Verktækni - 01.09.2002, Blaðsíða 16
AC sfjórwarbor^í TVÍ
16
Húsnæðismál
Þessar vikurnar stendur yfir endurskoðun á
húsnæðimálum TFI og annarra félaga að
Engjateigi.Vegna beiðni SV um stærra hús-
næði er verið að leita leiða á hvaða hátt sé
hægt að koma til móts við óskir þeirra.
Byggingafræðingafélag Islands, Félag
landslagsarkitekta og Félag innanhúsarki-
tekta hafa einnig óskað eftir að flytja starf-
semi sína í húsið. Þá er verið að athuga
þann möguleika að innrétta fundarsal í
kjallara hússins en upphaflega var gert ráð
íyrir 100 manna rástefnusal á þeirri hæð.
Reykjavíkurborg - nýtt launakerfi
Fulltrúar KTFI hafa á síðustu vikum tekið
þátt í undirbúningsvinnu vegna nýja launa-
kerfisins sem taka á gildi 1. desember n.k.
hjá Reykjavíkurborg. Ljóst er að undirbún-
ingur og framkvæmd nýja starfsmatskerfis-
ins er mun umfangsmeiri en samningsaðilar
höfðu séð fyrir og nú er ljóst að ekki tekst að
koma hinu nýja kerfi í framkvæmd á um-
sömdum tíma. Þó svo seinkun verði á gildis-
töku starfsmatsins munu hækkanir sem eiga
að koma til framkvæmda ávallt verða aftur-
virkar frá 1. desember 2002. Hjá Reykjavík-
urborg starfa 47 tæknifræðingar. Almenn
launahækkun verður 3% þann 1. janúar n.k.
TFI hafnaði erindi meinatækna
Stjórn TFI hefur haft til umsagnar fyrir-
spurn stjórnar Félags Meinatækna varð-
andi það hvort TFÍ geti fallist á að meina-
tæknar taki upp starfsheitið meinatækni-
fræðingur. Erindið hefur fengið ítarlega
skoðun innan TFI. Þá hefur farið fram
samanburður á námi í tæknifræði og
meinatækni við THÍ. Það er skoðun
stjórnarTFI að þrátt fyrir að nám í
meinatækni sé fjögur ár þá uppfylli það
ekki kröfur TFÍ vegna starfstitilsins. Er
þar aðallega horft til námseininga er
varða hönnun. I erindi meinatækna var
sett fram sú forsenda að allir starfandi
meinatæknar gætu tekið upp starfsheitið
en vegna styttra náms marga þeirra er
slíkt óásættanlegt að mati TFÍ.
Samráöfundur TFÍ og VFÍ
Arlegur samráðsfundurTFÍ ogVFÍ verður
haldinn 6. desember n.k. Samstarf fé-
laganna og framtíðarsýn verður rædd en
einnig verður flutt erindi um ímynd
tæknimanna í íslensku þjóðfélagi. Auk
stjómarmanna og formanna félaga taka
framkvæmdastjóri og formaður SV þátt í
fundinum. Þá mun formaður Arkitekta-
félags íslands einnig sitja fundinn.
Stefnumótun TFÍ
Akveðið hefur verið að vinna
að stefnumótun TFI á næstu vikum.
Magnús Haraldsson tæknifræðingur mun
stýra þremur kvöldfundum með þátttöku
stjórnarmanna TFÍ, KTFÍ og STFÍ. Einnig
munu nokkrir fyrrverandi formenn TFI
taka þátt auk formanna nefnda. Stefnt er
að því að kynna afrakstur þessarar vinnu á
næsta aðalfundi TFÍ.
Orlofssjóður fyrir alla
Innan KTFI hefur á síðustu mánuðum ver-
ið unnið að stofnun orlofssjóðs fyrir alla fé-
lagsmenn. Megináhersla hefur verið lögð á
að veita öllum félagsmönnum aðild að
Orlofssjóði bandalags háskólamanna,
OBHM. Fram til þessa hafa einungis
tæknifræðingar sem starfa hjá ríki eða borg
átt aðild að sjóðnum. Hingað til hefur ekki
verið vilji til þess hjá OBHM að opna sjóð-
inn fyrir aðra. Stefnt er að samkomulagi við
OBHM um þetta mál í byrjun desember á
þann hátt að allir félagsmenn sem greiða í
Orlofsjóð KTFÍ verði sjálfkrafa aðilar að
OBHM. Framlag vinnuveitenda í sjóðinn er
að jafnaði 0.25% af heildarlaunum starfs-
manns.
Jóhannes Benediktsson, formaður TFÍ.
VIROC - flÖlNOTÁ BYGGINGAPLATAN
STÆRÐ PLÖTU: 1200 x 3000 mm
5 PYKKTIR: 8.10.12,16 og 19 mm
RÚMPYNGO: 1250 kg/m3
BRUNAÞ0L: lOmm i flokki 1. (Viðurkennt af B.R.)
- Viroc er prófað af R.B. að Keldum
VIROC vatnsþolin
VIROC eldþolin
VIROC hljóöeinangrandi
VIROC utan sem innan
GÓLFPLOTUR
- hentar í btautrými
ÞÞ
& co
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - 108 Reykjavík
s: 553 8640 - www.thco.is
ma§xs'