Fjarðarpósturinn - 14.05.2009, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. maí 2009
Til leigu 3 herb íbúð á Suður -
braut í Hf. Verð 65 þús. á mán. Ef
þú óskar upplýs. hafðu samband á
ibudarleiga@gmail.com.
Til leigu eldra einbýli, 5-6 herb.
142 m² á 3 hæðum. Leiguverð
148 þús. Langtímaleiga.
Uppl. í s. 861 2763.
4 manna fjölskylda óskar eftir að
leigja 4-5 herbergja íbúð í
Hafnarfirði frá og með 1. ágúst.
Erum reyklaus og ekki með
gæludýr. Uppl. í s. 867 3922 eða
egir.leifsson@gmail.com
Þriggja manna fjölskylda leitar
að 3-4 herbergja íbúð í
Hafnarfirði til langtímaleigu.
Verðhugmynd 90.000 á mánuði.
Upplýsingar í síma 8963163
Par með 2 ung börn og einn kött
óskar eftir 3-4 herbergja íbúð til
leigu í Hafnarfirði frá og með
1. ágúst, helst á Völlunum. Greiðslu -
geta 95.000 kr. á mánuði. Skilvísum
greiðslum heitið. Hafið samb. í
síma 564 3866 eða 697 4431.
Hornskrifboð. Til sölu mjög vel
með farið hornskrifborð í barna-
eða unglingaherbergi.
Verð hugmynd kr. 15 þúsund.
Upplýsingar í síma 844 0495.
Til sölu ódýr hillusamstæða,
góð hirsla. Uppl. í 848 7367.
Hjónarúm úr Svefn og heilsu til
sölu. Hvítt Queen size (150x
200cm) hjónarúm úr Svefni og
heilsu til sölu. Rúminu fylgir
yfirdýna. Verð aðeins 25.000 kr
Upplýsingar í síma 899 9272,
Borghildur.
Udzielam tlumaczen (islandzko-
polsko-islandzki) w sprawach
przyjec do pracy,w urzedach
panstwowych, w szkolach,u
dentysty, oraz w wypelnianiu
druków i dokumentów urzedo -
wych,(przydzial rodzin -
nego,ubieganie sie o finansowa
pomoc socjalna, i inne). Kontakt
pod nr tel. 693 5692.
Branda er týnd. Ef þú hefur séð
hana vinsamlega hringdu í okkur.
S. 555 1926, 844 9947 eða 858
7729. Maggý og Sæunn.
Nýr Ipod tough í rauðu hulstri
tapaðist við Snæland Staðarbergi
eða við Drekavelli. Fundarlaun.
Uppl. í s. 862 2085.
21 gíra hjól, Catic bicycle 24"
DXR 21 SP, silfurlitað m/rauðum
göflum og dempurum hvarf frá
Arnarhrauni sl. laugard.kvöld.
Finnandi hafi vinsamlega samband
í síma 565 4266 / 821 4064.
Tlumacz / Túlkur
Tapað - fundið
Húsnæði í boði
Húsnæði óskast
Til sölu
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Jón G. Bjarnason
Svo virðist sem byggingar -
yfirvöld í Hafnarfirði hafi í
nógu að snúast við að bregðast
við framkvæmdum eða að gerð -
um sem brjóta í bága við bygg -
ingarlög og reglugerðir.
Útveggur rofinn
Stjórn Húsfélagsins Mið -
vangi 41 gerir athugasemdir við
ólöglegar framkvæmdir við
íbúð í húsinu þar sem m.a. er
búið er að opna milli stofu og
svala. Viðbrögð: Skipulags- og
byggingarfulltrúi óskar eftir
teikningum sem sýna um rædd -
ar framkvæmdir, einkum hvort
breytt hafi verið burðar virki
hússins.
Girðing á lóðarmörkum
Gerð er athugasemd vegna
girðingar á lóðarmörkum við
Miðvang sem ekki hefur verið
sótt um leyfi fyrir né fengið
samþykki frá nágranna. Við -
brögð: Skipulags- og bygg -
ingar fulltrúi bendir á að girð -
ingin samræmist ekki gr. 67 í
bygg ingarreglugerð og ber eig -
endum að sækja um leyfi fyr ir
hana innan fjögurra vikna eða
fjar lægja hana að öðrum kosti.
Ólögleg búseta
Borist hafði vitneska um
ólöglega búsetu að Stapahrauni
2. Hafði skipulags- og bygg -
ingarfulltrúi gert athugasemd
8.4.2009 og væri búseta í hús -
inu enn að tveimur vikum
liðnum yrðu lagðar dagsektir á.
