Verktækni - 01.09.2002, Page 19
Bók í jólapakkann:
Verk á vegi þínum
Bókin Verk á vegi þínum er tilvalin í jólapakka fróðleiksfúsra ferðalanga. í
bókinni er að finna upplýsingar um 115 steinsteypt mannvirki hér á landi.
Steinsteypufélag íslands gaf bókina út fyrr á þessu ári í tilefni af 30 ára
afmæli félagsins. Bókinni er ætlað að vera ferðalöngum til gagns og
gaman og er hún til í enskri og íslenskri útgáfu.
Bókinni er skipt upp í tíu kafla eftir landshlutum. Þar er að finna myndir af
mannvirkjunum, texta um tilurð þeirra og sögu auk upplýsinga um arkitekta,
burðarþolshönnuði og aðalverktaka, þar sem þær lágu fyrir.
BækurnarVerk á vegi þínum og Works along the way fást í bókaverslunum
og bensínafgreiðslum Esso um land allt.
F
lceCom ehf. hefur nú hafið sölu á búnaði frá Wood & Douglas
Ltd. sem er virtur hönnuður og framleiðandi á fjarskiptabúnaði
til iðnaðarstýringa, fjargæslu og þráðlausra radd samskipta t.d.
fyrir útvarp.Wood & Douglas Itd. eru þekktir fyrir framleiðslu
sína á radíó módemum sem gefa fjarskiptamöguleika fyrir serial
samskipti áVHF og UHF tíðnissviðum.t.d.fyrir iðnstýringar,
fjarlægðir milli módema geta verið tugir kílómetra og þarf ekki
að vera bundið sjónlínu.Wood & Douglas hönnuðu og framleiða
einnig hina mögnuðu MaxDaq línu.
MaxDaq gefur möguleika á að raða saman eftir hentugleik stýri
eða fjarmælingarlínum og senda þær þráðlaust allt að ISKm.
Kerfið byggir á einingum sem raðast á hefðbundna DIN skinnu,
og geta verið hliðrænir inn- eða útgangar 12 bita ADC/DAC 0-
10 mA, 0-20mA, 4-20mA eða 0-2.5V, 0-5V, 0-10V eða stafrænir
inn eða útgangar. Upplýsingar er einnig hægt að sækja á serial
porti og nota beint í skjástýriforrit (SCADA). Fjarskiptaeiningarnar
í MaxDaq línunni geta verið sendar, móttakarar eða hvoru tveggja,
og uppbygging getur verið margskonar.
Kerfið er hægt að setja upp sem hermikráku þ.e. analog eða
digital inngangur verði analog digital útgangur eða öfugt, eða
upplýsingar eru teknar á serial porti eftir þörfum. Kerfið er hægt
að setja upp sem point to point eða sem point to multipoint
samskipti. Hver stjórnstöð ræður við 16 útstöðvar.
lceCom ehf. er fyrirtæki sérhæft í fjarskiptum allskonar.
lceCom ehf. hefur staðið að uppbyggingu á fjarskiptakerfum á
Islandi síðan 1997. Þráðlaus kerfi, Ijósleiðarar eða símalínur allt
eftir hentugleik hverju sinni, leitið upplýsinga hjá lceCom ehf.