Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.12.1993, Blaðsíða 16

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.12.1993, Blaðsíða 16
16 Alþýðublað Hafnarfjarðar Gréta með grafíkvinnnustofu Margrét Guðmundsdóttir opnaði vinnustofu á Lambastaðabraut 1 á Selt jarnarncsi í síðasta mánuði. Par er hún með fullkomið grafík- verkstæði. Margrét sýndi útskrift- arverkefni sín í Kænunni en hún fékk viðurkenningu frá grafík- dcildinni þegar hún útskrifaðist frá Myndlista - og handíðaskól- anum. Hún fékk cinnig viðurkenn- ingu fyrir hönnun á bókarkápu. Margrét er mörgum Hafnfirðingum að góðu kunn en hún er borin og barnfæddur gaflari. Hún var ung þegar hún átti sín fyrstu börn og gerðist þá húsmóðir. Hún lærði tækniteiknun og vann lengi á teikni- stofu en kenndi einnig um skeið við Iðnskólann í Hafnarfirði. Það varð hins vegar hlutskipti hennar að mennta sig ferkar eftir að börnin voru uppkomin. Margrét, eða Gréta eins og hún er oftast kölluð, hélt út til Svíþjóðar árið 1980 og lagði þar stund á frjálsa myndlist. Síðan fór hún til Kaup- mannahafnar og þreytti inntökupróf við Fredreksberg Tekniske skole. Það gekk vel og útskrifaðist hún þaðan sem innanhúsarkitekt eftir þriggja ára nám. Síðan lagði hún stund á myndlist við Kunstakadem- íuna í Kaupmannahöfn. Eftir að Gréta kom heim nam hún við Kennaraháskólann til að afla sér kennararéttinda sem framhaldsskóla- kennari samhliða því sem hún teiknaði og kenndi fagteikningu. Þar útskifaðist hún árið 1988. Að því loknu skellti Gréta sér í Myndlista- og handíðaskólann og nam þar í fjögur ár. Þaðan lauk hún prófi í vor, útskrifaðist úr grafík- deild. Síðan hefur Gréta verið að vinna að listi sinni en jafnframt tók hún að sér innrétta safnaðarathvarfið fyrir Hafnarfjarðarkirkju í gamla Sýslu- mannshúsinu. I síðasta mánuðu fékk hús svo vinnustofu á Lambastaða- braut 1 á Seltjamarnesi en hún mun halda til Hollands tímabudnið eftir áramótin til að stunda þar list sína. Mikilvægt að efla verslun í Hafnarfirði „Ég tel nijög mikilvægt aö Hafnfirðingar versli í Hafnarfirði”, sagði Hrefna Halldórsdóttir þegar Alþýðublaðið leit við hjá henni í verslun hennar í traffíkinni fyrir jólin. Hún sagði greinilegt að verslun í Hafnarfirði væri að eflast en samt væri of mikið um það að menn leituöu langt yfir skammt, því flesta hluti væri hægt oröið að fá í Hafnartirði. Sjálf rekur Hrefna Undirheima, verslun með fatnað, en leggur sérstaka áherslu á undirfatnað. Þar er t.d. að finna allan undirfatnað fyrir ófrískar konur. Þá er selur hún einnig sængurgjafir ýmis konar, galla, vagnpoka, rúmteppi og fleira. Hún bendir á að nú sé hún komin með undirfatnað frá Vanity-Fair. A sama stað rekur Hrefna sólbaðs- tofuna, Trimsól. Þar er hægt að fara í ljósalampa, en einnig er boðið upp á Trimform sem er alhliða nudd- og grenningartæki. Hrefna segir ntikla samkeppni ríkjandi á þessu sviði og því leggi hún áherslu á góða þjónustu. Mikið sé lagt upp úr góðri loftræstingu og hreinlæti. Auk þess bjóði hún upp á útvarps- og hljómflutningsgræjur við hvem bekk. Hún var bjartsýn á jólaverslunina. Hrefna við afgreiðslu í búð sinni, Undirheimum Hafnfiröinqar oq aðrir íbúar Stór-Hafnarf jarðarsvæðisins! Við hvetjum ykkur til að koma við í Alþýðuhúsinu á Þorláksmessu. Opið allan daginn Heitt kaffi og kökur Hafnfirskt - Já takk Stjórn F.UJ. Nýársfagnaður í Hafnarfirði 1. janúar Hátíðarmatseðill: Fordrykkur - Fjarðartár Lystauki að hætti Hraunholts Laxadúett m/villtu salati, furufræi og piparrótarsósu Kampavínssorbert m/ferskri sítrónumelisu Pönnusteiktur turnbauti m/kryddjurtasósu, gljáðum kartöflum og fersku grænmeti Þriggjalaga ísterta m/aprikósusósu og ferskum ávöxtum Kaffi og konfekt Húsið opnað kl. 19:00. borðhald hefst kl. 20:00 Á meðan á borðhaldi stendur verður leikin lifandi tónlist Skemmtidagskrá kvöldsins býður m.a. upp á: Kabarett, dansatriði sérstaklega samið fyrir kvöldið Söngatriði, ein efnilegasta söngkona landsins kemur fram Eldfjörugur kvartett kemur fram Gamanerindi og Hafnarfjarðarannáll Dansað til kl. 03:00 Veislustjóri: Magnús Scheving Bókanir eru þegar hafnar og verða til 28.12 í Hraunholti milli kl. 17:00 - 19:00 eða í síma 654740. Bókanir einnig í versl. Andorru, Strandgötu 32, sími 52615 Verð kr. 5.500,- pr. mann (afsl. fyrir hópa) Ath. ekkert hátíðarálag verður á bar og borðvíni Hafnfirðingar skemmtum okkur í heimabyggð Hraunholt Dalshrauni 15 - Sími 650644 & 654740 Jólakrossgáta Alþýðublaðs Hafnarfjarðar

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.