Bókbindarinn - 01.03.1960, Side 22
22
BÓKBINDARINN
ir í nefnd, á sl. ári, til þess að
endurskoða lög félagsins og reglu-
gerðir sjóða þess.
Nefndin skilaði áliti á síðasta
aðalfundi, að því er lögin varð-
aði, og lagði hún fram tillögur til
ast sagt frumvarp til nýrra laga.
Voru tillögur nefndarinnar sam-
þykktar í einu hljóði, og hafa nó
verið staðfestar af miðstjórn A.S.Í.
Hinsvegar hafði nefndinni ekki
unnizt tími til að endurskoða
reglugerðirnar og lagði hún til að
haldinn yrði framhaldsaðalfundur
til að fjalla um þær tillögur, sem
hún kynni að gera til breytinga á
þeim.
Framhaldsaðalfundurinn var svo
haldinn 18. febrúar sl. og var á-
stæðan til þess, að það dróst svo
lengi, aðallega sú að nefndin gerði
ráð fyrir því í tillögum sínum um
styrktarsjóð félagsins, að hann
starfaði að nokkru leyti sem lít-
eyrissjóður. Þegar Lífeyrissjóður
bókbindara var svo stofnaður á
sl. ári var að sjálfsögðu ekki leng-
ur þörf fyrir slíkt, og mátti nefnd-
in því semja reglugerðina að nýju,
en taldi þó rétt að bíða eftir því
að reglugerð lífeyrissjóðsins yrði
samin.
Nefndin lagði fram frumvörp að
reglugerðum eftirfarandi sjóða.
Framasjóðs, Lánasjóðs, Vinnu-
deilusjóðs og Styrktarsjóðs, og
voru þau öll samþykkt samhljóða.
Hér er ekki rúm til að rekja
nákvæmlega efni reglugerða þess-
ara, og skal þessa aðeins getið.
1. Framasjóður: Tilgangur hans
er að stuðla að hverskonar fram-
förum og aukinni menningu ís-
lenzkra bókbindara. Hann var
stofnaður 1951 með kr. 6000.00
framlagi úr félagssjóði en höfuð-
stóllinn er nú kr. 30.000.00 og má
ekki skerða hann. Vikugjald A
hans er 1 króna. Tekjum sjóðsins
má verja sem hér segir:
a. Til þess að styrkja bókbindara
til utanfarar í því skyni að auka
þekkingu þeirra.
b. Til þess að styrkja útgáfu fræði-
legra eða sögulegra rita varð-
andi bókband eða bókbindara-
stétt.
Auk þess, sem nú er talið, er
stjórninni heimilt, sé hún öll
sammála, að verja fé sjóðsins
á annan hátt, ef hún telur það
í samræmi við tilgang hans.
Umsóknir um styrk samkvæmt
og b liðum skulu sendar stjórn
B.F.I. fyrir 15. apríl ár hvert. Varð-
andi fjárframlög samkv. c lið er
er hverjum félagsmanni heimilt að
senda stjórninni tillögur sínar.
2. Lánasjóður. Sjóðurinn lánar
meðlimum B.F.I. fé gegn viku-
legum afborgunum. Skal krafizt
skuldbindingar fyrirtækis þess,
sem lánbeiðandi vinnur hjá, u*n
það að hinum vikulegu afborg-
unum verði fullnægt, meðan lán-
takandi fær laun hjá fyrirtækinu.
Upphæð lána má vera allt að
kr. 1500.00 gegn tryggingu í rétt-
indum viðkomanda í sjóðum fé-
lagsins, cg endurgreiðist lánið inn-
an tveggja ára frá lántökudegi.
Þó má veita félögum lán allt
að kr. 5000.00. Fyrir slíkum lán-
um þarf trygging að vera sú, sem
stjórnin telur fullnægjandi hverju
sinni. Stærri lán en kr. 1500.00
skulu endurgreiðast innan tveggja
ára frá lántökudegi. Sjóðurinn vex
um tekjur sínar.
3. Vinnudeilusjóður. Tilgangur
sjóðsins er að styrkja meðlimi fé-
lags.ns ef verkbann eða verkfall
ber að höndum. Úthlutar stjórn
félagsins þá styrkjum úr sjóðnum
til félagsmanna, samkvæmt því er
hún ákveður í hvert sinn. Gjald-
skyldir til sjóðsins eru allir með-
limir B.F.Í. Vikugjald er ákveðið
á aðalfundi ár hvert.
4. Styr\tarsjóÓur. Tilgangur hans
er að styrkja sjóðsfélaga í veikind-
um og að greiða útfararstyrki. All-
ir félagar B.F.I. eru skyldir til þátt-
töku í sjóðnum nema aðstoðar-
stúlkur og þeir félagsmenn sem
dvelja langvistum utan Reykjavík-
ur og nágrennis, en er þó heimil
þátttaka ef þær eða þeir greiða t’l
sjóðsins tilskilið gjald, en aðal-
fundur ákveður vikugjaldið ár
hvert.
Sjóðurinn veitir meðlimum sínum
dagpeninga í veikindum, kr. 55.00
á dag í allt að 40 daga á hverjuin
12 mánuðum. Dagpeningarnir eru
ekki greiddir fyrstu 4 vikurnar sem
sjóðfélagi er veikur, þó getur stjórn-
in greitt sjóðfélaga fyrr ef hún tel-
ur ástæðu til.
Við fráfall sjóðfélaga greiðir
sjóðurinn aðstandendum hans kr.
4.500.00 í útfararstyrk.
Sjóðurinn er stofnaður 1951.
Hann er nú að upphæð 196.000.00
og hefur nefndin lagt til, að á
aðalfundi 1960 verði lagt í sjóðinn
úr félagssjóði það sem á vantar í
kr. 200.000.00, sem verði höfuð-
stóll hans, er ekki má skerða.
Reglugerðir þær sem til voru
íyrir sjóði þessa voru samdar til
bráðabirgða.
Félagsheimilissjóður
Á framhaldsaðalfundinum lagði
nefndin fram tillögu um að stofn-
aður verði félagsheimilissjóður með
kr. 100.000.00 framlagi úr félags-
sjóði. Var samþykkt að stofna
sjóðinn, en reglugerðinni frestað til
aðalfundar.
Bókbandsvinna í prent-
smiðjum
Eins og kunnugt er hafa verið
töluverð brögð að því að störf,
sem heyra undir bókbandsiðnina,
væru unnin í prentsmiðjum af
ófaglærðu fólki eingöngu. Stjórn
B.F.I. hefir ekki gengið hart fram
í því að stöðva þetta, þar sem
fæst af því hefur verið í stórum
stíl og næg atvinna hefir verið.
Nú hefir ein prentsmiðjan, Stór-
holtsprent h.f., hinsvegar gerzt svd
stórtæk í þessu að hún hefir tek-