Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.12.1993, Síða 6
6 Alþýðublað Hafnarfjarðar
Sólvangur 40 ára
Ingvar Viktorsson, bæjarstjúri afhendir liér Sveini Guöbjartssyni.forstjóra Sólvangs afmœlisgjöffrá IIafnatfjarOarbœ.
Hinn 23. október s. I. voru 40 ár
liðin frá því að Sólvangur tók til
starfa. I‘aö var Hafnarfjarðarbær,
sem stóð fyrir byggingu hans, og
alla tíð hefur Sólvangur verið í eigu
bæjarins. Afmælisins var minnst
með myndarlegum hætti á af-
mælisdaginn, svo sem síðar verður
greint frá í þessari frásögn.
ÞaðvarAlþýðuflokkurinn í Hafnar-
firði undir forustu Guðmundar
heitins Gissurarsonar, sem beitti
sér fyrir byggingu Sólvangs. Það
var því skemmtilegt og vel við
hæfi, þegar þessi ágæti og
áhugasami baráttumaður varð
fyrsti forstjóri þessa hjúkrunar-
og elliheimilis. Sólvangur átti bæði
hjarta og hug Guðmundar og að
því bjó Sólvangur, bæði í upphafi
og lengi síðan.
Haustið 1935 hófst rekstur fyrsta
elliheimilisins í IHafnarfirði. Það var
til húsa á Austurgötu 24, en það
húsnæði hafði bærinn tekið á leigu
hjá Hjálpræðishemum í þessu skyni.
Jafnframt því að þarna væri
elliheimili, var rekin þar mötuneyti
fyrir almenning. Margrét ívarsdóttir
kennari var ráðin forstöðukona
elliheimilisins og mötuneytisins, en
seinna gegndi Sigurrós Sveinsdóttir
því starfi.
Elliheimilið var undir yfirstjórn
fátækranefndar bæjarins og að
jafnaði voru þar 30 til 35 vistmenn.
Hafnarfjörður var annað bæjar-
félagið á landinu, sem hóf rekstur
elliheimilis. Fyrstur til þess varð
ísafjörður. Það var engin tilviljun, að
í báðum þessum sveitarfélögum var
Alþýðuflokkurinn í meirihluta.
Alþýðuflokkurinn hefur alltaf látið
málefni aldraðra sig miklu skipta.
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 3.
júlí 1944 var lagt fram bréf frá
Guðmundi Gissurarsyni, dagsett 28.
júní. Þar segir hann frá því, að
eftirspurn eftir vistrými á elliheim-
ilinu sé orðin miklu meiri en unnt sé
að anna. Hann lagði því til að hafin
yrði bygging elliheimilis eins fljótt
og kostur væri. Hann varpaði fram
þeirri hugmynd, að reist yrði mynd-
arleg bygging, sem skiptist í elli-
heimili, sjúkradeild og fæðingar-
deild. Hann stakk upp á því í bréfinu
að kosin yrði þriggja manna nefnd til
að undirbúa málið.
Daginn eftir þennan bæjarráðsfund,
hinn 4. júlí 1944, kaus bæjarstjórn
þessa nefnd. Guðmundur Gissurar-
son var formaður hennar, Ásgeir
Stefánsson varaformaður og Stefán
Jónsson var ritari nefndarinnar.
Nefndin skilaði áliti til bæjar-
stjórnar um byggingu nýs elli-
hjúkrunarheimilis og samþykkti
bæjarstjórn tillögur nefndarinnar á
fundi sínum hinn 30. október 1945.
Skiptar skoðanir voru um það, hvar
byggingunni skyldi valinn staður.
Það voru einkum þrír staðir, sem
þóttu koma til greina, við Skúla-
skeið, við Álfaskeið og ofan og
austan Hörðuvalla. Að lokum var
skipulagsnefnd ríkisins falið að velja
staðinn. Niðurstaða hennar var, að
húsið skyldi reist á hrauninu upp af
Hörðuvöllum.
Smíði elli- og hjúkrunarheimilisins
hófst síðari hluta ársins 1946 og hinn
23. október 1953 var heimilið vígt
og gefið nafnið Sólvangur. Það
þurfti mikið fjárhagslegt átak, til
þess að gera drauminn um Sólvang
að veruleika. Hafnarfjarðarbær bar
hitann og þungann við fram-
kvæmdirnar, en margir aðrir aðilar
létur þar til sín taka. Þannig lagði t.d.
