Fjarðarpósturinn - 16.07.2009, Síða 5
Competo – Jafningjafræðsla
Hafnar fjarðar er verkefni á
veg um Vinnuskóla Hafnar -
fjarð ar sem hóf sitt fimmta
starfs ár í sumar. Í jafningja -
fræðslunni starfa 9 ungmenni á
aldr inum 17-20 ára við að
fræða starfsmenn Vinnuskólans
um fordóma og einelti.
Markmið fræðslunnar er að
vinna gegn hvers kyns for -
dómum í samfélaginu, en lögð
hefur verið sérstök áhersla á
kyn þáttafordóma, útlendinga -
hatur og fordóma gagnvart
sam kyn hneigðum og fötluðum.
Fjallað er um staðalmyndir ým -
issa hópa og hvernig þær móti
hugmyndir okkar um annað
fólk áður en við kynnumst því.
Að sögn Olgu Eir Þórarins -
dóttur og Þorsteins Kristins -
sonar, verkefnastjóra Competo
hefur hver og einn rétt til þess
að vera metinn að eigin verð -
leik um en ekki dæmdur fyrir -
fram út frá ákveðnum hóp sem
hann tilheyrir.
„Competo fjallar einnig um
einelti og mikilvægi þess að
allir skilji hve alvarlegt það er.
Lögð er áhersla á að aldrei eigi
að umbera einelti og að allir
eigi rétt á að líða vel í sínu um -
hverfi, hvort sem það er í skól -
anum eða annars staðar,“ segja
Olga og Þorsteinn.
„Þá fjöllum við sérstaklega
um samskipti á internetinu og
þá ábyrgð sem fylgir skrifum
og myndbirtingum á netinu.
Eftir að eitthvað er komið á
netið verður það ekki aftur
tekið. Ein elti á netinu er stórt
vanda mál en oft á tíðum
ósýnilegt. Þegar krakkar verða
fyrir að kasti á bloggsíðum,
Facebook eða öðrum netsíðum
taka þau það ekki síður inn á
sig heldur en ef eineltið á sér
stað annars staðar. Engu að
síður hefur fólk tilhneigingu til
að líta svo á að internet skrif
séu ekkert til að taka alvarlega.
Hreinskilin um ræða um þessi
mál er lykilatriði enda vilja
flestir vel.“
Að sögn Olgu og Þorsteins er
markmið Competo að stuðla að
já kvæðum og fordómalausum
sam skiptum þar sem fólk kem -
ur fram við hvert annað af virð -
ingu og skilning. Þannig líði
fólki betur með sjálft sig og
samfélagið í kringum sig.
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 16. júlí 2009
BYGGINGADEILD VERSLANIR VÉLADEILD ÞJÓNUSTUDEILD
FESTINGAMEISTARI Í 20 ÁR
Unnið gegn fordómum
Competo – Jafningjafræðsla Hafnarfjarðar
Þátttakendur í Competo verkefninu.
Reykjavíkurvegi 60 • sími 555 2887 • www.musikogsport.net
ÚTSALA • ÚTSALA • ÚTSALA • ÚTSALA • ÚTSALA • ÚTSALA
30-70% afsláttur
F
ja
rð
a
rp
ó
s
tu
ri
n
n
0
8
0
7
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
rh
ú
s
ið
e
h
f.