Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Page 10

Fjarðarpósturinn - 11.04.2013, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. apríl 2013 ..bæjarblaðiðHafnfirska fréttablaðið Bætum kjör barnafólks Aukum fé í heilbrigðismál og menntun Fjölbreytt atvinnulíf í sátt við umhverfið Við munum mörg eftir fjölmenn­ um mótmælafundi í íþróttahúsinu við Strandgötu þegar Guðlaugur Þór Þórðarson þáverandi heil­ brigðis ráðherra kynnti hugmyndir um breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala í byrjun árs 2009. Hugmyndin var ekki að leggja niður spítal ann heldur að gera hann að miðstöð öldr­ unar lækninga á landinu. Breytingar á starfseminni voru umdeildar og mót­ mæli fylgdu í kjölfarið. Meðal þeirra sem höfðu sig mest frammi í þeim mótmælum voru Lúðvík Geirsson þáverandi bæjarstjóri og Ögmundur Jónasson ráðherra. Við þekkjum söguna, flokkar þessara manna lögðu starfsemi spítalans niður og vilja selja þetta sögufræga hús. Viðskilnaðurinn er ömurlegur og Hafnfirðingar sem stóðu vel að baki spítalanum spyrja sig m.a. um það hvað varð um allar gjafirnar sem spítalanum voru gefnar í áranna rás. Ég hef alla tíð haft verulegar efa­ semdir um byggingu risasjúkrahúss á Landspítala lóðinni,en geri mér fyllilega grein fyrir því að ekki verður búið við óbreytt ástand þar. Ekkert hefur enn breytt þeirri skoðun minni að byggja eigi hátæknisjúkrahús til að efla starf­ semi Landspítalans. Óbreytt staða mun hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir heilbrigðisþjónustu landsmanna. Starfsfólk spítalans hefur unnið þrekvirki að undan­ förnu við erfiðar aðstæð ur. Ég tel að skoða verði nánar hvort minni ein ing ar sem sinna sérhæfð um verk­ efnum séu hag kvæmur kostur. Rætt hefur verið um svokölluð „Kraga­ sjúkra hús“ auk sjúkra­ hússi ns á Akureyri í þessu tilliti. Það er líka ákveðið öryggi fólgið í því að dreifa starfsemi á fleiri sjúkrahús, ef t.d. eitthvað alvarlegt gerist á Landspítala. Gott dæmi um það eru nýlegar sýkingar og smitsjúk­ dómar sem höfðu í för með sér að dreifa þurfti álaginu m.a. með því að flytja sjúklinga á aðrar stofnanir. Nú þegar við heyrum af fjölda­ uppsögnum á Sólvangi er hollt að rifja upp þessa sögu. Eðlilega taka Hafn firðingar og aðrir þessum fréttum illa. Áratuga farsæl starf­ semi rótgróinnar stofnunar er í upp námi og við höfum áhyggjur af framtíðinni. „Búum öldruðum áhyggju laust ævikvöld“ er falleg setning. Nú er óvissa um þennan mikil væga málaflokk. Aðstæður í rekstri ríkisins eru erfið ar, en réttlætir það þessa óvissu sem upp er komin? Nei, og stað an er fyrst og fremst tilkomin vegna þess að forgangsröðun verk­ efna hefur ekki verið rétt. Rætt hefur verið um að byggja nýtt hjúkr unarheimili í Hafnarfirði sem staðsett yrði úti í hrauni. Vissulega þarf að bæta aðstöðu hjúkrunar­ heimila í Hafnarfirði sem og annarsstaðar. En er ekki tími til að staldra við nú og hugsa málið upp á nýtt við breyttar aðstæður. Sól­ vangur er vel í sveit settur, er mið­ svæðis í Hafnarfirði og í