Bæjarbíó 534.000 krónur í bygg-
inguna, en það voru miklir peningar
á þeim tíma.
Kvenfélagið Hringurinn í Hafnar-
firði sýndi hug sinn til Sólvangs með
myndarlegum hætti á 40 ára afmæli
sínu. Þá færði félagið fæðingar-
deildinni ýmis konar lækningatæki.
svo sem skurðstofulampa, súr-
efnistæki, rannsóknarstól, verk-
færaborð, sótthreinsunarofn, 20
uppbúin sængurkvennarúm og 20
uppbúin barnarúm. Fjölmörg félög
og einstaklingar hafa sýnt Sólvangi
hlýhug og ræktarsemi á liðnum árum
og yrði of langt mál að telja það allt
hér. En hafi þeir allir heiður og þökk
fyrir.
Guðmundur Gissurarson var ráðinn
fyrsti forstjóri Sólvangs og gegndi
því starfi til dauðadags 6. júní 1958.
Þá tók Jóhann Þorsteinsson kennari
við forstjórastarfinu og gegndi því til
31. desember 1966, er hann lét af
störfum fyrir aldurssakir. Þá tók
Eiríkur Pálsson lögfræðingur við
starfinu. Eiríkur lét af störfum 1.
janúar 1982 vegna aldurs, en þá tók
Sveinn Guðbjartsson við forstjóra-
starfinu og hefur gegnt því síðan.
Fyrsti yfirlæknir Sólvangs var
Olafur Olafsson. Hann var yfirlæknir
á Sólvangi frá 1. febrúar 1954 til 31.
águst 1970. Þá tók Þór Halldórsson
við yfirlæknisstarfinu og gegndi því
til ársins 1979, en liinn 1. desember
1979 tók núverandi yfirlæknir
Sólvangs, Bragi Guðmundsson, við
af honum.
Fyrsti vistmaðurinn á Sólvangi var
Lárus heitinn Bjarnason, fyrrum
skólastjóri Flensborgarskólans.
Fæðingadeildin á Sólvangi tók til
starfa í mars 1954 og starfaði hún til
1. júlí 1976. Þá hafði hún starfað í
rúma tvo áratugi og veitt fjölda
Hafnfirðinga góða þjónustu.
Upphaflega var starfsemi Sólvangs
þrískipt í elliheimilisdeild, sjúkra-
deild og fæðingadeild. En árið 1976
var Sólvangur gerður að sjúkrahúsi
fyrir aldraða og því hlutverki hefur
hann gegnt síðan. Sjúklingar á
Sólvangi voru rútulega 130, þegar
flest var, en nú eru þar 100 rúm. Oft
hafa verið mikil þrengsli á Sólvangi
og vinnuaðstaða starfsfólks knöpp.
Miklar endurbætur á húsakosti og
búnaði Sólvangs hófust árið 1976,
þegar Sólvangur var gerður að
sjúkrahúsi fyrir aldraða. Þessar
endurbætur standa enn. En öll
aðstaða hefur nú tekið miklum
stakkaskiptum. og er nú rýmra um
sjúklinga og starfsmenn en áður var.
Komin eru búnings og snyrtiherbergi
á jarðhæð í norðurenda nýbyggingar,
sem einnig hýsir saumastofu,
þvottahús, geymslur og tæknirými.
Á fyrstu hæð er nýtt eldhús,
borðstofa, rannsóknarstofa, rönten-
stofa og bókasafn.
Við flutning eldhúss og þvottahúss
var hægt að innrétta norðurenda
fyrstu hæðar “gamla” hússins fyrir
sjúkraþjálfun, vinnustofu og iðju-
þjálfun, tvö dagvistarherbergi fyrir
alls 6 manns, hand-, fót- og hár-
snyrtingu, snyrtiherbergi og setu-
stofu. Sjúkraþjálfunin er þegar flutt
og er nú verið að búa hana fu 11-
komnum tækjum. Þannig þjónar hún
betur fólkinu á Sólvangi, en
jafnframt verður þar rekin þjónusla
fyrir aðra, sem ekki eru vistmenn á
Sólvangi.
Hand-, fótsnyrtistofan er tekin til
starfa á nýja staðnum, en hún var
áður á þriðju hæð. Dagvistun hefst
væntanlega snemma á næsta ári,
þegar starfsleyfi og búnaður er
fenginn. I suðurenda fyrstu hæðar er
lokið gagngerum endurbótum. Þar
eru skrifstofur, afgreiðsla, lækna-
stofur, skoðunarherbergi og aðstaða
umsjónarmanns og húsvarða.
