Prentarinn - 01.03.2000, Qupperneq 5

Prentarinn - 01.03.2000, Qupperneq 5
íflexósmiðjunni í Voldby var vinnuaðstaðan mjög frumstœð, við prentuðum eingöngu á pappír, þ.e., umbúðapappír, mikið fyrir bakarí og slátrara. lenskir atvinnurekendur eiga heiður skilinn. Þeir sýna sínu starfsfólki mildu meiri skilning, allavega þeir sem ég hef unnið hjá. Hvernig eru launin? Það er nú eins og héma á Is- landi mjög misjafnt, hjá mér voru launin fyrir dagvinnu 220-230 þúsund ísl. á mánuði, en þegar allt er tekið með í reikninginn hefur maður ekkert meira út úr þessu en hér heima, þar sem Danir eiga heimsmet í skattlagn- ingu. Þar til viðbótar hef ég haft svolitla yfirvinnu sem greidd er með 50% álagi á dagvinnu, þ.e. 195 dkr. (1950 ísl.) á tímann og með 100% álagi á næturvinnu eða kr. 260 dkr. (2600 ísl.) á tím- ann. Helstu nauðsynjar em að vísu eitthvað ódýrari úti en lúx- usskattar eru talsvert hærri úti, t.d. á bflum svo eitthvað sé nefnt. En ég verð jú að viðurkenna að þar sem við erum bæði að vinna er lítið mál að lifa af dagvinnunni eingöngu, og það er mikill mun- ur. En svo er annað sem fólk héma heima gleymir þegar það er að tala um að maður vinni „bara“ 37 tíma á viku. Það gat tekið mig allt að 272 tíma á dag að koma mér í og úr vinnu, sem ég er ansi hræddur um að flestum hér heima þætti frekar mikið. Hvað finnst þér um danska bókagerðarfélagið? Það er nú verið að leysa Grafisk forbund upp í einingar þessa dagana og ég er kominn í HKi eða iðnaðardeildina í danska Verslunarmannafélaginu. Ég var búinn að vera viku í vinnu þegar verkfall skall á úti. Ég var ekki búinn að ganga frá félagsaðild í GF þegar það gerðist en sam- skipti FBM og GF vora góð og þeir kipptu þessu r liðinn og ég fékk verkfallsbætur. Ég get ekki kvartað neitt yfrr samskiptum mínum við félagið. Félagið var lagt niður í árslok 1999 og félag- amir skiptust r þrjú félög, þ.e. forvinnslan og prentunin fór í Hki, blaðaljósmyndarar fóra í Blaðamannafélagið og ófaglært starfsfólk í kartonvinnslu, frá- gangi og bókbandi fór r' SiD sem er líkt Verkamannasambandinu. Bókbindarar gátu svo valið um HKi eða SiD. Stærsti hagur fé- lagsmanna af þessum breytingum var að félagsgjöldin lækkuðu. Ég borgaði 700 dkr. (7000 ísl.) á tveggja vikna fresti í GF, inni- falið í því er að vísu atvinnuleys- istryggingagjald, en það er mjög hátt félagsgjald og það hæsta í Danmörku. Það lækkar í ca. 550 (5500 ísl.) á tveggja vikna fresti núna. Fyrst þið spyijið um félagið úti vil ég einnig segja um FBM að mér finnst ekki viðeigandi að starfsmenn félagsins sitji allir í stjóm þess einnig, því valdið og áhrifin finnst mér þannig safnast á hendur of fárra manna. An þess að ég vilji gerast dómari um störf þeirra sem þar vinna, hvorki sem stjómarmanna eða starfsmanna, og ég veit hversu erfitt er að fá fólk til starfa í alla félagsstarf- semi. Sæmundur má bara passa sig þegar ég flyt heim aftur, því ekki nenni ég að fara að prenta í fimmtán tíma á dag til að hafa í mig og á. Hvað finnst þér mest spenn- andi við Danmörku? Það hefur komið þægilega á óvart hversu nálægðin við önnur Evrópulönd er mikil. Það var nokkuð sem maður hafði aldrei hugsað um. Við höfum ferðast talsvert á bfl frá Danmörku. Eins er veðráttan miklu betri en á Is- landi, fleiri sólardagar þegar huggulegt er að sitja útí garði með öl og sóla sig. Viðhorf Dana í garð hundahalds finnst mér líka vera miklu jákvæðara þrátt fyrir strangar reglur þar um. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hafði svo sem hreint enga samúð með hundaeigendum áður en ég fékk hann Gutta minn og var satt að segja skíthræddur við hunda, enda sáu þeir ástæðu til að við- halda þeim ótta með því að bíta mig reglulega. Auðvitað er það margt annað sem kemur upp í hugann, en í svona stuttu spjalli er ómögulegt að tína allt til. Stendur til að setjast að þarna? Nei, alls ekki, þrátt fyrir að mér finnist mjög gott að búa þar. En eins og ég hef sagt við alla sem hafa spurt um þetta í þessu aldamótafríi þá er stefnan að flytja heim aftur á fyrri hluta þessarar aldar. Hvaða ráð myndir þú gefa þeim sem hafa áhuga á að vinna erlendis? Ég myndi ráðleggja mönnum eindregið að læra tungumálið vel áður en þeir flytjast út vegna þess að það er lykilatriði til að ná fót- festu og hreinlega að einangrast ekki og vera gjaldgengur á vinnumarkaði. Eins má segja að ég hafi gert mikil mistök með því að gera ekkert í því að finna vinnu áður en ég fór út. Ætlaði bara að finna út úr þessu þegar ég væri kominn á staðinn. Allavega, þegar maður er nánast mállaus er það ekki auðvelt. Prentarinn þakkar Helga fyrir spjallið og óskar honum velfarn- aðar í framtíðinni. PRENTARINN ■ 5

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.