Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 29.03.2012, Síða 14

Fjarðarpósturinn - 29.03.2012, Síða 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. mars 2012 húsnæði óskast 3ja herb. íbúð, helst í Setbergshverfi óskast. Góð meðmæli. Uppl. í s. 898 1771. Óskum eftir 4+ herbergja íbúð, helst í Áslandinu til langtímaleigu. Við erum róleg, reyklaus og reglu­ söm fjögurra manna fjölskylda, draumaleigjendur. Við erum bæði í góðri vinnu og borgum ALLTAF á rétt um tíma. Getum útvegað með­ mæli frá fyrri leigjendum ef óskað er. Ingvar s. 777 9111. húsnæði í boði Til leigu á Reykjavíkurvegi 70 og 85 m² skrifstofuhúsnæði. Er einnig með skrifstofu og starfstöðvar á Bæjarhrauni. Uppl. í s. 695 1095. Til sölu Melissa örbylgjuofn ­ alveg nýr og ónotaður ­ kassinn ekki verið opnaður. Upplýsingar: 894 2106 Sigríður. Mongoose reiðhjól til sölu. Uppl. í s. 893 7144. barnagæsla Leitum að traustri og góðri barnapíu til að passa 12 mánaða son okkar, um tvisvar í viku í 2 klst. seinnipart dags og kannski á kvöld in. Uppl. gefur Guðrún í s. 820 0688 eða 552 7738 þjónusta Heimilistækjaviðgerðir. Geri við þvottavélar og fl. heimilistæki. Kem í heimahús. Sama þjónusta um helgar. Uppl. í s. 772 2049. Geymsla. Viltu taka til í bílskúrnum og koma í geymslu? Bretta geymsla. kr. 3.900 á mán. pr. bretti. 2 m hæð! Uppl. í s. 660 1060. Tölvuviðgerðir alla daga, kem á staðinn, hægstætt verð. Sími 664 1622 ­ 587 7291. Bílaþrif. Kem og sæki. Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur. Set vörn á rúður. Léttara að skafa! Úrvals efni. Uppl. í s. 845 2100. tapað - fundið Armbandsúr fannst á Sævangi. Uppl. í s. 820 7201. smáauglýsingar aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s s ím i 5 6 5 3 0 6 6 A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r. Tapað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT R e k s t r a r a ð i l a r : F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r ! www.facebook.com/ fjardarposturinn Smiðjan Laga og smíða húsgögn, skartgripi og ýmsa hluti úr málmi, t.d. járni, stáli, gulli og silfri. Uppl. í síma 844 7075 Geymið auglýsinguna Á forsíðu í 11. tbl. var Mar­ grét Hörn sem sigraði í Stóru upplestrarkeppninni ranglega sögðu vera úr Öldutúnsskóla. Hún er úr Víðistaðaskóla og er beðist velvirðingar á mistök­ unum. Víðistaðaskóli átti því kepp endur bæði í 1. og 2. sæti. Sólvangur ekki geymsla Kristín Einarsdóttir verkefnis­ stjóri Lettlands verkefnisins vildi árétta vegna leiðaraskrifa að verkefnið hefði fengið heim­ ild til að nota St. Jósefs spítala til að safna saman hjálpartækjum og sjúkrarúmum sem síðar voru sett í gám og flutt til Lettlands á vegum MND félagsins. Búið væri að tæma St. Jósefsspítala og hann væri ekki notaður sem geymsla. Nýr formaður Björgunarsveitarinnar Nýr formaður Björgunar­ sveitar Hafnarfjarðar heitir Ragn ar Haraldsson en ekki Harð ar son eins og misritaðist í myndatexta í síðasta blaði. Er beðist velvirðingar á því. Leiðréttingar Víðistaðaskóli í 1. og 2. sæti Er rennilásinn bilaður? Passa fötin ekki á þig? Þarf að gera við? KÍKTU VIÐ - GOTT VERÐ Reykjavíkurvegi 22 á bak við Sjónarhól Opið kl. 17 til 21 Sími 867 2273 FATA- VIÐGERÐIR White Signal og Aeterna í úrslitum Músiktilrauna Úrslitakvöld Músíktilrauna 2012 verður haldið á laugar­ dag inn 31 í Austurbæ kl.17. Rás 2 mun útvarpa beint svo að landsmenn fá tækifæri á að fylgjast með og að kjósa í síma­ kosningu um hljómsveit fólks­ ins á tilraununum. Alls keppa 10 hljómsveitir í ár, White Signal, Icarus, The Lovely Lion, The Young and Carefree, Funk that Shit!, RetRobot, Aeterna, Glundroði, Þoka og Hindurvættir. Tvær hljómsveitir sem tengjast Hafnarfirði Aeterna var valin af dóm­ nefnd. Hún var stofnuð síðla árs 2011. Í hljómsveitinni eru 5 strákar 19­24 ára frá Hafnarfirði