Prentarinn - 01.03.2000, Qupperneq 27
Sumarhús
til sölu
Ég ætla til glöggvunar að gera
grein fyrir því hvaða hlutverkum
bækur þjóna í mínu lífi.
Heima hjá mér eru bækur upp-
um alla veggi. - Já, bækur sem
mér dytti aldrei í hug að opna og
þaðanafsíður að lesa, bækur í
metravís, bækur f hundraðavís
eða þúsundavís. - Og nú er sjálf-
sagt spurt: - Hversvegna í ósköp-
unum að vera að hrúga öllum
þessum ólesnu bókum í kringum
sig? Og svarið er einfalt. - Þær
hafa svo margþætt notagildi að
ég get ekki án þeirra verið.
í fyrsta lagi hef ég þær sem
veggskreytingu, líkt og myndir
og málverk.
í öðru lagi eru þær til að
impónera gesti, sem ekki eru fyrr
komnir inní híbýli mín en þeir
hugsa sem svo: - Hann er ekki
lítið lesinn þessi.
í þriðja lagi bægja þær frá mér
sturlun og stuðla að því að ég
haldi geðheilsunni því þær eru
hljóðeinangrandi.
I fjórða lagi er af þeim skjól í
norðannæðingnum því þær eru
hitaeinangrandi.
I fimmta lagi er hægt að nota
þær sem barefli þegar berja þarf
böm og unglinga til bókar.
I sjötta lagi líður mér einfald-
lega vel innanum bækur.
I sjöunda lagi hefur mér verið
sagt að til sé fólk sem les bækur.
En það sel ég nú ekki dýrara en
ég keypti það.
Fjölmörg dæmi önnur kann ég
um fjölnotagildi bóka, tildæmis
gleymi ég því seint þegar ég var
ungur maður og efnilegur á tog-
ara og við vorum rétt einusinni
að bíða eftir löndun í Húll og Jón
pokamaður fór í land og tók sér
bólfestu á Rauða ljóninu í rúman
sólarhring.
Þegar hann kom til baka hafði
hann meðferðis stærri bók en
áður hafði sést um borð í togar-
anum.
Menn fóru, einsog vænta mátti,
að hnýsast í fræðin og þá kom í
ljós að þetta var Biblía. - Guð-
rækni pokamannsins kom ger-
samlega flatt uppá mannskapinn
því satt að segja var Jón svo mik-
ill strigakjaftur og málsóði að
okkur fannst maðurinn vera
handgengnari andskotanum en
nokkur okkar hinna.
Þegar við fengum Jón til að
opna Biblíuna kom í ljós að þessi
heilaga ritning innihélt ekki
guðsorð, heldur tank undir
brennivín. Ljóst var að guðspjöll-
in höfðu runnið ljúflega ofaní
pokamanninn því tankurinn var
galtómur.
En það átti nú eftir að lagast
því það síðasta sem ég frétti af
Jóni pokamanni var að hann
hleypti upp jarðarför í Dómkirkj-
unni með því að láta brennivíns-
biblíuna ganga milli syrgjenda í
guðshúsinu og magna þannig upp
ótímabært fyllirí í kirkjunni,
prestinum, líkinu og guði til lítill-
ar dýrðar, en skrattanum væntan-
lega til óblandinnar ánægju.
Þegar útfararstjórinn varpaði
Jóni pokamanni á dyr veifaði
hann brennivínsbiblíunni ákaft,
fékk sér vænan gúlsopa úr henni
og hrópaði síðan: - Leitið hugg-
unar í hinni helgu bók.
Svo kláraði hann síðustu
dreggjamar úr biblíunni, settist á
kirkjutröppumar og kvað þessa
vísu við raust:
Sumarbústaður í Miðdal í Efra
hverfi, G götu nr. 6. 3 herbergi
og svefnloft, ný viðbygging sem
er herbergi og fremri stofa. Raf-
magn, arinn, dúkkuhús, ísskápur
og allt innbú. Mikið af gróður-
settum trjáplöntum í lóðinni.
Upplýsingar f síma 551 1526.
Til sölu sumarbústaður í Efra
hverfi í Miðdal við E götu 1.
Húsið er ekki með rafmagni og
er ekki alveg fullinnréttað. Óskað
er eftir tilboði. Upplýsingar gefur
Jón Már Þorvaldsson í síma 568
0812.
Las ég mér til menntunar
margan doðrant vœnan
en lœrdómsríkust lesning var
litla gula hœnan.
í Miðhverfinu í Miðdal, T götu
nr. 6. Um er að ræða fullbúið
sumarhús að utan. Langt komið
að innan. Búið er að leggja park-
et á allan bústaðinn, hurðir og
milliveggir komnir upp, nýtt kló-
sett. f húsinu em tvö eins svefn-
herbergi með hjónarúmi og koju,
einnig er svefnloft. Húsið er
kynnt upp með vatnskamínu sem
hitar upp þrjá ofna sem em í báð-
um herbergjum og einnig á WC.
Upplýsingar í símum 565 6251
og 892 0939 hjá Sigurlaugu og
Magnúsi.
PRENTARINN ■ 27