Viðbrögð: Skipulags- og bygg -
ingarfulltrúi óski aftur eftir
upplýsingum innan tveggja
vikna og verða ekki brugðist
við því og enn sé búið í húsinu
muni skipulags- og bygg ingar -
ráð gera tillögu til bæjarstjórnar
um dagsektir!
Hættulegur frágangur við
Drangahraun
Athugasemdir bárust vegna
Drangahrauns 3 þar sem grafið
hefur verið án leyfis og og eins
og sést á meðfylgjandi mynd er
frágangurinn með ólíkindum
og stórhættulegur. Viðbrögð:
Skipulags- og byggingarfulltrúi
óskar eftir upplýsingum frá lóð -
arhafa Drangahrauns 3 varð -
andi frágang lóðarinnar innan
tveggja vikna!
Hafnarfjarðarbær í klúðri?
Á bæjarstjórnarfundi kom til
umræðu lóðin Óseyrarbraut 29.
Sú lóð finnst á skrá Fast eigna -
skráningar en þar er engin
fasteing skráð þó þar hafi síðan
á síðasta ári staðið 2800 m² hús.
Þar hafa einhverjir brugðist
skyldum sínum.
Byggingaryfirvöld í baráttu
Ólögleg búseti, byggt án leyfa, hættulegar lóðir
80 ára
Málfríður Linnet
verður 80 ára
sunnudaginn 17. maí.
Af því tilefni býður hún vinum
og vandamönnum til samsætis
í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju
á afmælisdaginn kl. 15-17.
Gjafir vinsamlegast afþakkaðar.
Nú stendur yfir undirskrifta -
söfn un til að mótmæla lagningu
nýs Álftanesvegar norðar í
hraun inu en núverandi veg stæði
er. Þá er á aðalskipulagi Garða -
bæjar, fyrirhuguð framlenging
Vífils staða v egar þvert
yfir Gálga hraun og
yfir á Garðaholt, til að
þjóna þar áformaðri
7-8 þúsund manna
íbúabyggð. Verði af
þessum fram kvæmd -
um öllum, verður fátt
um fína drætti framar
í Gálgahrauni og
Garða hrauni. Á þess -
um slóðum dróg
meist ari Kjarval marga fína
drætt ina og svo var um ýmsa
fleiri málara s.s. Eirík Smith.
Merkastar eru þó fornu þjóð -
leiðirnar sem liggja um hraunið
þvert og langt. Sagan og lífs -
hættirnir er sem skráð í nöfn
þeirra s.s.: Fógetagata, Saka -
manna stígur, Kirkjustígur, Stekkj -
ar gata og Móslóði. Háir sem lágir
áttu erindi að Bessa stöðum og
beint á móti Bessa stöðum gnæfa
Gálgaklettarnir: Vesturgálgi,
Mið gálgi og Austurgálgi. Vel
hef ur mátt greina sakamennina
dingla í gálganum heiman af
hlað inu á Bessastöðum. Ekki
tókst þó að góma Arnes Pálsson
útilegumann og þjóf, sem tókst
að leynast í hrauninu, enda býr
það yfir mörgum vistarverum.
Mörgum ofbauð þegar í ljós
kom að álfakletturinn; Ófeigs -
kirkja við Engidalsstíg, ætti að
fara undir Álftanesveginn nýja.
Þar skammt frá er, Grænhóll,
óráðin rúst og gæti þess vegna
verið forn vegakapella. Hér
bland ast sagan og dulúðin vel
sam an við hrikaleik hraunsins og
allan gróðurinn í lautum og
glufum. Göngumenn eiga sér hér
draumaland til útiveru og öllum
er hollt að slaka á utan við allan
hávaðan frá okkur mannfólkinu
og tækjum okkar og tólum. Er
ekki hægt að eiga
þetta hraun áfram
laust við vegi, malbik
og bíla. Og svo er
Gálga hraunið inni í
miðri byggð.
