Fjarðarpósturinn - 12.05.2011, Síða 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. maí 2011
Lyngbergi 39b
(áður Hjallahrauni 8)
Tek að mér að bólstra og
klæða eldri minni húsgögn.
Uppl. í síma 897 6666
húsnæði í boði
Einbýlishús, 3ja hæða til leigu í
miðbæ Hfj. Svefnherb; 3 - 4.
Leigutími allt að ári. Áhugasamir
sendi nafn og símanr. á netf; einbyli.
hafnarfjordur@gmail.com
Til leigu raðhús í Áslandi í
Hafnarfirði. Ca 170 m², 4-5 herb
raðhús. Uppl. í síma 6953354 eða
bjossith@talnet.is
Frábær íslenzk gisting á Ítalíu
www.holidayinpiedmont.com
húsnæði óskast
3-4 herb íbúð óskast í skólahverfi
Víðistaðaskóla. gsm. 895 5620.
Mjög traustur aðili óskar eftir að
leigja fullbúið húsnæði með
húsgögnum og húsbúnaði í 1-2
mánuði frá 1. júní n.k. Vinsamlega
sendið upplýsingar á leiga220hfj@
gmail.com.
5 manna fjölskylda sem er búin að
selja ofan af sér vantar 4-5 her-
bergja íbúð á leigu í göngufæri við
Víðistaðaskóla. Helst í kringum 25.
júní. Erum reyklaus og reglusöm.
Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum í gegnum greiðslu-
þjónustu heitið. Uppl. í mbg@
akmennt.is eða í síma 847 2320 /
555 4418. Margrét og Gunnar
til sölu
Nýtt Honda 1,5 ha fjórgengis
sláttuorf til sölu. Sanngjarnt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
óskast
Óskum eftir reiðhjóli handa 5 ára
dreng. Sendið póst á thora.
arnorsdottir@gmail.com eða hringið
í síma 869 7838.
þjónusta
Heimilistækjaviðgerðir. Geri við
þvottavélar og fl. heimilistæki.
Kem í heimahús. Sama þjónusta
um helgar. Uppl. í s. 772 2049.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Uppl. í s. 848 1416.
Heimilisþrif. Viltu koma heim í
hreint og fínt hús eftir erfiðan
vinnu dag. Er byrjuð aftur í heimilis-
þrifum. Er vandvirk og reglusöm.
Upp. í s. 897 4232, Guðbjörg.
Garðaþjónusta. Trjáklippingar,
sláttur og almenn garðaumhirða.
Uppl. í s. 845 2100.
tapað - fundið
Garmin gps tæki tapaðist í
Sléttuhlið eða á Kaldárselssvæðinu.
Uppl. í s. 896 3990. Vegleg
fundarlaun.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0
s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Tapað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Íþróttir
Næstu leikir
Knattspyrna:
14. maí kl. 16, Ólafsvík
Víkingur Ó. - Haukar
(1. deild karla)
16. maí kl. 19.15, Kaplakriki
FH - Víkingur R.
(úrvalsdeild karla)
Knattspyrna úrslit:
Karlar:
Keflavík - FH: (miðv.d.)
Grótta - Haukar: 0-2
ÍH - Berserkir: 1-2
FH - Breiðablik: 4-1
Haukar - FH: 1-4
Markaregn - ÍH: 1-5 (leiðrétt)
Dregið í bikar
keppninni
FH fær úrvalsdeildarlið
Fylkis í heimsókn 26. maí í
bikarkeppni KSÍ og Haukar
fá 2. deildarliðið KF í
heimsókn 25. maí nk. ÍH féll
úr leik er liðið tapaði fyrir
Berserkjum.Sundfélag Hafnarfjarðar • Ásvöllum 2 • www.sh.is • 555 6830
Allar upplýsingar um sumarsund Sundfélags Hafnarfjarðar og innritun
verða á heimasíðu SH www.sh.is.
styrkir barna- og unglingastarf SH
Sumarsund fyrir
hressa krakka
Sumarsundskóli
Sundfélags Hafnarfjarðar, SH,
verður starfræktur í Ásvallalaug,
Suðurbæjarlaug og Lækjarskólalaug í sumar.
Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 4-10 ára og
standa yfir í tvær vikur eða 10 skipti.
