Prentarinn - 01.03.2000, Síða 4

Prentarinn - 01.03.2000, Síða 4
Helgi Hólm Georg Páll Skúlason og Þorkell S. Hilmarsson Helgi Hólm er 34 ára prentari. Hann lagði land undir fót fyrir þremur árum og flutti til Arósa í Danmörku, ásamt Kristínu Jóns- dóttur sambýliskonu sinni sem stundar þar framhaldsnám í lækn- isfræði. A heimilinu er einnig hundurinn Guttormur Hólm, öðru nafni Gutti. Prentaranum lék forvitni á því hvemig dvölin ytra væri og hvað hefði á daga þeirra drifið hingað til. Við hittum Helga í aldamóta- fríinu, sem hann eyddi hér á landi. Hvar hefur þú starfað? Eg hóf nám í POB á Akureyri árið 1982 og starfaði síðan m.a. hjá Prisma, ísafoldarprentsmiðju, Dagsprenti, Akó/POB, Plastprenti og Svansprenti. Eftir að ég kom til Danmerkur hef ég starfað í silkiprentsmiðju í Ulstrup og í flexóprentsmiðju í Voldby. Eg hef því reynt ýmislegt í prentinu. Hvernig gekk að fá vinnu úti? Það gekk mjög erfiðlega, ég var atvinnulaus í rúmt ár og fór þess vegna tvisvar heim að vinna í Svansprenti, bara til að gleyma því ekki hvemig það er að vinna. Astæðan fyrir flutningnum út var fyrst og fremst framhaldsnám Kristínar. Það var svo þegar ég var að vinna hér heima sem ég fékk fréttir af vinnu sem var aug- lýst í Ulstrup við silkiprentun. Eg sló til og sendi út umsókn í gegn- um fax Vinnuveitendasambands- ins, en það vill svo til að tengdapabbi vinnur þar, og var ráðinn í hvelli. Hvort það var vegna þess að umsóknin kom með haus V.S.f. eða ekki vil ég láta ósagt. Þar starfaði ég í sex mánuði, en það var langt að keyra í vinnuna, ca. 110 km á dag. Eg vann á vöktum og dag- vaktin hófst klukkan 6.30 og því varð ég að rífa mig á fætur klukkan hálf firnm til að ná á réttum tíma í vinnuna. Eftir það fór ég að vinna við flexóprentun í Voldby sem er 4 ■ PRENTARINN Eins átti yfirmaður minn til aðfá furðulegustu hugmyndir, en ein þeirra verður varla toppuð, hann sendi litaprufu áfaxi til eins kúnnans!!! miklu nær Árósum. Þar hef ég starfað undanfarið eitt og hálft ár, en smiðjan var að flytja nú í byrj- un janúar og því er ég í atvinnu- leit þessa dagana. Hvernig var vinnuaðstaðan og mórallinn? f Ulstrup var fín vinnuaðstaða og u.þ.b. 40 starfsmenn í fyrir- tækinu. Mórallinn vai' hins vegar afleitur. Fyrirtækið átti í miklum fjárhagserfiðleikum sem orsakaði mikið óöryggi hjá starfsfólki og mikinn titring á vinnustað. Sam- skipti yfxrmanns við fólkið voru ekki góð og dæmi um það hvem- ig það bitnaði á mér var að einn daginn kom hann til mín og tjáði mér að ég hefði tvo kosti, þar sem ég væri útlendingur og mála- kunnáttu minni væri nokkuð ábótavant. Eg gæti valið að vera eingöngu á næturvöktum eða verða sagt upp störfum hjá fyrir- tækinu. Semsagt, það vantaði mann á næturvaktir og ég tók það að mér en gat ekki stillt mig um að spyrja hvort ég þyrfti þá ekki að tala dönsku á næturvöktunum. í flexósmiðjunni í Voldby var vinnuaðstaðan mjög frumstæð, við prentuðum eingöngu á papp- ír, þ.e., umbúðapappír, mikið fyr- ir bakarí og slátrara. Alls unnu 6 starfsmenn í fyrirtækinu í Voldby, 2 í framleiðslu og 4 á skrifstofu! Svo vom um 10 starfsmenn í Sindal, en þangað er verið að flytja alla starfsemi fyrirtækisins. Annars var mjög gott að vinna þarna og við réðum okkar vinnu- tíma að mestu sjálfir. Eins átti yf- irmaður minn til að fá furðuleg- ustu hugmyndir, en ein þeirra verður varla toppuð, hann sendi litapmfu á faxi til eins kúnnans!!! Fyrirtækið flutti til Sindal á Norður-Jótlandi eins og áður sagði. Því er talsverð eftirsjá fyrir mig að missa þessa vinnu. Hvernig finnst þér danski vinnumarkaðurinn? Almennt vinnufyrirkomulag og skipulagning er góð í Danmörku, en vinnumarkaðurinn er mun harðari þama en ég hef áður kynnst og fyrir það finnst mér ís-

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.