Verktækni - 01.09.2002, Side 10
Fjöldi og staðsetning tengla
í íbúðarhúsnæði - ÍST 150 -
Rafstaðlaráð lauk nýlega við gerð staðals-
ins ÍST 150:2002 Raf- og boðlagnir fyrir
íbúðarhúsnæði: Gerð, staðsetning og fjöldi
tengistaða, sem gefinn var út og staðfest-
ur af Staðlaráði 1. október. Staðallinn
tiltekur lágmarksfjölda og staðsetninu
tengla fyrir raf- og boðskiptalagnir í íbúð-
arhúsnæði. Staðallinn segir einnig til um
lagnaleiðir og lágmarksstærðir tengikassa
og röra fyrir lagnakerfi.
I takt við tímann ...
ÍST150 er meðal annars ætlaður hönnuðum,
rafvirkjum, húsbyggjendum og íbúðarkaup-
endum. Staðallinn gerir byggingaraðilum
kleift að skýra á einfaldan hátt hvemig frá-
gangi raf- og boðkerfislagna skuli háttað með
því að vitna til þess að þær séu í samræmi við
kröfur ÍST 150:2002. Staðallinn tiltekur lág-
markskröfur og þær lausnir sem lagðar em til
grundvallar gefa möguleika á hönnun sem er
sambærileg eða betri. Kröfur um staðsetn-
ingu tengla og rofa em í takt við það sem
eðlilegt hefur þótt til þessa. Búast má við að
endurskoða þurfi staðaiinn reglulega miðað
við reynslu og breytingar sem verða á þörfum
íbúa og þróun lagna og búnaðar.
... og þarfir íbúa
Með ÍST 150 er komið til móts við kröfur
sem íbúðareigendur gera til lagnakerfa í
nýbyggingum. Notkun staðalsins ætti að
draga úr þörf fyrir dýrar breytingar eftir á
og margskonar reddingar við að auka fjölda
tengla og lagna í íbúðarhúsnæði. Gera má
ráð fyrir óskum um sjónvarp, síma og/eða
tölvu í flestum herbergjum íbúðarinnar. Pví
þarf að tiyggja að tengimöguleiki eða
lagnaleið sé fyrir hendi. Einnig þarf að sjá
til þess að styrkleiki merkis fyrir t.d. sjón-
varp sé viðunanandi í öllum tenglum íbúð-
arinnar. Staðallinn kveður því á um að allar
boðskiptalagnir séu miðkerfislagnir, þ.e.
lagt sé sér rör frá tengiskáp í hverja dós til
að koma í veg fyrir mjög mismunandi
styrkleika merkis á tengistað.
Staðallinn var unnin á vegum tækni-
nefndar sem skipuð var af Rafstaðlaráði.
Nefndina skipuðu; Halldór Arnórsson,
formaður, Sigurður Geirsson, Rúnar Back-
mann og Ágúst Ó. Ágústsson. Leitað var
víða fanga og nefndin naut aðstoðar
rnargra. Má þar meðal annarra nefna
Hannes Siggason, Ásgrím Jónasson, Örlyg
Jónatansson, Magnús Matthíasson og Sig-
urð Sigurðarson.
Staðalinn ÍST 150 má panta á www.stad-
lar.is eða í síma 520 7150.
Leiðarljós á landsins ströndum 1878-2002
Vitar á íslandi er glæsileg bók sem rekur sögu vita á
íslandi frá upphafi. Hana prýðir fjöldi mynda og teikn-
inga ásamt umfjöllun um alla vita sem byggðir hafa
verið á landinu. Bókin lýsir athyglisverðum þætti
i íslenskrar byggingarlistar og tækniþróunar og segir
L einnig sögu vitaþjónustu, vitaskipa og
W vitavarða á íslandi.
SIGLINCASTOFNUN
Vesturvör 2, 200 Kópavogi, sími 560 0000