Aðalkennarar eru
Viggó V. Sigurðsson og
Anna Rún Kristjánsdóttir.
Tímabil í boði eru:
8. júní - 21. júní (8 tímar.)
20. júní - 1. júlí
4. júlí - 15. júlí
Hafnarfjarðar
Bónstöð
Bílageymslunni Firði
Hafnarfirði
Sími: 565 2929
hfjbon@gmail.com
Eurovision
tilboð:
5.000 kr. alþrif,
allar stærðir
Umræðuhefð í íslenskum
stjórn málum er um margt mjög
ábóta vant og hefur síst skánað
eftir hrunið, því miður. Ég hef
kosið að kalla þá tilhneigingu að
fjalla um alla hluti með neik væð-
um áherslum Davíðskenninguna í
stjórnmálum. Hún kristallast í
ummælum sem eru höfð
eftir Davíð Oddssyni,
um það hvað geri stjórn-
málamann að góðum
leiðtoga: „Ég gerði öll
mál tor tryggileg og
fylgdi þeirri meginreglu
veiði manns ins að mað ur
má ekki einungis kasta
flugu sem manni finnst
falleg því að maður veit
aldrei hvaða flugu
laxinn tekur. Ég tók því upp öll
mál, jafnvel þó að ég væri í hjarta
mínu samþykkur þeim, og hjólaði í
þau því að ég leit á stjórnar
andstöðu sem stjórnar andstöðu.“
Þetta segir mikla sögu. Þessi
stjórnmálaforingi talaði semsagt
stundum meðvitað gegn betri
vitund, til þess eins að gera þeim
sem voru við stjórnvölinn erfitt
fyrir – og gera verk þeirra tor-
tryggileg. Þetta getur varla talist
mjög málefnalegt. Auðvitað er
það ekki svo að Davíð Oddsson
hafi verið eini stjórnmálamaðurinn
sem nálgaðist hluti með þessum
hætti. Þetta hefur því miður verið
ráðandi þáttur í umræðuhefð í
íslenskum stjórnmálum í allt of
langan tíma.
Stjórnmál og veiði – fólk og
fiskar
Það er alltaf gaman að vel fram
settum líkingum, en það er nú
samt sem áður þannig að fólk er
ekki veiðibráð og stjórnmál ekki
veiðiskapur. Og það er talsvert
langsótt að líkja því sem stjórn-
mála menn hafa til mál anna að
leggja við flugur. En látum vera.
Höld um okkur við líkinga málið.
Af hverju stekkur laxinn á flug-
una? Það er ekki af því
að honum finnist hún
falleg, heldur af því að
hún fer í taugarnar á
honum og vekur hjá
hon um reiði.
Þá er ég farinn að
nálgast kjarna málsins.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit
virðumst við lítið hafa
lært af hruninu, aðdrag-
anda þess og afleið-
ingum. Pólitísk orðræða gengur
engu síður en áður út á ómál-
efnalegar upphrópanir og lýð-
skrum (ljótar flugur samkvæmt
líkingamálinu). Það er beinlínis
gert út á reiðina í samfélaginu – til
að rugga bátnum – af því að
stjórnar andstaða er jú stjórnar-
andstaða! Skiptir þá engu þó um
sé að ræða mál sem menn eru í
hjarta sínu samþykkir.
Því miður hefur umræða í hafn-
firskum stjórnmálum ekki farið
varhluta af þessum tilhneigingum.
Ég veit ekki hversu margir hafa
hlustað á beina útsendingu af
bæjarstjórnarfundi og er engan
veginn viss um að sá sem hefur
einu sinni hlustað leggi lykkju á
leið sína til að gera það aftur. Af
hverju? Dæmi hver fyrir sig.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Samfylkingar og bæjarstjóri.
Að gera öll mál tortryggileg
Guðmundur Rúnar
Árnason
Suðurhellu 6 • sími 895 9490 • borehf@simnet.is
Dóri í Féló í diskótekinu!
Dansleikur laugardag
kl. 23 - 03
Árgangur 1962
hittist í Fjörukránni á
laugardag en uppselt
er í matinn.
Dóri í Féló hefur engu
gleymt síðan hann
skemmti þessum
árgangi!