Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 6

Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 6
SKÝRSLA FORMANNS Endurkoma Krists er það efni Biblíunnar sem er Sjöunda dags aðventistum kærara en nokkuð annað. Endurkomunni er gjarnan líkt við hámark sögunnar þegar bundinn verður endir á synd og þær hörmulegu afleiðingar sem hún hefur haft í för með sér. En endurkoma Krists beinist fyrst og fremst að fólki Guðs sem hefur vænst og væntir komu hans. Þetta er tími fagnaðar og gleði. "Á þeim degi mun sagt verða: "Sjá þessi er vor Guð, vér vonuðum á hann, að hann mundi frelsa oss. Þessi er Drottinn, vér vonuðum á hann. Fögnum og gieðjumst yfir hjálpræði hans" Jes 25.9. Þá hefur endurkomu Krists einnig verið líkt við uppskeru. "Kornskurðurinn er endir veraldar" segir Kristur er hann útskýrir eina af dæmisögum sínum fyrir lærisveinunum. í Opinberunarbókinni (14. 15-16.) segir: "Og annar engill kom út úr musterinu. Hann kallaði hárri röddu til þess sem á skýinu sat: "Ber þú út sigð þína og sker upp, því að komin er stundin til að uppskera, sáðland jarðarinnar er fullþroskað. Og sá, sem á skýinu sat, brá sigð sinni á jörðina og upp var skorið á jörðunni". Hin fullþroska uppskera kemur ekki af tilviljun. Starf Guðs á himnum, starf Krists og starf Heilags anda, starf englanna, starf safnaðarins hér á jörðu miðar allt að því að ávöxtur fórnar Krists verði sem mestur, miðar allt að því að "búa Drottni altygjaðan lýð" (Lk 1.17). "Þannig styrkir hann hjörtu yðar, svo að þér verðið óaðfinnanlegir og heilagir frammi fyrir Guði föður vorum, við komu Drottins vors Jesú ásamt öllum hans heilögu" ( 1Þ 3.13). Starf Samtakanna er fyrst og fremst þjónusta, þjónusta við Krist, að boða hinn eilífa fagnaðar- boðskap, að frelsa sálir inn í Guðs ríki. Þjónusta við þá sem þannig sameinast söfnuði Guðs, þjónusta við söfnuðinn. "Og frá honum er sú gjöf komin, að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar. Þeir eiga að fullkomna hina heilögu og láta þeim þjónustu i té, líkama Krists til uppbyggingar, þangað til vér verðum allir einhuga í trúnni og þekkingunni á syni Guðs, verðum fullþroska og náum vaxtartakmarki Krists fyllingar". (Ef 4.11- 13). Safnaðarstarfið hvílir afar mikið í höndum leik- manna, og kemur það væntanlega fram í hinum ýmsu skýrslum sem fyrir fundinum liggja. En einnig eru kjörnir og ráðnir starfsmenn eins og hér greinir: Aðventfréttir 5. 1988 STARFSFÓLK SAFNAÐARINS Samtökin: Vígðir prédikarar Gjaldkeri Skrifstofustúlka Barnaskólakennarar (annar þeirra í hluta- 2 starfi). samtals: 8 Bókaforlag: Forstjóri 1 Afgreiðslukona (í hlutastarfi) 1 samtals: 2 Alls hjá Samtökunum og Bókaforlaginu (að starfsgildum 9) 10 Hlíðardalsskóli: Fastráðnir (einn í hálfu starfi) 8 Sjálboðaliðar 3 samtals: 11 Að starfsgildum 10,5. TALA SAFNAÐARFÓLKS: Á þessu tímabili, 1982-1985, bættust í systkinahópinn fyrir skírn: 1985 - 5 1986 - 2 1987 - 5 1988 - 1 samtals: 13 4 1 1

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.