Nú hefur Hilmar
Örn Hilmarsson, alls -
herj ar goði fært dreypi -
fórn við Ófeigs kirkju
og eftirfarandi kveðju
fengu göngumenn frá
Vigdísi Finn boga dótt ur, fyrrver -
andi for seta, svohljóðandi: „Ég
hef fylgst grannt með Gálga -
hrauns áætlunum. Mér er hraunið
afar kært og hef lónað þar um
göngu leiðir á löngum Bessa -
staðaárum, farið í nestisferðir
með krakka að leita berja og
stend auðvitað heils hugar með
ykkur um að varð veita sem best
þessa náttúru perlu.“
Tónlistarmaðurinn, frum kvöð -
ullinn og hraunavinurinn; Gunn -
steinn Ólafsson af Álftanesi,
hefur að undanförnu farið
fremst ur í flokki í baráttunni
gegn fyrirhugaðri vegarlagningu
og hrundið af stað undir skrifta -
söfnun gegn lagningu Álftanes -
vegar á nýjum stað. Allir eru
hvattir til að vera með en þó eng -
ir fremur en nágrannar Gálga -
hrauns í Garðabæ, Hafnarfirði og
Álftanesi. Ég skora á þig lesandi
góður, að slást í hópinn.
Undirskriftum er safnað á:
www.alftanesvegur.is.
Höfundur situr í stjórn
Hrauna vina og búsettur í
Hafnarfirði.
Gálgahraun og Álftanesvegur
Reynir
Ingibjartsson
Nú er skemmtilegri hand -
bolta vertíð lokið. FH-ingar
tryggðu stöðu sína í efstu deild
bæði karla og kvenna og Haukar
urðu deildarmeistarar
kvenna og karla og
luku tíma bilinu sem
Íslands meistarar í
karla flokki. Meistara -
flokk ur Hauka í
karla flokki byrjaði
vertíðina með því að
taka þátt í Evrópu -
keppninni og stóðu
sig vel. Konurnar sigr -
uðu á opna Reykja -
víkurmótinu og urðu deild ar -
meistarar. Hauka strákarnir urðu
bæði deildar meistarar og
Íslands meist arar, en FH-ingar
komu í veg fyrir þrennuna hjá
þeim með því að slá þá út úr
bikar keppninni.
Í úrslitarimmu Íslandsmótsins
öttu Haukar kappi við frænd -
liðið úr KFUM, Val, og sigruðu
3-1. Mikil umræða varð um
framgöngu varnarmanna í þeirri
rimmu og rauð spjöld á leik -
menn fyrir grófan leik. Af því
til efni rifjaði ég upp næstum
fjörutíu ára sögu mína við kom -
andi handbolta í Hafnarfirði.
Sterkur varnarleikur hefur átt
und ir högg að sækja alla tíð að
mínu mati. Sterkir varnarmenn
eins og Þorbjörn Karlson í Val
(mulningsvélin), Ragnar Jóns -
son og Gils Stefánsson í FH,
bræðurnir Bjarni Hafsteinn og
Svavar og Vignir Svavarsson í
Haukum og nú upp á síðkastið
þeir ágætu eyjamenn Arnar,
Kári Kristján og Gunn ar Berg
ásamt fleiri góðum
hand bolta mönnum
hafa oft þurft að lúta í
lægra haldi fyrir
spjalda gleði og dóm -
greind arleysi dómara,
að mínu viti.
Mér finnst halla á
varnarmenn í dóm -
gæsl unni. Sóknar -
mönn um leyfist að
keyra á fullu inn í vörn
andstæðinganna og ryðja þeim
inn í vítateiginn og upp skera oft
að launum brott rekstur á
varnarmenn and stæð inganna og
vítaköst þegar að mínu mati væri
allt eins hægt að dæma ruðning á
sóknar menn ina.. Mér finnst að
HSÍ ætti að taka upp reglu enska
knatt spyrnu sam bandsins og leyfa
notkun mynd banda til þess að
skera úr um rétt lætingu rauðra
spjalda. Í ame ríska fótboltanum
er leyft að nota þessa reglu í
leiknum sjálf um.
Að lokum þakka ég hand -
knattleiksfólki okkar Hafn firð -
inga fyrir skemmtilegt leiktíma -
bil og vonandi gengur þeim allt
í haginn á næstu leiktíð þar sem
margir knáir leikmenn hverfa á
brott en ungir og efnilegir fá að
spreyta sig í staðinn.
Höfundur er fv.
flugumferðarstjóri.
Handboltinn í sumarfrí
Varnarmenn í sviðsljósinu
Hermann
Þórðarson
Auglýsingasími Fjarðarpóstsins er 565 3066
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Tvær þrílitar 8 vikna ótrúlega
fallegar læðusystur sem vantar
góð heimili fást gefins.
Uppl. í s. 555 4438 eða 699 4438.
Húsnæði í boði