Dagfari - 15.04.2003, Qupperneq 5
Og nú hafa menn aftur „tekið sér stöðu”. Og aftur á upplognum forsendum.
Og aftur er með innantómum loforðum stuðningur veittur við stríð. Stríð
sem eins og öll hin stríðin hafa engan sigurvegara þegar upp er staðið. Stríð
sem eins og öll hin stríðin stafa af heimsku og illsku allra sem fyrir stríðið
gerðu ekki skyldu sína og tóku afdráttarlausa stöðu með lífinu. „Lýðræði og
uppbygging í lrak“ hljómar vel. Fögur orð forsætisráðherrans eru sorgleg
endurómun á þekktustu, hlálegustu og í raun firrtustu ummælum bandarísks
foringja úr stríðinu í Vietnam sem sagði er hann hafði lagt enn eitt „óvina-
þorpið“ í rúst. „In order to save the village, we had to destroy it’’.
Ritskoðun Morgunblaðsins
Hörmulegast er þó að horfa á ritskoðunartilburði Morgunblaðsins til
réttlætingar þessu stríði þar sem blaðið gefur sig er nú einu sinni út fyrir að
styðja pren- og málfrelsi. Enn einu hefur það sýnt sig að prentfreslið tilheyrir
þeim sem eiga prentmiðlana og ömurlega vænissjúk og þekkingarsnauð um-
fjöllun Moggans um Íraksstríðið hefur, kannski sem betur fer, staðfest enn á
ný algert gagnleysi blaðsins sem ábyrgs fréttamiðils.
Fimmtudaginn 11. apríl mætti ég í bandaríska sendiráðið hér í Reykjavík,
afhenti bandarískt vegabréf mitt og afsalaði mér bandarískum ríkisborgara-
rétti. Það viti firrta samfélag sem hefur ofbeldisdýrkun, stríð og aftökur til
vegs og virðingar, sem fyrirlýtur og misnotar alþjóðastofnanir, sem brýtur
alþjóðalög, og sem í gegnum tíðina ber ábyrgð á tilefnislausum dauða mill-
jóna og aftur milljóna manna, það samfélag getur ekki verið mitt, ekki
lengur.
Og þótt ísland, í þínu nafni lesandi góður, sé á sama báti og BNA í þessu
stríði eins og oft áður, munum við þó vonandi, með samstilltu átaki, ná að
stöðva þessa utanríkisstefnu andskotans, þó ekki verði fyrr en í kosningun-
um þann 10. maí næstkomandi. Við verðum.
Þór Saari
www.fridur.is