Bókbindarinn - 01.03.1962, Side 8
8
BÓKBINDARINN
BÓKIN
Við vorum um daginn og veginn
og veðrið og lífið að spjalla.
Mér fannst þú þykk og fáséð bók
og fýsti að lesa þig alla.
Svo fáséð og fallega bundin,
og fremst var snoturt kvæði.
Ég fékk þig að láni, fór með þig heim
og fletti þér í næði.
En að fletta þér allri
var okkur báðum skaði,
því í þér fann ég ekkert nýtt.
Allt var á fremsta blaði.
Orn Arnarson.
— Ósköp er þetta undarlegt lag á bók.
— Já, hún fjallar um ost.
(Bokbinderi Arbetaren).
Kaupgjaldsskrá
frá og með 27. janúar 1982.
Tíma- 100%
Á viku: vinna: álag:
Sveinar 1315,05 27,40 54,80
Hlaupavinnumenn (á dag) 233,35 29,16 58,32
Aðstoðarstúlkur:
Fyrstu 6 mánuði ... 595,55 12,40 24,80
Aðra 6 mánuði 654,88 13,64 27,28
Eftir 1 ár 820,17 17,09 34,18
Eftir 2 ár 825,00 17,19 34,38
Eftir 3 ár 893,92 18,62 37,24
Eftir 4 ár 898,75 18,72 37,44
Eftir 5 ár 1012,46 21.09 42,18
Nemendur:
Fyrsta ár 460,25
Annað ár 526,00
Þriðja ár 657,50
Fjórða ár 789,00
Kaup þeirra, sem vinna vaktavinnu, skal vera
5% hærra en að ofan greinir.
Samkvæmt 10. gr. samningsins, má draga af
kaupi starfsmanns fyrir vanræktar vinnustundir
með viðbótinni 100 á hundrað.
I Lífeyrissjóð bókbindara greiði bókbandsiðn-
rekendur 6% — sex af hundraði — samnings-
bundins vikukaups þeirra starfsmanna sinna, sem
samningur þessi tekur til. Starfsfólkið greiðir til
sjóðsins, reiknað á sama hátt, árið 1962 3%, ár-
ið 1963 og framvegis 4%. Stúlkur á lægra viku-
kaupi en 1. árs 'kauptaxta félagsins, greiða þó
ekki iðgjald til sjóðsins.
Bókbindarafélag Islands.
Ingimundur Jónsson fimmtugur
Hinn 24. marz s. 1. átti Ingimundur Jónsson
fimmtugsafmæli. Hann er fæddur árið 1912 í
Reykjavík, en ólst upp að Fossatúni í Borgarfirði
hjá hjónunum Sveinbirni Guðlaugssyni og Guð-
rúnu Ingimundardóttur. Hann fluttist til Reykja-
víkur árið 1938 og vann fyrst við ýmis störf, en
1944 byrjaði hann að vinna við bókband í Bók-
felli h.f. Hann lauk námi í bókbandi 1952 í bók-
bandsvinnustofunni Hólum og hefur unnið þar
síðan.
Kona hans er Guðlaug Magnúsdóttir frá Hafn-
arfirði. Þau eiga einn kjörson, sem heitir Sigur-
geir.
Bókbindarinn óskar Ingimundi til hamingju
með fimmtugsafmælið.