næsta ná grenni er þjónusta til staðar sem styrkir starfsemina. Við þessar aðstæður verður að skoða vel næstu skref. Styrkjum starfsemi Sól vangs og gerum þar þær breyt­ ingar sem tryggja starfsemi stofn­ unarinnar til lengri tíma, næsta skref getur síðan verið að byggja nýtt. Endurskoðum hugmyndir um starfsemi Landspítala og gerum ráðstafanir þar til að byggja nýtt háskólasjúkrahús sem sinnir vandasamari verkefnum og bráða­ þjónustu. Endurskoðum hug mynd­ ir um rekstur St.Jóse fsspítala og finnum þeirri virðulegu stofnun verkefni við hæfi. Tillaga Sjálf­ stæðismanna stendur enn óbreytt. Stöndum vörð um heilbrigðis­ þjónustu og mikilvæg störf í Hafnar firði. Höfundur er alþingismaður. Sólvangur og St. Jósefsspítali Jón Gunnarsson Ég var nýlega spurður, af jafnaldra mínum sem hyggur á flutning til Noregs, hvers vegna ungt fólk ætti að kjósa Fram­ sóknarflokkinn. Ég svaraði með því að lýsa fyrir honum þremur af forgangsmálum okkar: Afnemum verð­ trygg inguna, leiðréttum stökkbreyttu húsnæðis­ lánin og komum atvinnu lífinu í gang. Afnemum verðtrygginguna Ungt fólk sem tekur húsnæðislán í dag sér fram á að þurfa að borga eignina allt að þrisv ar sinnum áður en yfir líkur. Verði hér annað hrun, þá eru það lántakendurnir sem tryggja banka kerfið fyrir hruninu – í gegn um verðtrygginguna. Fyrir ábyrgan stjórnmálaflokk hlýtur afnám verðtryggingar að vera for gangsatriði. Framsóknar­ flokk urinn mun afnema verð­ tryggingu húsnæðislána. Réttlæti í skuldamálum Fyrir hrun tók mikið af ungu fólki verðtryggt húsnæðislán í góðri trú – lán sem hafa stökk­ breyst og kæfa nú framtíðar­ möguleika þeirra. Fyrir Fram­ sóknarflokkinn er þetta spurning um réttlæti, stökkbreytt verð­ tryggð húsnæðislán verða leið­ rétt. Uppgjöri föllnu bank anna er ólokið og þar mun skapast svigrúm til að leiðrétta lánin. Það sem til þarf er stjórnvöld sem munu koma fram af hörku við hrægammasjóðina. Þeir keyptu kröfur í þrotabúin á nokkur prósent af raunvirði á sínum tíma og sjá fram á að stór græða á íslenska efna hags hrun­ inu. Þess vegna ætti enginn að gráta þeirra vegna, þótt þeir fái ekki að fara frá borði með margfalda þá fjármuni sem þeir keyptu kröf­ urnar á. Kraft í atvinnulífið Efnahagurinn og atvinnulífið hér á landi eru stöðnuð. Hag­ vöxtur síðasta árs var 1,6%, fjár­ fest ing er í sögulegu lágmarki og fólk flyst enn erlendis í at ­ vinnuleit. Fram sóknarflokkurinn hefur mótað ítarlegar og raun­ hæfar tillögur til að snúa þessu ástandi við. Þar er lagt til grund­ vallar að hér komist á pólitískur stöðugleiki og að ný stjórnvöld leitist við að draga úr óvissu, í stað þess að ýta undir hana. Tæki færi til nýsköpunar og vaxt­ ar hér á landi eru til staðar. Hvort sem er í sjávarútvegi, nýtingu grænnar orku og vörum framleiddum með grænni orku, ferðamennsku eða hugverka­ iðnaði, þá er framtíðin björt – ef að stjórnvöld styðja í stað þess að stöðva. Höfundur er frambjóðandi Framsóknarflokksins. Kosningamál ungs fólks Sigurjón Norberg Kjærnested Fyrir rúmum 40 árum