Innrétting á þakhæð cr enn skammt á
veg komin, en fyrirhugað er að flytja
þangað bókageymslu og hluta hjúkr-
unarvörulagers. Sjálft húsið fær nú
mikla andlitslyftingu, sem lengi
hefur verið beðið eftir. Klæðning
þess með kvarsplötum, skipti á
öllum gluggum og ný einangrun er
langt komin. Sér nú vel fyrir endann
á þessum breyt-ingum og er það
fagnaðarefni. Áætlanir um byggingu
tveggja hæða ofan á nýbygginguna
til norðurs liggja nú fyrir. Þar er gert
ráð fyrir tveimur hjúkrunardeildum.
Þegar þær verða komnar í gagnið
munu vistmenn á Sólvangi verða um
130.
Laugardaginn 23. október síðast-
liðinn bauð stjórn og stjórnendur
Sólvangs til afmælisfagnaðar.
Hátíðin hófst klukkan 13.00 með
skemmtidagskrá fyrir heimilisfólkið
á Sólvangi. Forstjóri Sólvangs,
Sveinn Guðbjörnsson setti hátíðina.
Síðan fóru fram söng- og dansatriði,
sem tókust með rnestu ágætuni.
Síðan fékk fólkið sér afmæliskaffi.
Gestir komu til leiks klukkan 15.00.
Þeim var fagnað með leik Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar. Sveinn Guð-
bjartsson ávarpaði gestina og bauð
þá velkomna. Guðmundur Árni Stef-
ánsson, heilbrigöis- og trygginga-
ráðherra, flutti árnaðaróskir og
þakkir til Sólvangs. Hann lýsti yfir,
að hann myndi leggja allt kapp á að
ljúka viðbyggingu við Sólvang á
skömmum tíma og sagði að nú þegar
yrði gerð nýtingaráætlun fyrir
Sólvang jafnframt því að skipuð yrði
framkvæmdanefnd undir forustu
Ingvars Viktorssonar bæjarstjóra.
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri færði
Sólvangi fallega mynd í tilefni
afmælisins og flutti þakkir og
árnaðaróskir frá Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar. Hann hét fullum
stuðningi bæjaryfirvalda við að ljúka
uppbyggingu Sólvangs.
Jóhann Ágúst Sigurðsson prófessor
afhenti gjöf frá Heilsugæslunni og
Rannveig Guðmundsdóttir flutti
kveðjur frá þingmönnum kjör-
dæinisins.
Bjarni Jónasson læknir afhenti
hljóðbylgjutæki, sem var gjöf frá
Hafnarfjarðardeild Rauðakrossins og
Birna Birgisdóttir formaður
starfsmannaráðs Sólvangs afhenti
grafískt verk sem var gjöf frá
starfsmönnum Sólvangs. Það prýðir
nú matsalinn þar.
Jón Gunnarsson listmálari gaf
Sólvangi fagurt málverk af Sólvangi
eins og liann var fyrir breytingar og
Rafn Sigurðsson flutti kveðjur frá
Lionsklúbbi Hafnarfjarðar og
tilkynnti að klúbburinn gæfi
Sólvangi fullkomin augnskoðunar-
tæki.
Almar Grímsson apótekari og kona
hans Anna Björk Guöbjörnsdóttir
gáfu 50 þúsund krónur í tækjasjóð
Sólvangs. Blóm, heillaóskir og
kveðjur bárust Sólvangi viða að.
Sveinn Guðbjartsson forstjóri
þakkaði góðar gjafir og hlýhug í
garð Sólvangs og bauð síðan
viðstöddum til kaffidrykkju jafn-
framt því akoða húsakynni og hitta
heimilismenn. Talið er að gestir hafi
verið nokkuð á sjötta hundrað.
Virðuleiki og reisn var yfir öllum
þessum afmælishátíðarhöldum og til
mikils sóma fyir þá sem fyrir þeim
stóðu.
Alþýðublað Hafnarfjarðar þakkar
Sólvangi og starfsmönnum hans
langa og góða þjónustu í þágu
Hafnfirðinga og óskar starfscmi
hans gæfu og gengis um langa
framtíð.
Gleðileg jól og gott
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða
STRANDGÖTU 33 • PÓSTHÓLF 188 • 220 HAFNARFIRÐl
Hafnfirð ingcir I
Verslun í eigin heimcibyggð
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar