Bókbindarinn - 01.03.1962, Síða 5
ODDGYLLING
Lengi hef ég reynt að leita uppi í erlend-
um iðnritum og bókbandssögu, hvenær og
hvar hafi raunverulega verið hafizt handa um
oddgyllingu. Hef ég komizt að þeirri niður-
stöðu að þessi einfalda aðferð hafi fyrst komið
til sögunnar í kringum 1920. Endurbætur i
ýmsum greinum bókbandsiðjunnar hófust ein-
mitt um það leyti.
Oddgyllingin er vafalaust hugsuð sem til-
raun til einföldunar á handgyllingu, með
því handgylling er yfirleitt seinleg og þar af
leiðandi dýr vinna.
Til bókskreytingar með venjulegri hand-
gyllingu þarf fjölda dýrra verkfæra, en til odd-
gyllingar hinsvegar ekki annað en svonefnd-
an oddgylli, -— og getur maður þá ráðið bók-
skreytingunni að vild. Allt er hægt að letur-
festa með oddgvlli, nema titla.
Fyrsta skilyrði fyrir því að oddgylling takist
vel, er að bókin sé bundin í úrvalsefni. Bezt
eru kálfsskinn eða geitarskinn og þó allra-
helzt það síðartalda. Hið svokallaða dælulit-
aða skinn, sem nú tíðkast, ætti ekki að nota,
því það spillir bæði lit og áferð.
Góðan undirburð þarf til oddgyllingar. Bezt
er að nota eggjahvítu og sterkjulím. (Þó
ekki þurrkaða eggjahvítu.) 1 eggjahvítuna er
látið edik, tveir á móti einum, ásamt salti á
hnífsoddi, og er hún síðan þeytt vandlega.
Helzt þarf hún að standa í nokkrar klukku-
stundir og siðan er hún sýjuð gegnum gasrýju
áður en hún er notuð. Saltið veldur því að
hún heldur lengur í sér rakanum og verður
mýkri til áletrunar.
Undir oddgyllingu er ævinlega borið á allt
bókarspjaldið með þéttum og góðum svampi.
Þegar grunnborið er, getur komið fyrir að síð-
an verði rákótt og gráleit. Er gott að blanda
fáeinum mjólkurdropum í eggjahvítuna til að
komast hjá slíku. Fitan í mjólkinni veldur því
að betur jafnast úr hvítunni.
Sjálfa skreytinguna verður að teikna á
þykkan pappír, helzt pergament, og skal gera
það með bleki, því það kemur skýrar fram á
þesskonar pappír en blýantsdráttur.
Það er undirbúningurinn sem mestan tím-
ann tekur við oddgyllingu. Fyrst þarf að slípa
bókina einu sinni með góðri heitri fægikúlu.
Þar næst er límsterkjunni rjóðað á og skal
hún síðan þorna í ca. 25 mínútur áður en
slípað er aftur. Sú fágun verður að gerast
mjög gætilega, ef bókin er bundin í ljóst skinn
(t. d. rautt eða grænt) — annars geta komið
fram dökkleitar rákir. Áríðandi er að slípa
skinnið vel, svo það verði slétt og gljáandi og
gyllingin jöfn og hrein.
Þá er eggjahvítan borin á tvisvar með hæfi-
legu millibili. Þegar undirburðurinn er þorn-
aður skal rjóðað vaselíni eða olíu á síðuna —
og er vaselín betra, því það forðar blettum.
Oddgyllir