Verktækni - 01.02.2002, Síða 9
þróaður hugbúnaður sem getur greint
beinin sjálfvirkt. Þá tekur við áfram-
haldandi þróun og gerð söluvara.
Ný tækni á íslandi
Avinningur Marel af því að innleiða
röntgentæni er ótvíræður. Reyndar er
hér um að ræða þekkingu og tækni
Skopskynið verður að vera í lagi. Þessa mynd not-
uðu verkfræðingarnir í rannsóknahópnum þegar
þeir kynntu starfsfélögunum „beinaverkefniö" svo-
kallaða. Myndin sýnir dramatískt atriði úr Franken-
stein mynd sem komin er til ára sinna!
sem að hluta er ný á íslandi. Þetta er í
fyrsta sinn sem unnið er að því hér á
landi að þróa og setja saman röntgen-
búnað. Þetta gefur ný tækifæri í vöru-
þróun hjá Marel. Hægt er að leggja
grunninn að nýrri tækni, til dæmis að
samtvinna röntgentölvusjónina
annarri skynjunartækni.
Hjá Marel eru miklar vonir bundnar
við þetta verkefni því um er að ræða
nýja tækni í fiskvinnslu sem gefur fyr-
irtækinu sérstöðu og verulegt forskot á
keppinautana.
Rannsóknir og tækniþróun
Starf rannsókna og tækniþróunar-
hópsins hjá Marel er einkum fjórþætt.
í fyrsta lagi að sækja nýja tækni inn til
fyrirtækisins s.s. röntgentæknina, ró-
bótatækni og fleiri tæknisvið. í öðru
iagi að þróa nýja tækni, má þar nefna
samtvinnun röntgentækni við aðra
skynjunartækni og aðrar nýjungar við
fttælingar á eiginleikum hráefnis,
þ-m.t. vigtun. í þriðja lagi samstarf við
hina ýmsu aðila um rannsóknir og
þróun, til dæmis Háskóla íslands,
RANNÍS og ýmsa erlenda rannsókna-
aðila. í fjórða lagi vinna við einkaleyfi
Marel en þess má geta að á fimm ára
h'mabili. Árin 1994-1999 sótti Marel
um 25 einkaleyfi og á árunum 2000 og
2001 voru umsóknirnar sjö talsins
hvort ár og ber þetta merki um þá öfl-
ugu tækniþróunarstarfsem sem fram
fer innan fyrirtækisins.
Fyrirlestrar á vegum íslandsdeildar IEEE
Starfsárið 2001 - 2002 standa IEEE á ís-
landi, rafmagns- og tölvuverkfræðiskor
Háskóla íslands og Rafmagnsverkfræði-
deild Verkfræðingafélags íslands (RVFÍ)
fyrir fyrirlestraröð um rannsóknir í raf-
magns- og tölvuverkfræði á íslandi.
Kennarar við Háskóla íslands munu
flytja fýrirlestra ásamt starfsmönnum
fyrirtækja sem stunda framsæknar rann-
sóknir í rafmagns- og tölvuverkfræði.
Fyrirlestrar í mars eru eftirfarandi:
12. mars: Hákon Guðbjartsson,
íslenskri erfðagreiningu - MRI
26. mars: Kristinn Andersen, Marel -
Röntgenmyndvinnsla í matvælaiðnaði.
Fyrirlestrarnir eru haldnir í stofu 101 í
Odda og hefjast kl. 17:15.
Samningur VFÍ og IEEE
Verkfræðingafélag íslands og IEEE
(Institute of Electrical and Electronics)
undirrituðu samstarfssamning í júní s.l.
Með samningnum var komið á samstarfi
um ýmis málefni; s.s. fyrirlestra og fundi.
íslandsdeild IEEE var stofnuð í september
árið 2000 og er dr. Jón Atli Benediktsson,
prófessor, formaður þess. Heimasíða IEEE
á íslandi: www.ieee.is
IEEE voru stofnuð 1884 og eru
langstærstu og öflugustu samtök raf-
magns- og rafeindaverkfræðinga í heim-
inum. Meðlimir eru rúmlega 350 þúsund
í 150 löndum einnig eru starfræktar um
eitt þúsund nemendadeildir í háskólum
víða um heim. Útgáfa IEEE er mjög öflug
en samtökin gefa út um 30% af öllu því
sem gefið er út í heiminum á sviði raf-
magnsverkfræði, tölvunarfræði og stýri-
tækni. Samtökin halda um 300 ráðstefn-
ur á ári og þau hafa sett 800 staðla, þar
af eru 700 í þróun. í IEEE eru 36 félög
sem hvert um sig er með öfluga útgáfu á
sínu fagsviði. Stærsta félagið er á tölvu-
sviði en félagsmenn innan þess eru um
90 þúusnd. IEEE eru rekin án hagnaðar.
Löggilding mannvirkjahönnuöa
Námskeið prófnefndar mannvirkjahönnuða „Löggilding mannvirkjahönnuða verður
haldið í marsmánuði. Námskeiðið er ætlað mannvirkjahönnuðum sem óska löggild-
ingar Umhverfisráðuneytis að leggja aðal- og séruppdrætti fyrir byggingarnefndir og
luku námi 1. janúar 1998 eða síðar.
Athygli er vakin á því að umsækjendur skulu hafa lokið tilskilinni starfsreynslu
áður en þeir sækja námskeiðið. Ef rými er á námskeiðinu geta hönnuðir, sem þegar
hafa hlotið löggildingu, sótt um þátttöku. Námskeiðsgjald er lægra en þeirra sem
stefna á próftöku og löggildingu.
Nánari upplýsingar í síma 552 1040.