Prentarinn - 01.03.2000, Síða 23

Prentarinn - 01.03.2000, Síða 23
Þorkell S. Hilmarsson Xplor international ráðstefnan var haldin í Versölum - Hallveig- arstíg 1 Reykjavík þann 11. febr- úar 2000. Sveinbjöm Hjálmars- son forseti Norðurlanda-deildar Xplor Intemational hélt utan um og stýrði ráðstefnunni. Hann bauð fyrirlesara og ráðstefnugesti velkomna og setti fundinn um kl. 8.30. Fyrsti fyrirlesarinn var Tony Kenton, IT - IQ Global Limited - Englandi. Hann sagði að hefð- bundin prentun væri á krossgöt- um. Breyttar kröfur viðskiptavina og framfarir í tækni neyddu prentara til að leita til nýrra svæða til að halda í viðskipti. Fyrir þá sem halda rétt á spilun- um liggja miklir hagnaðarmögu- leikar, auknir markaðsmöguleikar og aukinn trúnaður við viðskipta- vini. I þessum fyrirlestri reyndi Tony Kenton að benda á réttar lausnir. Annar var Georg Lúðvíksson. Hann fjallaði um WAP tækni og intemetið í farsímum. WAPorizer hugbúnað Dímons sem varpar hefðbundnum vefsíðum í farsíma. Einnig var fjallað almennt um varpanir úr einu framsetningar- formi í annað og framtíðarsýn Dímons varðandi aðskilnað inni- halds og gagna. Næstur var Þórarinn Stefáns- son frá OZ.com. Hann talaði um hugbúnaðinn i-pulse sem OZ hef- ur hannað fyrir sænska símafyrir- tækið Ericsson ásamt fjarskipta- tækni og þeim miklu möguleik- um sem nú bjóðast á nýrri öld til að hafa samskipti manna á milli. Paul Gerelle frá i-data intemational a/s talaði um öryggi við prentun gagna og þau vanda- mál sem geta risið við notkun eins prentara í stórum hópi. i-data intemational hefur boðið uppá þá lausn að hafa öryggiskort fyrir starfsmenn sem þeir nota þegar þarf að prenta út gögn, starfs- maður sendir gögnin á viðkom- andi prentara og og þarf aðeins að renna öryggiskortinu í gegn- um lesara sem staðsettur er á prentaranum þegar hann vill sækja gögnin. Þessi lausn getur sparað íyrirtækjum mikið fé þar sem aðeins starfsmenn með ör- yggiskort geta notað prentarann. Karl Roth, Stelja ísland, hélt fyrirlestur um auknar kröfur til þess að nálgast upplýsingar og dreifa þeim í lofti. Framtíðar- sendir mun búa til og senda upp- lýsingar án tafar hvar sem við emm stödd. Jóhannes M. Andersen, Hew- lett-Packard (Opin kerfi hf.), ræddi um hvemig við getum hjálpað viðskiptavinum okkar að átta sig á kostum tölvuvædds vinnustaðar. Andi Edan, Indigo Digital Off- set-Printing Europe (Hvítlist ehf.), kynnti stafræna gæðaprent- un og þá byltingu sem orðið hef- ur á beinni markaðssetningu (One-to-One Marketing). Með tilkomu stafrænna prentvéla virð- ist möguleikum sem breytilegar lit-, mynd- og textaskrár (Vari- able Data) bjóða, lítil takmörk sett. Ole Nyegaard, Xerox (Optima), kynnti hvemig stafræn prentun getur stuðlað að því að því sem fyrirtæki bjóða upp á sé hægt að stýra beint til þeirra sem hafa áhuga á vörunni. Jörgen Ulrich, IBM Printing Systems (Nýherji hf.), fjallaði um það nýjasta í samskiptum við- skiptavina og fyrirtækis. Hann tók skemmtilegt dæmi um fyrir- tæki sem býður mönnum prentun á nafnspjöldum í gegnum inter- netið. Menn geta þar sett upp nafnspjaldið með hjálparforritum sem meðal annars þýða starfs- heiti yfir á hin ýmsu tungumál. Þegar hönnun nafnspjaldsins er tilbúin er pöntun send til fyrir- tækisins sem sendir síðan nafn- spjöldin í pósti til viðskiptavinar hvert á land sem er. Það kom fram í máli Jörgens að intemetið mun hafa veruleg áhrif á þróun mála í prentiðnaði. Christoph Riess, Heidelberg- Digital (Aco hf), kynnti framtíð- arsýn Heidelberg 2010. Að sögn Christoph ætlar Heidelberg sér stóran hlut á þessum markaði, prentun eftir pöntun. Samstarf Heidelberg og Kodak var mjög mikið við hönnun þessarar nýju Digital-vélar sem Heidelberg kynnir nú í fyrsta sinn á DRUPA ásamt öðrum nýjungum og vildi Riess sérstaklega nota tækifærið og bjóða íslensku prentiðnaðar- fólki að koma og skoða þær nýj- ungar sem verða í boði. Hægt er að nálgast fyrirlestra sem fluttir voru á ráðstefnunni á vefsíðu www.xplor.org undir Nordic Chapter. Ráðstefnan tókst með ágætum og þrátt fyrir langan dag og mik- ið af upplýsingum fóru menn glaðir og mun fróðari út í snjó- komuna að ráðstefnunni lokinni. Ráðstefnugestir vom um 70 tals- ins og var boðið upp á veitingar í lok ráðstefnunnar en það er margra ára hefð hjá Xplor að ljúka ráðstefnum með léttum veitingum þar sem ráðstefnugest- urn og fyrirlesumm gefst kostur á að skiptast á skoðunum. Sveinbjöm Hjálmarsson skipu- leggjari ráðstefnunnar var að vonum ánægður með undirtekt- irnar og taldi fullvíst að önnur ráðstefna yrði haldin á næsta ári. PRENTARINN ■

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.