og Kópavogi sem spila háklassa dauðarokk. White Signal var valin af salnum. Hljómsveitin er skipuð ungum krökkum á aldrinum 14­17 ára úr Hafnafirði og úr Reykjavík og hefur starfað frá því í júní 2011. Ritstjóra Fjarðarpóstsins til upplýsinga er Foreldraráð Hafn­ ar fjarðar samráðsvettvangur og málsvari foreldra grunnskóla­ barna í bænum og sinnir ýmsum hags munamálum barna og for­ eldra. Þar sitja tveir fulltrúar frá hverju foreldrafélagi grunn skóla í bænum og fundar Foreldraráðið einu sinni í mánuði þar sem farið er yfir þau málefni sem eru efst á baugi hverju sinni í skóla sam­ félaginu. Mikil áhersla er lögð á að allir fulltrúar hafi samskipti við foreldra í sínum skólum um þessi málefni. Heimasíða For­ eldra ráðsins er komin í loftið og hafa komið út greinar í blöðum bæjarins um Foreldraráðið, tölvu póstar sendir til foreldra og annarra í skólasamfélaginu til að minna á það osfrv. Á heima­ síðunni eru uppfærðar fréttir reglu lega um það sem Foreldra­ ráð gerir og kallað eftir skoðun­ um og áliti foreldra. Foreldráð starfar eftir starfs­ reglum sem settar voru fram fyrir nokkrum árum. Þessar starfs­ reglur hafa verið í endurskoðun í vetur en á aðalfundi Foreldra­ ráðs ins þann 24. apríl n.k. verði þær lagðar fram til samþykktar. Allir fulltrúar Foreldraráðsins hafa komið að því að uppfæra þær og laga í vetur. Starfs­ reglurnar verða settar á heima­ síðu Foreldraráðsins eftir aðal­ fund. En hvernig er talsmaður og áheyrn arfulltrúi valinn? Við bú um í lýðræðissamfélagi og við kjósum þessa fulltrúa á lýð­ ræðislegan hátt. Á hverju ári, í öll um grunnskólum Hafnar fjarð­ ar er haldinn aðalfundur foreldra­ félagsins sem öllum foreldrum er boðið á. Þar eru kosnir fulltrúar í stjórn þess. Breytilegt er eftir foreldrafélögum hvort kosið er í skólaráð og Foreldraráðið á þess um fundum líka eða hvort stjórn foreldrafélagsins kjósi sér fulltrúa innan sinna raða í þau ráð. Þeir fulltrúar sem mynda Foreldraráð Hafnarfjarðar kjósa sín á milli talsmann, áheyrnar­ fulltrúa í fræðsluráði og nú nýverið í íþrótta­ og tómstunda­ nefnd og þar að auki fulltrúa í fulltrúaráð Heimili og skóla. Allir í Foreldraráðinu geta gefið kost á sér í þessi hlutverk. Eins og sjá má er uppbygging For­ eldra ráðs Hafnarfjarðar lýð­ ræðis leg og ALLIR foreldrar grunn skólabarna geta gefið kost á sér og tekið þátt í að kjósa sýna fulltrúa. Því miður hefur foreldrasamfélagið ekki glímt við offramboð foreldra og hefur skortur á þátttöku foreldra oft valdið áhyggjum. Verkefnin eru næg og viðhorf Foreldraráðs Hafnarfjarðar er því fleiri foreldrar því betra. Við foreldrar höfum skyldum að gegna gagnvart börnunum okkar sem og að standa vörð um hagsmuni þeirra og þess samfélags sem við búum í. Jóhanna Sveinbjörg B. Trausta dóttir talsmaður og varamaður áheyrnarfulltrúa í fræðsluráði og Sveindís Jóhannsdóttir áheyrnar­ fulltrúi í fræðsluráði. Leikreglur og umboð Foreldraráðs Hafnarfjarðar Vel á annað hundrað sóttu Gaflaraþing þar sem fjallað var um framtíðarsýn um skóla­ skipan í Hafnarfirði. Fulltrúar úr nágrannasveitarfélögunum fluttu erindi og sögðu frá reynslu sinni og var mikil umræða í kjölfarið og virtust þátttakendur vera nokkuð ánægður með umræðuna. Munu punktar frá þinginu verða teknir saman og kynntir á heimasíðu bæjarins. Þingið var haldið í Lækjar­ skóla sl. laugardag. Starfsmenn fjölmenntu á Gaflaraþing Foreldrar í minnihluta í umræðu um framtíð skólamála Ragnar Gíslason skólastjóri Garðaskóla í ræðustóli. Ungmennaþing var haldið á dögum og þar hittust nokkrir tugir ungmenna úr Hafnarfirði og vann að tillögugerð um ýmsar endurbætur sem gagnast ungmennum bæjarins og öðr­ um. Var skipt niður í hópa og komu margar áhugaverðar tillögur fram. Ungmennin þinga um málefni ungmenna Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.