Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 33

Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 33
2. Strangari kröfur um nemendaval sem eigi sér stoð í fjárhagsgrundvelli skólans. 3. Nýtt "prógram" 4. Fjármögnun. a. Fjárhagslegur grundvöllur tryggður. b. Viðunandi lausn á skuld skólans. Lausn á þessum skilyrðum verða að vera fyrir hendi fyrir 1. Júní n.k. ÞAKKIR Fulltrúar á 30. aðalfundi Sjöunda dags aðventista á íslandi vilja þakka: Guði fyrir kærleika hans og leiðbeiningu á liðnum tíma. Stór-Evrópudeildinni fyrir skilning á málefnum safnaðarins hér á íslandi og góðan stuðning. Bræðrunum, Dr. Jan Paulsen og Karel van Oossanen veru þeirra og leiðsögn á þessum aðal- fundi Megi Guð blessa sérhvern safnaðarmeðlim og undirbúa okkur til að taka á móti frelsara okkar og Drottni Jesú Kristi. FORMANNSSKIPTI Við upphaf nýafstaðins aðalfundar gaf Erling B. Snorrason til kynna að æskilegt væri að nýr maður tæki við sem formaður Samtakanna. Hann hefði verið átta ár í þessu starfi og að rétt væri að breyta til. í framhaldi af þessu var nýr formaður kosinn, Eric Guðmundsson sem verið hefur safnaðarprestur í Reykjavík síðast liðin fjögur ár. Við viljum hér með þakka Erling B. Snorrasyni fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu safnaðarins sem leiðtogi starfsins á íslandi og Jeanette A. Snorrason, eiginkonu hans, fyrir stuðning hennar og fórnfýsi í gegnum árin. Á sameiginlegum fundi skólanefndar Hlíðardals- skóla og stjórnar Samtakanna sem haldinn var sunnudagskvöldið 17. apríl, 1988, var Erling kallaður til starfa fyrir söfnuðinn sem skólastjóri Hlíðardalsskóla og Jeanette A. Snorrason kona hans sem kennari að Hlíðardalsskóla og hafa þau hjónin tekið þessu kalli. Um leið og við þökkum þeim hjónum vel unnin störf á liðnum árum óskum við þeim alls góðs og Guðs blessunar í því starfi sem þau hafa tekið að sér næstu árin. Við viljum bjóða Eric Guðmundsson hjartanlega velkominn til starfa sem formaður Samtakanna og leiðtogi starfsins á íslandi, óskum við honum og eiginkonu hans Lailu Guðmundsson Guðs blessunar í þessu mikla ábyrgðarstarfi. Jóhann E. Jóhannsson, ritari. • KVEÐJUR OG ÞAKKIR S.l. rúm átta ár hafa verið fljót að líða. Þetta hefur verið ánægjulegur tími með góðu samstarfsfólki og aldrei höfum við mætt öðru en hlýju, góðum hug og miklum stuðningi frá safn- aðarsystkinunum. Við hjónin höfum fundið það greinilega að þið, kæru systkini, hafið borið okkur á örmum bænarinnar. í samræmi við meginreglur okkar starfs, að leiðtogar í ábyrgðarstöðum séu ekki of lengi á sama stað, þótti okkur rétt að láta það í ljósi við upphaf aðalfundarins að tími væri kominn til að finna nýjan forstöðumann starfs okkar hér á landi. Um leið og ég þakka samstarfsmönnum mínum öllum og ykkur, kæru systkini, kærlega fyrir gott og ánægjulegt samstarf á undan- förnum árum, vil ég óska Eric og Lailu allrar Guðs blessunar svo og öllum starfsmönnunum. Megi Guð blessa hvern og einn safnaðarmeðlim, sérhvert aðventheimili og allt starf safnaðarins á þessu landi. Mættum við sjá mikla trúmennsku og safnaðarvöxt á komandi árum og mættum við ekki aðeins vænta heldur einnig flýta fyrir komu Jesú Krists. Erling og Jeanette ( Aðventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.