan
Freyr hóf störf en síðasta
sumar varð 4. flokkur karla
Íslands meistari og var það
fyrsti Íslands meist ara titill
félags ins í knattspyrnu.
Ásamt því að þjálfa hjá
Hauk um er Freyr lands -
liðsþjálfari U-16 ára, landsliðs
drengja.
Íþróttir
Eldsneytisverð
25. febrúar 2009 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 142,8 154,9
Atlantsolía, Suðurhö. 137,9 154,9
Orkan, Óseyrarbraut 137,8 154,9
ÓB, Fjarðarkaup 137,8 154,9
ÓB, Melabraut 142,8 154,9
Skeljungur, Rvk.vegi 144,4 156,6
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð um olíufélaganna.
N1 gefur ekki upp verð á heimasíðu.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
Sími 867 2273
Nudd, slökun
og ráðgjöf
Er einnig með nuddbekk sem er
sérhannaður fyrir barnshafandi konur.
Er staðsett í Hafnarfirði.
Eygló B. Sigurðardóttir
Vægt verð
sími 562 7798 og 861 1677
eybjork@centrum.is
Heilsunudd
Nýtt í Hress! Heilsunudd og
heilsumeðferð. (kinezio logic,
meridians, viðbragðs meðferð)
Sími: 841 0968, Hress: 565 2212
5 x 60 mín. heilsumeðferð: aðeins 19.000.
Á afmælisdaginn þinn:
10% afsláttur!!!!
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
Aðalfundur SH
Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar verður
haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 20
í Ásvallalaug.
Dagskrá: Venjulega aðalfundarstörf
samkvæmt lögum félagsins.
Stjórn SH.
Góðir Hafnfirðingar, með
sam stöðu höfum við náð árangri
í að standa vörð um St. Jósefs -
spítala og áfram á að
vinna að endanlegri
lausn í samstarfi við
bæjar yfirvöld og hags -
muna aðila til hagsbóta
fyrir okkar samfélag.
Það er þörf á halda
áfram endurupp bygg -
ingu til framtíðar, við
þurfum að nýta öll þau
tækifæri sem bjóðast
til uppbyggingar. Nú
er horft til sprotafyrirtækja en
við megum ekki horfa fram hjá
þeim fyrirtækjum sem við höf -
um og eiga kost á því að eflast.
Ég vil hér m.a. nefna málm -
iðnaðinn. Hér í bæ eru öflug
málm iðn aðarfyrirtæki sem geta
tekist á við fjölþætt verkefni.
Gera þarf kröfu á ríki og sveitar -
félög að þau móti sér stefnu til að
styðja við íslenskan iðnað með
því að taka íslenskum tilboðum.
Það er sannað að þjóðhagslega er
haghvæmt að taka innlendum
tilboðum þó þau séu allt að 15%
hærri en erlend. Það er óvið -
unandi að íslensk stjórnvöld
skuli ítrekað hafa gengið fram
hjá íslenskum málmiðnaðar -
fyrirtækjum í útboðum og tekið
frekar erlendum tilboðum og er
hér hægt að nefna stærri endur -
bætur t.d. á varðskipum o.fl. og
nú nýlega við virkjanir og
ástæða væri að rannsaka hvað
hafi legið að baki og
við höfum fram að
þessu haldið að spill -
ing væri ekki til hér á
landi!
Einnig vil ég hér
nefna álverið í
Straums vík, en í októ -
ber sendi ég öllum
bæjarfulltrúum tölvu -
póst þar sem ég
spurði, í ljósi að -
stæðna í þjóðfélaginu hvort
bæjaryfirvöld hefðu stöðu til að
breyta afstöðu til stækkunar hjá
Ísal og það var eingöngu Lúðvík
bæjarstjóri sem svaraði og sagði
að bæjar stjórnin hefði ekki
heimild til þess að ógilda
atkvæða greiðsl una, en ef 25%
eða um 4600 atkvæðisbærra
Hafn firðinga ósk uðu eftir
atkvæðagreiðslu þá yrði að verða
við kosningu.
Í framhaldi af svari bæjarstjóra
útbjó ég undirskriftalista undir
kjörorðinu „Endurreisn byrjar
hjá okkur“. Ekki voru stofnuð
sérstök samtök, heldur haft
samband við fjölda Hafnfirðinga
sem tóku að sér að safna undir -
skriftum, það er að láta gras -
rótina vinna. Þegar við vorum
komin með 5014 undirskriftir þá
afhentum við undirskriftirnar á
bæjarráðsfundi þann 16. desem -
ber sl. Við skoðun hjá bæjar -
lögmanni kom í ljós að um 570
undirskriftir stóðust ekki kjör -
gengi í Hafnarfirði og voru
ástæður ýmsar, lögheimili í öðr -
um sveitarfélögum, erlent ríkis -
fang og að ekki var hægt að rekja
þar sem vantaði kennitölu eða
aðrar upplýsingar.
Við sem stöndum að þessari
undir skrftasöfnun þökkum fyrir
öflugan stuðning en við höfum
tilkynnt að við munum vinna
áfram að því að safna þeim
undir skriftum sem upp á vantar.
Við þurfum um 250 undirskriftir
til viðbótar sem þurfa að upp -
fylla skilyrði eins og koma fram
á meðfylgjadi seðli sem hægt er
að fylla út og senda eða hafa
sam band við neðangreinda.
Gylfi Ingvarsson, s. 896 4001,
netfang, gylfiing@simnet.is
Ingi B. Rútsson, s. 896 1173
netfang, ingi@vhe.is
Hér með skora ég á alla Hafn -
firðinga sem eiga samleið með
okkur og vilja efla atvinnu hér í
bæ að leggja okkur lið og það er
ekki eftir neinu að bíða. Höld um
ótrauð áfram til þess að vinna
okkur út úr vanda og halda til
framtíðar.
Höfundur er íbúi að
Garðavegi 5 í Hafnarfirði.
Fyrirtæki og atvinna
undirstaða til framtíðar
Gylfi
Ingvarsson
!
Undirskriftalisti
Endurreisn byrjar hjá okkur!!!!
Við undirritaðir atkvæðisbærir Hafnfirðingar 18 ára og eldri sem höfum ekki skrifað
undir fyrri undirskirfatasöfnunina, samþykkjum með undirskrift okkar, að fara þess
á leit við bæjarstjórn Hafnarfjarðar, að eins fjótt og auðið er verði efnt
til atkvæðagreiðslu að nýju um deiliskipulag fyrir stækkun álversins í Straumsvík.
Nr. Nafn: Heimilisfang: Póstnr. Kennitala:
1
2
3
4
5
6
7
8
Skilist til: Gylfi Ingvarsson, Garðavegi 5, 220 Hafnarfirði - eða hringið í Gylfa, s. 896 4001 eða Inga í s. 896 1173
Freyr Sverrisson og Elías
Atlason, form. barna- og
unglingaráðs Hauka.
Viltu léttast…3-7 kg!
Sjálfstæður söluaðili
Forever living products
Hafðu samband við Guðbjörgu
í síma 694 5863 eða á
gugga@aloelive.is