lýsti Richard Nixon yfir stríði gegn því sem kallast ólögleg vímuefni og neyslu þeirra. Skera ætti upp herör gegn vandanum, banna vímuefnin og refsa þeim sem kæmu ná ­ lægt þeim. Sú stefna í v í m u e f n a v ö r n u m breidd ist út um heim allan. Síðan þá er löngu ljóst að „stríðið gegn fíkniefnum“ er löngu tapað og sú aðferð að siga lögreglu á ólánsöm ungmenni sem þyrftu miklu frekar stuðning og skilning skilar minna en engum árangri enda hef ur dreif­ ing vímuefna og notkun vaxið jafnt og þétt allan bann tímann. Vímuefnaneysla er að sjálf­ sögðu varhugaverð og getur verið mikið böl fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt. Ofneysla vímuefna og fíkn er þó fyrst og fremst heilbrigðis vanda­ mál en ekki glæpur. Ef við á annað borð skilgreinum fíkn sem sjúkdóm eins og við gerum er kemur að áfengissýki þá er fíkn í ólögleg vímuefni líka sjúkdómur. Því vill Dögun að litið verð á fíkniefnaneyslu sem heilbrigðis­ vandamál frekar en glæpsamlega hegðun. Mikilvægt er að mannréttindi fíkla séu virt og fíkniefna neyt­ endum gert kleift að taka virkan þátt í samfélaginu eftir aðstæðum hvers og eins en þeir séu ekki jaðarsettir í undirheima þar sem lögum og reglum er vikið til hliðar og mannréttindi gilda ekki. Dögun vill afglæpavæða (e. decriminalize) fíkni­ efnaneyslu með sam­ bæri legum hætti og gert hefur verið í Portú­ gal og víðar þar sem neytendum er boð in að stoð en þeim ekki refs að eða þeir lokaðir inni. Dögun leggur áherslu á að nálgast fíkniefnavandann með skaða minnkun og mannúð að leiðarljósi en ekki valdbeitingu, forvirkum rannsóknarheimildum og refsiaðgerðum dómstólanna. Samfélaginu ber siðferðisleg skylda til að sinna þörfum þeirra sem ekki vilja eða geta hætt neyslu fíkniefna þannig að þeir og samfélagið allt verði fyrir sem minnstum skaða. Hér á Íslandi er skaðaminnk­ andi nálgun þegar að ryðja sér til rúms, t.d. með verkefni Rauða krossins, Frú Ragnheiði, en betur má ef duga skal. Börn í vanda eru líka börnin okkar og þeim ber að hjálpa ekki útskúfa. Höfundur er frambjóðandi Dögunar. Vímuefnanotkun er heilbrigðisvandamál! Margrét Tryggvadóttir Ljósmyndasýning Ásgeirs Long á Hrafnistu Ásgeir Long sýnir ljósmyndir í menningarsalnum á Hrafnistu. Sýning hans verður opnuð í dag kl. 13.30 og stendur hún til 15. maí. Ásgeir er fæddur 1927 í Hafn ar firði og býr nú á Hrafnistu. Ásgeir fékk áhuga á ljós­ mynd un í kringum fermingu og kvik myndaáhuginn kviknaði um tvítugt. Ásgeir var vélstjóri en 1954 stofnaði hann Vinnu­ stofu Ásgeirs Long. Síðar stofn­ aði hann Kvikmyndagerð Ásgeirs Long í Garðabæ. Árið 1973 stofnaði Ásgeir ásamt Páli Steingrímssyni og Ernst Kettler Kvikmyndagerðina Kvik sf. Ásgeir fékk verðlaun í Tékkó­ slóvakíu árið 1970 fyrir mynd­ ina Lax í Laxá, gull verðlaun á kvikmyndahátíð í Atlanta árið 1973 fyrir Eld eyj una, heim ilda­ mynd um Vest manna eyjagosið auk fjölda annarra verðlauna. Á sýningunni verða mest manna myndir, flestar frá um 1950.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.