Fjarðarpósturinn - 14.05.2009, Blaðsíða 2
Okkar stúlka, Hafnfirðingurinn Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir, stóð sig frábærlega í
undankeppni Eurovision og Hafnfirðingar og
aðrir landsmenn hvort sem þeir þoldu Euro -
vision eða ekki hljóta að hafa fyllst stolti að
sjá og heyra þessa ungu stúlku syngja íslenska
lagið hnökralaust. Með gleðibros á vör hóf
hún sönginn og fallegasta lag kvöldsins
hljómaði í salnum. Hvað svo sem líður gengi
lagsins á laugardaginn skiptir ekki öllu, við getum verið stolt af
okkar framlagi og Jóhönnu Guðrúnu.
Við erum búin að fá nýja ríkisstjórn. Niðurröðun á ráðherra -
stólana setur mig í þá stöðu að spyrja sig af hverju þurfti
„fagmann“ í dómsmálaráðuneytið? Hvað með hin ráðuneytin?
Hingað til hefur allt gerst á hraða snigilsins og ef raunhæf ráð til
bjargar heimilunum og atvinnulífunu líta ekki dagsins ljós
fljótlega verða menn að fara að nota aðferð Jóhönnu Guðrúnar, að
brosa af gleði og horfa björtum augum á framtíðina. Gengi
hlutabréfa og gjaldeyris sem og fasteignaverð eru öll háð huglægu
mati, væntingum. Veltum fyrsta steininum og gefum okkur trú á
að það sé í lagi að kaupa og selja fasteignir. Fjölmargir bíða,
jafnvel með peninga í vasanum en þora ekki að nota þá vegna
óvissunnar sem allt er að drepa.
Það er hlutverk ríkisstjórnarinnar í samstarfi við alla þingmenn
að koma okkur út úr þessari óvissu og nú er ekki tími til að stunda
kosningabaráttu. Nú er tími samstarf og aðgerða, bæði í orði og í
verki. Þetta á líka við í sveitarstjórnum en nú er allt útlit fyrir að
persónukjör verði í boði og því mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa að
vera jákvæðir. Enginn vill neikvæðni og svartsýni núna.
Guðni Gíslason.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. maí 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudaginn 17. maí
Fjölskylduhátíð kl. 11
í umsjá sr. Kjartans Jónssonar og sr. Gunnþórs Þ. Ingasonar
og leiðtoga skólans. Barnakórinn syngur undir stjórn
Helgu Loftsdóttur og Önnu Magnúsdóttur.
Grillveisla á kirkjutorgi og í Strandbergi
Poppmessa kl. 20
fyrir fermingarbörn og fjölskyldur þeirra.
Prestar sr. Þórhallur Heimisson og sr. Gunnþór Ingason.
Hljómsveitin Gleðigjafar syngur og leikur.
Eftir poppmessuna er tekið við skráningu fermingarbarna
sem fermd verða vorið 2010.
Krýsuvíkurkirkja
Messa kl. 14
Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason.
Kirkjukaffi í Sveinshúsi á eftir.
Sætaferð frá Hafnarfjarðarkirkju kl.13
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 849-6827
Prjónakaffi
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju stend -
ur fyrir „prjónakaffi“ í Vonar höfn,
Hafnarfjarðarkirkju kl. 20-22 í kvöld
fimmtudag. Mætið með handa -
vinnuna eða bara komið og spjallið.
Kaffi á könnunni. Allir eru velkomnir.
Skyggnilýsing í Gúttó
Þórhallur Guðmundsson, miðill
verður með skyggnilýsingu í kvöld,
fimmtudag kl. 20.30 í Gúttó við
Suðurgötu á vegum Sálarrann sókn -
arfélags Hafnarfjarðar. Miðasala við
innganginn.
Fjórir kórar á tónleikum
Hljómur frá Akranesi, Vor boðar úr
Mosfellsbæ, Eldey úr Reykja nesbæ
og Gaflarakórinn úr Hafnarfirði syngja
á tónleikum í Víðistaðakirkju á laugar -
daginn kl. 16. Kórarnir syngja lög úr
ýmsum áttum bæði íslensk og erlend
og munu örugglega syngja vorið og
sumarið í hjörtu þeirra sem koma að
hlusta. Frítt er á tónleikana.
Framhaldsprófstónleikar
Á mánudaginn kl. 20 heldur Haukur
Ísfeld Ragnarsson tónleika í Tón -
listarskólanum - Hásölum en hann er
að ljúka námi í píanóleik þar sem
Sigurður Marteinsson hefur verið
aðalkennari hans.
Á miðvikudaginn kl. 20 heldur Andri
Eyjólfsson tónleika í Tónlistar skól -
anum - Hásölum en hann er að ljúka
námi í gítarleik þar sem Þórarinn
Sigurbergsson hefur verið aðal kenn -
ari hans. Allir eru velkomnir á tón -
leikana.
Nýjar sýningar í Hafnarborg
Á laugardaginn kl. 15 verða opnað -
ar tvær sýningar í Hafnarborg, Vættir,
verk eftir Jónínu Guðnadóttur og
sýning Guðnýar Guðmundsdóttur.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Víðistaðakirkja
sunnudagurinn 17. maí
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
Stúlknakór Víðistaðakirkju syngur
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
sóknarprestur.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
FJARÐARPÓSTURINN
auglysingar@fjardarposturinn.is
Auglýsingasími:
565 3066
Þessi unga dama kom færr -
andi hendi með 1.221 kr. og gaf
Rauða krossinum. Hún heitir
Júlía Sól Káradóttir og fær
bestu þakkir fyrir.
Hélt tombólu
Hverfahátíð
á Völlunum 21.maí
Ákveðið var að endurtaka
hverfa hátíð á Völlunum sem
heppnaðist með ágætum á liðnu
ári. Með slíkum viðburði fá
íbúar hverf isins tækifæri til að
kynnast betur nágrönnunum og
styrkja vonandi þá tilfinningu
að hverfið er samfélag sem
þarfn ast þess að allir standi
saman. Björgvin Frans og Jói
úr Stundinni okkar ætla að
heilsa upp á mannskapinn sem
og bæjarstjórinn Lúðvík Geirs -
son. Pollapönk heldur uppi
fjörinu, skátarnir mæta með
glæsi legan klifurvegg og 8.
bekk ur Hraunvallaskóla grillar
pylsur og selur drykki á vægu
verði svo eitthvað sé nefnt.
Hreinsa umhverfið og skreyta
húsin með litum
Íbúar hverfisins eru hvattir til
þess að hreinsa til og skreyta
sjálfa sig og híbýli sín í tilefni
dagsins í ákveðnum litum.
Vellir sem byrja á A- B (t.d.
Berjavellir) eru gulir. Vellir D-
E eru rauðir. Vellir F eru
grænir. Vellir G-K eru bláir.
Best skreytta gatan hlýtur
nafnbótina „Skemmtilegasta
gatan 2009“.