Fjarðarpósturinn - 12.11.2009, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 12. nóvember 2009
TILLAGA AÐ BREYTINGU
Á AÐALSKIPULAGI
HAFNARFJARÐAR 2005-
2025, SUÐURHÖFN
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi
sínum þann 13. október 2009, að auglýsa
tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnar -
fjarðar 2005 - 2025 fyrir Suðurhöfn í Hafnar -
firði, skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 m.s.br.
Í breytingartillögunni felst að megin
stofnbraut hafnarsvæðisins, Óseyrarbraut,
verði felld út af aðalskipulaginu í þeirri
mynd sem hún er sýnd þar og sett inn á
aðalskipulagið í þeirri mynd sem hún er í
dag. Tillaga að deiliskipulagi svæð isins er
auglýst samhliða tillögunni.
TILLAGA AÐ BREYTTU
DEILISKIPULAGI
SUÐURHAFNAR,
ÓSEYRARBRAUT 28-33
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar,
samþykkti á fundi sínum þann 20. október
2009, að auglýsa til kynningar tillögu að breyttu
deiliskipulagi Suðurhafnar, Óseyrarbraut 28-33,
skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin felst í að gert er ráð fyrir nýrri
lóð norðan við Óseyrarbraut 31 með
nýtingarhlutfall 0.3. Afmörkuð er lóð fyrir
fráveitutank og sett kvöð á Óseyrarbraut
29 um aðkomu að honum. Nýtingarhlutfall
lóðar nr. 28 er hækkað í 0.4 og bygg ingar -
reitur stækkaður.
Aðalskipulagið og deiliskipulagið verða til sýnis í
þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6,
frá 12. nóvember – 11. desember 2009. Hægt
er að skoða aðalskipulags- og deiliskipu -
lagstillögurnar á vef Hafnarfjarðarbæjar
www.hafnarfjordur.is Nánari upplýsingar eru
veittar á skipulags- og byggingarsviði.
Þeir sem telja sig hagsmuna eiga að gæta við
aðalskipulagið eða deiliskipulagið er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við breytingarnar
og skal þeim skilað skriflega til skipulags- og
byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar
en 28. desember 2009. Þeir sem ekki gera
athugasemdir við breytingarnar teljast
samþykkir þeim.
Skipulags- og byggingarsvið
Hafnarfjarðar
Menntamálaráðuneytið hefur
frá árinu 1992 staðið að rann -
sókninni Ungt fólk. Í febrúar á
þessu ári voru spurn -
ingalistar lagðir fyrir
nemendur og fimmtu -
daginn 22. októ ber
voru síðan kynntar
nýjar niðurstöður úr
svörum rúmlega
22.000 nemenda úr 5.
- 10. bekk grunnskóla
af landinu öllu. Hag -
nýtt gildi ran nsókn -
anna er mikið um hagi
og líðan barna og
unglinga. Ítrekað sýna rann -
sóknarniðurstöður að nemendur
sem stunda reglulega íþróttir og
líkamsrækt líður betur, reykja
síður, eru ólíklegri til að nota
vímuefni og taka þátt í nei -
kvæðu atferli en þeir sem stunda
ekki íþróttir.
Áralangar rannsóknir hafa
einnig sýnt að sjálfsmynd barna
sé að miklu leyti mótuð í gegn -
um þátttöku í félags- og tóm -
stundastarfi þeirra. Þátttaka í
skipulögðu starfi í umsjón
ábyrgra aðila er talin hafa upp -
byggileg áhrif á líf barna og
ungl inga. Mikill
meiri hluti for ráða -
manna ungl inga í 9.
og 10. bekk eða um
94% hvetur þau til
heil brigðs lífsstíls.
Hlut fall nemenda
sem segjast aldrei
stunda íþróttir með
íþróttafélagi hækkar
með aldri og er orðið
49% hjá 10. bekk ing -
um og af þeim eru
stúlkurnar í meiri hluta. Um 32%
nem enda í 10. bekk stundar
íþróttir með íþróttafélagi fjórum
sinnum í viku eða oftar, drengir
eru fjölmennari en stúlkur.
Nem endum í 10. bekk sem æfa
íþrótt ir með íþróttafélagi fjórum
sinnum eða oftar í viku fjölgar
bæði hjá stúlkum og drengjum
milli áranna 2006 til 2009. Að
sama skapi fækkar báðum
kynjum í 10. bekk sem svara að
þau æfi nær aldrei íþróttir með
íþróttafélagi á milli áranna 2006
til 2009.
Gefur þetta vísbendingu um að
dregið hafi úr brottfalli elstu
nemenda grunnskólans úr skipu -
lögðu íþróttastarfi undan farin
þrjú ár og ber að fagna því. Þeir
nemendur í 9. og 10. bekk sem
hafa einhvern tíma hætt að
stunda íþróttir með íþróttafélagi
gáfu upp í 82% tilfella að þeir
hefðu misst áhugann, tímaleysi
var önnur helsta ástæðan sem
nefnd var, en 53% nemenda kvað
það hafa valdið brotthvarfi þeirra.
Með þessar rannsóknarniður -
stöður í höndunum er full
ástæða til að hvetja þjálfara
íþrótta félaga, iðkendur og for -
ráðamenn til að kanna betur
hvað sé hugsanlega hægt að
gera til að viðhalda áhuga
íþrótta iðkenda sem lengst bæði
til að seinka og minnka brottfall
unglinga úr skipulögðu íþrótta -
starfi.
Höfundur er framkvæmda -
stjóri Íþróttabandalags
Hafnarfjarðar.
Áhugamissir og tímaleysi
Helstu ástæður brottfalls úr skipulögðu íþróttastarfi unglinga
Elísabet
Ólafsdóttir
Sundlaugar Hafnarfjarðar
í samstarfi við Sundfélag Hafnarfjarðar
kynna sundátak fyrir almenning
Sundátakið hefst á sundlaugarbakkanum í Ásvallalaug
í kvöld kl. 19.30.
Sundþjálfari frá SH kynnir leiðir til að gera sundiðkun að
heilsurækt með fjölbreyttu og skemmtilegu æfingakerfi.
Allir velkomnir.
Á föstudaginn kl. 20 verður
Guðmundur Pálsson, bassa -
leikari í Fríkirkjunni með tón -
leika þar sem hann flytur eigið
efni í „kántrí-stíl“ með aðstoð
nokkurra snillinga. Þeir sem
ætla að spila með honum eru
bræðurnir Örn og Jón Kr.
Arnarsynir, bræðurnir Ævar og
Örvar Aðalsteinssynir, Gestur
Pálmason, slagverk og Kristinn
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Lands bjargar leikur á munn -
hörpu.
Efnisskráin samanstendur af
lögum og textum sem Guð -
mund ur hefur nýlega gert í
bland við gamalt efni, s.s.
gamla skátamótssöngva en
Guðmundur er mikill skáti eins
og reyndar allri þeir sem leika
með honum á föstudag..
Yfirskriftin er Kvöldstund,
Guðmundur Pálsson & félagar
enda verða tónleikarnir í léttum
dúr, örlítið spjall um daginn og
veginn, tilgang lífsins og
eitthvað fleira sem fær fólk til
umhugsunar.
Frítt er inn.
Kvöldstund - tónleikar í Fríkirkjunni
Guðmundur Pálsson og félagar leika létt lög á opnum tónleikum