Verktækni - 01.09.2002, Blaðsíða 13

Verktækni - 01.09.2002, Blaðsíða 13
og fyrirtækin því betur í stakk búin að höndla breytingar, þ.e. stækka eða minnka. Binding á fjármagni m.a. í fast- eignum og tækjabúnaði verður minni og allur kostnaður sýnilegri. Þá geta fyrirtæk- in jafnframt einbeitt sér betur að sinni kjarnastarfsemi. Stefnumótun Stefnumótunarvinna hjá Eimskip varðandi uppbyggingu á vöruhótelstarfsemi fór fram 1999-2000 og í framhaldi af því var samið við hollenska ráðgjafarfyrirtækið Groenewout sem aðalráðgjafa í verkefni um uppbyggingu á vöruhóteli í Sunda- höfn. Groenewout hefur sérhæft sig í al- hliða ráðgjöf á sviði vöruhúsa og vöru- stjórnunar og um árabil sinnt slíkum verk- efnum víða um heim. Samstarfsaðilar Groenewout í verkefninu hér á landi eru VSÓ ráðgjöf ogTeiknistofa Garðars Hall- dórssonar. Framkvæmdir Lokað alútboð vegna byggingar á vöruhót- eli fór fram í nóvember 2001 og skrifað var undir verksamning við íslenska aðalverk- taka um byggingarframkvæmdir um miðj- an mars 2002. Framkvæmdir við byggingu vöruhótels- ins eru í fullum gangi þessa dagana og eru að jafnaði 70-100 manns við störf á svæð- inu. Frá því skrifað var undir verksamning þar til húsinu verður skilað fullbúnu eru rétt tæpir 11 mánuðir. Framkvæmdirnar hafa gengið mjög vel það sem af er og er gert ráð fyrir að verkinu verði lokið sam- kvæmt áætlun í febrúar 2003. Nú er verið að loka byggingunni og hefja innanhúsfrá- gang og áformað er að ljúka verkinu í febrúar 2003. Hillukerfi, lyftarar, upplýs- inga- og vörustjórnunarkerfi og annar búnaður er keyptur frá ýmsum aðilum víðs vegar um heim. Sérstakt gólf Nýja vöruhótelið stendur við Vatnagarða í NV-enda athafnasvæðis Eimskips er um 17.500 nr að grunnfleti (samsvarar um þremur knattspyrnuvöllum) auk 5.800 m2 milligólfs. í aðalgólf byggingar- innar fóru um 3.200 rúmmetrar af steypu. Afar strangar kröfur eru gerðar til sléttleika þess hluta gólfsins sem er undir þrönggangahillukerfi hússins, en þar er leyfilegt frávik í hæð aðeins um 2 mm. Þessar ströngu kröfur eru nauðsyn- legar tii að hægt verði að vinna með lyfturum á fullum afköstum í göngum hillukerfisins. Islenskir aðalverktakar réðu til sín erlendan undirverktaka til að Innviðir vöruhótels. steypa gólfið þar sem verkreynsla á því að steypa svona gólf var ekki fyrir hendi hér á landi. Þessi vinna gekk mjög vel og var lokið við að steypa gólfið á að- eins 11 vinnudögum. Byggingin er stálgrindarhús, framleitt í Finnlandi, reist á steyptum grunni, klædd með samlokueiningum á veggjum. Þak er bogaformað með berandi trapizu- klæðningu að neðan, einangrað með steinull og dúkklætt að ofan. Húsið stendur við bergvegg meðfram Vatna- görðum og er þar steyptur stoðveggur og liggja neyðarútgangar úr húsinu um nokkur stigahús upp áVatnagarða.Tugir hleðsluopa fyrir bfla og gáma eru á lang- hlið sem veit að Sundabakka. Auk aðalráðgjafa Eimskips, Groenewout ogVSÓ ráðgjöf hafa fjölmargar verkfræði- stofur komið að verkefninu á vegum Is- lenskra aðalverktaka. Þar ber helst að nefnaVST, RTS, Lagnatækni ogVSI auk erlendra ráðgjafa ÍAV frá Finnlandi, Hollandi og Bandaríkjunum. Arkitekt byggingarinnar er Garðar Halldórsson húsameistari. Rif á húsum og tengdar framkvæmdir Það er ljóst að jafn umfangsmiklar fram- kvæmdir og þessar verða ekki unnar án töluverðrar röskunar á þeirri starfsemi sem fyrir er, en nýja húsið rís að miklum “hluta á grunni eldri vöruhúsa hjá Eim- skip. Afar mikilvægt var því að skipu- leggja verkið vel til að starfsemi fyrirtæk- isins yrði ekki fyrir mikilli röskun vegna framkvæmdanna. Til að koma þessu rnikla mannvirki fyrir á hentugum stað þurfti að rífa Sundaskála 1 og 2 sem eru um 30 ára gamlar vörugeymslur, alls um Unnið vió að steypa aðalgóLf byggingarinnar.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.