Fjarðarpósturinn - 12.11.2009, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. nóvember 2009
Við hvetjum til verslunar í Hafnarfirði! Hvar auglýsir þú?
w w w . f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
565 3066
auglysingar@fjardarposturinn.is
Hópur af ungum og hressum
Hafn firðingum tók þátt í ung -
mennaskiptum við framhalds -
skólanemendur frá Portúgal nú
á haustdögum. Í september
ferð uðust hafnfirsku krakkarnir
til borgarinnar Porto í Portúgal
til að heimsækja portúgölsku
ungmennin og læra af þeim um
land og þjóð. Portú gal -
arnir endu rguldu
síðan heim sókn -
ina í sein ustu viku
og tóku hafn -
firsku ungmennin
á móti þeim.
Krakkarnir fóru með þau til
Vestmanneyja, Gullna hringinn
og í skoðunarferð um Reykja -
vík. Bláalónið var heimsótt og
fræðst var um notkun heita
vatns ins í Hellisheiðarvirkjun.
Farið var í fjallgöngu og hella -
ferð og margt fleira. Portú gölsku
krakkarnir fengu því að kynnast
ís lenskri náttúru
og menn ingu
lands ins.
Lokakvöldið undirbjuggu
krakk arnir síðan kvöldverð á
Gamla bókasafninu og fengu
hafn firska trúpadora til þess að
koma og spila fyrir þau og
kynna íslenska tónlist fyrir
portú gölsku krökkunum. Það
voru allir sammála um að skipt -
in hefðu heppnast einstaklega
vel og voru allir ánægðir með
ævin týrið.
Gamla bókasafnið og Flens -
borgarskólinn stóðu að skipu -
lagn ingu en verk efn ið var
styrkt af Evrópu unga
fólksins, sjá
n á n a r
www.euf.is.
Nemendaskipti við Portúgal
Hóparnir á toppi Helgafells.
Hafnarfjarðardeild Rauða
krossins biðlar til allra sem
vettlingi geta valdið til að
aðstoða við að útbúa fatapakka
fyrir ungbörn í Hvíta-Rússlandi
fyrir jólin. Ef fólk er til að
leggja til prjónaðar húfur,
peysur, sokka og teppi þá er það
þegið með þökkum, Einnig er
hægt að sauma buxur og peysur
t.d. upp úr gömlum flísteppum
sem fólk er hætt að nota.
Fatnaðurinn er ætlaður fyrir
börn 1. árs og yngri, þegar hafa
safnast um 1.000 pakkar en enn
vantar 1.500 pakka í viðbót.
Hver pakki mun innihalda: 2
peysur, 2 samfellur eða nærföt,
4 taubleiur, 1 buxur, 1 húfu, 1
teppi (stærð 80x80 cm), 2 pör
af sokkum og 1 handklæði.
Prjónafélag hafnfirskra
kvenna ætlar að taka þátt í
þessum verkefni með Rauða
krossinum og prjóna/sauma á
litlu börnin. Prjónað verður á
laugardaginn kl. 10-20 í Gamla
bókasafninu við Mjósund –
Prjónað verður til góðs!
Mikil vinna hefur verið lögð í
undirbúning og margir koma að
verki. Istex gaf lopa, Satúrnus
heildverslun gaf ullargarn, O.
Johnson & Kaaber gaf kaffi
fyrir daginn og Bæjarbakari
ætlar að gefa brauð og kökur.
Fjölmargir listamenn ætla að
skemmta prjónurunum við
vinnu sína: Magnús Kjartans -
son tónlistarmaður, Edda
Björg vinsdóttir fer með gam -
anmál, Kristján Hreinsson
skáld les, Eyrún Jónsdóttir leik -
kona les ljóð, Hjörleifur Vals -
son fiðluleikari leikur og Beggi
og Pacas mæta á staðinn. Finna
má upplýsingar um hópinn á
Facebook „Félag hafn firskra
prjónara“.
Prjóna og svara kalli
frá Hvíta Rússlandi
Prjónað kl. 10-20 á laugardaginn
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Leikir FH og Hauka í hand -
bolta karla hafa ávallt vakið
athygli enda er keppt um heiður
ekki síður en sigur. Leikurinn á
sunnudag var hraður og
skemmtilegur og áhorfendur
vel með á nótunum í fullu húsi
á Ásvöllum. FH var sterkari í
fyrri hálfleik og leiddi 14-11 í
hálfleik. Haukar tóku sig vel á í
síðari hálfleik og sigu yfir og
sigruðu að lokum með 3 mörk -
um, 29-26.
Haukar náðu í síðari hálfleik
að styrkja vörnina mjög á sama
tíma og og þeir náðu mörgum
hraðaupphlaupum sem skiluðu
marki.
Með sigrinum tylltu Hauk -
arnir sér á topp deildarinn í
fyrsta sinn með 7 stig en FH sit -
ur eftir í þriðja sæti með 5 stig.
Evrópuleikir á Ásvöllum
FH mætir Gróttu í kvöld í
Kaplakrika en Haukar leika
Evrópuleiki um helgina við
Pler KC á Ásvöllum á laugar -
daginn og á sunnudag.
Aron Kristjánsson, þjálfari
Haukar, segir leikina leggjast
vel í sig, Pler hafi verið í lægð
undanfarið og m.a. hafi þjálf ar -
inn hætt fyrir skömmu. Haukar
reikna með að tefla fram sínu
sterkasta liði og telur Aron
félagið eiga góða mögu leika á
að komast áfram.
Fyrri leikurinn er á laugar -
daginn kl. 16 og sá seinni kl. 18
á sunnudag. Hægt verður að
kaupa miða á báða leikina fyrir
aðeins 1500 kr.
Haukar höfðu betur í Hafnarfjarðarslag í handbolta
FH hafði komist 4 mörkum yfir í upphafi síðari hálfleiks — Haukar leika tvo Evrópuleiki á Ásvöllum á laugardaginn
Sigurbergur Sveinsson skoraði 7 mörk í leiknum gegn FH
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n