Bókbindarinn - 01.03.1962, Qupperneq 4
Band á tímaritum IIL
Þegar ég lofaði í síðasta árgangi „Bókbind-
arans“ að koma með í stafrófsröð vantanalista
í tímarit tók ég ekki nægilega með í reikn-
inginn að þá yrði ég að vera viss í þessu fram
á þennan dag, en einmitt seinnitíma verk
hefi ég ekki brotið nægilega til mergjar.
Það er sorglegt, en því miður satt, að frá
1828 að farið var að gefa út sjálfstæða bóka-
skrá, hefir enginn stungið svo niður penna
til skráningar á bókum, blöðum og tímarit-
um að ekki mori allt í villum og vitleysum, og
standa þó góðir menn að samningu sumra
þeirra. Villurnar í ritaukaskrá Landsbóka-
safnsins eru þó fyrir það, að prentsmiðjurn-
ar hafa ekki skilað því sem þeim bar, og
ekki byrjað fyrr en svo seint á að geta um
hve mörg hefti eða númer væru af hverjum
árgangi tímarita og blaða.
Þegar svo ástandið er þannig eins og ég
hefi lýst, er ekki von á góðu, engin skrá til
sem hægt er að reiða sig á, einn veit þetta
og annar hitt og svo hringjast menn á og
spyrja og spyrja.
Ég ætla hér að geta um nokkur vcrk
sem ekki er gott að átta sig á, þó þau komi
sjaldan og aldrei til innbindingar. Islandskc
Maaneds Tidender 1773—76 I.—III. komu
ekki titilblöð á I.—II. Lærdómslistafélags-
ritið I,—XV. 1780—1798 XV. bindi kom
titilblaðslaust.
Minnisverð Tíðindi I,—III. 1796—1808
111. bindi kom titilblaðslaust.
Stjórn B. F. I. fer með samninga í umboði
deildarinnar og í samráði við stjórn hennar.
Núverandi stjórn skipa:
Form. Guðrún Haraldsdóttir.
Ritari Helga Pálmadóttir.
Gjaldkeri Jóhanna Þorleifsdóttir.
Bókbindarinn óskar Kvennadeildinni til
hamingju og árnar henni allra heilla í fram-
tíðinni.
S. J.
Margvíslegt Gaman og Alvara I.—II. 1798
og 1818 I. kom titilblaðslaust.
Þetta mundu nú þeir einir koma með í band
sem vita hvernig það kom út.
Dvöl I.—XV. 1933—1948. XI. XIV. og XV.
komu án titilblaða. Skinfaxi 1909 — er með
erfiðari tímaritum að átta sig á, X. kom titil-
blaðslaust XII. árið líka og aðeins 9 númer.
XVI. árið kom ekki, en titilblað og efnisyfir-
lit á XV. merkt XVI. Til þess að bæta kaup-
endum upp XVI. árið komu þeir með XX.
árið tvisvar 1928 og 1929 en fyrra árið 1928
er merkt XIX. á titilblaði.
I lelgi Tryggvason
. . . Og nú ætla ég að sýna þér það, sem ég er
svo stoltur af — þókasafnið mitt.
(Bokþinderi Arbetaren).