Dagfari - 15.04.2003, Qupperneq 4
þeirra sem vilja frið og þeirra sem vilja ekki frið þar sem hinir stríðsæstu
hafa enn á ný fallið í þá gildru hugans að hræðsla þeirra við umheiminn sé
rétt. í Kóreustríðinu voru herdeildir staðsettar á strönd Virginíu-fylkis á
austurströnd BNA þar sem dagskipunin var að verjast innrás frá norður-
Kóreu. í Víetnamstríðinu stafaði, samkvæmt Morgunblaðinu, íslendingum
stórhætta af norður-Víetnam. Síðast voru það BNA og vestræn menning sem
voru í stórhættu vegna Afganistan.
Nú er það írak. Sú vænissjúka sýn á heiminn sem íslenskir stuðningsmenn
þessa stríðs hafa, sýnir okkur hinum hvað þeir eru í raun og veru.
Aumkunarverðir, heimóttarlegir sveitamenn með varanlega minnimáttar-
kennd gagnvart öllum heiminum. Þeirra endalausu hártoganir á lögum og
ályktunum til réttlætingar stríðinu opinbera einnig öfgakendustu birtingar-
mynd óttans, lygina.
Þrælslund gagnvart herraþjóðinni
Sú endalausa fylgispekt íslendinga við BNA opinberar einnig hvort tveggja,
hina undirokuðu þjóð sem bundin er á klafa hermangsins sem og hina yfir-
gengilegu vanþekkingu á sögu og samfélagi þeirrar þjóðar sem þeir hafa
valið sem sinn helsta bandamann.
Þetta hefur gert það að verkum að helstu „afrek“ íslenskrar utanríkisstefnu
eru blóði drifin og svo heimskuleg að engu tali tekur. Nægir þar að nefna
„afrekið“ er íslendingum var att á foraðið af BNA og þeir látnir vera í for-
göngu fyrir stofnun Ísralesríkis. „Afrek“ þetta hvílir nú undir svo þykku lagi
af storknuðu blóði að aldrei er minnst á. Ekki er heldur ýkja langt síðan að
utanríkisráherra var sendur út af örkinni í opinbera heimsókn til Israel þar
sem hann faðmaði Ariel Sharon, hvers verk hafa verið fjöldamorð hér áður
fyrr og dráp á börnum á vorum dögum. í síðasta mánuði tókst hermönnum
hans m.a. að skjóta til bana tveggja ára gamla stúlku. Tveggja ára gamla
stúlku!
Það hlálega er að öll þessi „afrek“ og allur þessi stuðningur við BNA er og
hefur verið óþarfur. íslendingar hafa alla tíð vel getað haldið áfram sem
aðilar að vestrænu samstarfi og NATÓ samstarfi alveg eins og fjölmörg
önnur ríki hafa gert en án þessarar fylgispektar.