Fjarðarpósturinn - 14.05.2009, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. maí 2009
Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is
Demparar
SÖLUTJÖLD
Á 17. JÚNÍ
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að hafa sölutjöld á
17. júní geta sótt um söluleyfi til íþrótta- og
tómstundanefndar Hafnarfjarðar, Mjósundi 10,
netfang: ith@hafnarfjordur.is
Söluleyfum er ekki úthlutað til einstaklinga.
Leyfið gildir fyrir sölu bæði á dagskemmtun og
kvöldskemmtun.
Umsóknum ber að skila eigi síðar en 8. júní kl.
15.00 á Mjósund 10, en þá verður dregið um
staðsetningu sölutjalda og er aðilum boðið að
vera viðstaddir.
Þjóðhátíðarnefnd
Á meðan sumir gengu kröfu -
göngu verkalýðsins kepptu
vaskir eldri sundmenn sín á
milli á Íslandsmóti garpa, sund -
manna 25 ára og eldri.
Keppt var í Kópavogslaug og
stóðu hafnfirsku sundmennirnir
sig best og hlutu Íslands meist -
ara titilinn í kvenna- og karla -
flokki og þá að sjálfsögðu
saman lagt líka.
Yfir 100 sundmenn kepptu
og er það til marks um mikla
grósku í garpasundinu en aldrei
hafa jafnmargir keppt á
Íslandsmóti garpa eins og nú.
Alls voru 26 Íslandsmet slegin
og 10 af þeim voru SH-inga:
Konur
800 m skriðsund 55-59:
Ingibjörg Svala Ólafsdóttir SH
16:11,62. 50 m flugsund 35-
39: Elín Sigurðardóttir SH
32,95. 200 m bringusund 45-
49: Birna Jóhanna Ólafsdóttir
SH 3.23,53.
Karlar
50 m skriðsund 40-44:
Gunngeir Friðriksson SH
27,25. 800 m skriðsund 30-34:
Heimir Örn Sveinsson SH
9:22,74. 50 m flugsund 40-44:
Ingólfur Gauti Arnarson SH
30,34. 50 m flugsund 55-59:
Guðjón Guðnason SH 33,87.
200 m skriðsund 30-34: Heim -
ir Örn Sveinsson SH 2:05,68.
100 m skriðsund 40-44: Gunn -
geir Friðriksson SH 1:01,53.
200 m fjórsund 40-44: Ingólf -
ur Gauti Arnarson SH 2:40,80.
73 ára og bætir sig
Elsti sundmaðurinnvar Óli G.
H. Þórðarson í SH og stóð hann
sig með mikilli prýði og bætti
m.a. tíma sinn. Hann keppti í 9
greinum samtals og fékk gull í
þeim öllum.
Okkar garpar bestir í sundi
SH Garpar sigruðu þrefalt á Íslandsmótinu
Sannkölluð garpastunga. Hér
stingur Guðjón Guðnason sér
til sunds og setur Íslandsmet í
50 m flugsundi. Ekki eru veitt
verðlaun fyrir gusuganginn !
Stelpurnar í SH urðu í fyrsta sinn Íslandsmeistarar garpa. Hér
eru nokkrar þeirra á verðlaunapalli ásamt öðrum sundkonum.
Nokkrir SH-inganna á verðlaunapalli, nokkuð heimavanir þar.
Óli (73) sló mörgum mun
yngri mönnum við.
L
jó
s
m
y
n
d
ir
:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Með tilkomu nýju Ásvalla -
laugar innar gefst á ný mögu -
leiki á að stunda sundpóló hjá
SH en síðast var keppt svo
vitað sé á áttunda áratuginum.
Sundpólólið SH æfir nú þrisvar
í viku og er gott samstarf við
Sundknattleiksfélag Reykja -
vík ur en liðin leiddu saman
hesta sína á sunnudaginn í
Ásvalla laug. Eftir góða byrjun
SKR sem leiddu í hálfleik tóku
SH-ingar öll völd í lauginni og
sigruðu með 15 mörkum gegn
11. Liðin keppa aftur 31. maí
að loknu Stórmóti SH.
SH keppir á ný í sund -
póló eftir langt hlé
Liðsmenn SH kampakátir eftir sigurinn.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Sl. föstudag var opnað nýtt
kaffihús að Strandgötu 29, í
gamla Sjálfstæðishúsinu. Það
eru hjónin Guðmundur Örn
Guðmundsson og Linda Hrönn
Eggertsdóttir sem eiga og reka
hið nýja kaffihús en Linda er
jafnframt veitingastjóri.
Húsinu er haldið eins og það
var og ættu margir að þekkja
sig þar innandyra en nú er boð -
ið upp á kaffi og gómsætar kök -
ur og bakkelsi, súpu, brauð og
salat. Segjast þau Linda Hrönn
og Guðmundur mjög ánægð
með við tökurnar og bjóða gesti
velkomna. Opið er á Kaffi
Hafn ar firði kl. 9-23 alla daga.
Nýtt kaffihús í miðbænum
Kaffi Hafnarfjörður fær góðar móttökur
Linda Hrönn og Guðmundur Örn fyrir utan Kaffi Hafnarfjörð.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n