Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 14
SKIPTING REKSTRARÚTGJALDA SAMTAKANNA
í
I
I
I
i
Íf] LflUNAúTGJbLD
71.7 V.
S öNNUR ÚTGJÖLD
10.1 •/.
íjjjj OEILDARSTöRF
1.3 /
m STóR-EURóPUD.
“ 11.4 ■/.
m FASTEIGNIR
sSa
Skýringarmynd 5
Tölvumiðstöðinni hf. Hefur þetta fyrirkomulag
þjónað starfinu mjög vel en var orðið
hlutfallslega mjög dýrt þar eð tölvur hafa
lækkað verulega í verði á síðustu árum. Var því
ákveðið á síðasta ári að festa kaup á tölvu fyrir
bókhald starfsins og verður allt bókhald
framvegis fært á skrifstofu Samtakanna.
Skuld Samtakanna við Stór-Evrónudeildina
Á síðastliðnu tímabili myndaðist skuld
Samtakanna við Stór-Evrópudeildina sem er nú
um 4 milljónir króna. í þessu samhengi skal það
nefnt að Hlíðardalsskóli komst á sama tíma í
skuld við Samtökin sem nemur svipaðri upphæð.
Erfitt er að finna eina ástæðu fyrir þessari
stöðu, en ljóst er að þar hefur margt hjálpast að
og þá sérstaklega erfiður rekstur og viðhalds-
framkvæmdir umfram efni að Hlíðardalsskóla.
Viðræður eru í gangi við Stór-Evrópudeildina um
hvernig skuli gera upp skuld þessa og er þess
vænst að það mál leysist áður en langt um líður.
FOSSVOGSBYGGINGIN
Undirbúningur byggingar skóla- og menningar-
miðstöðvar í Fossvoginum hefur sett mikinn svip
á síðasta tímabil. Er hér um að ræða langþráð
verkefni og eitt stærsta verkefni sem söfnuður-
inn hefur ráðist í hin síðari ár. Mikil vinna
hefur farið í þennan undirbúning við endanlega
afgreiðslu lóðamáls, teikningar arkitektsins, svo
og fjármögnun. Áætlaður kostnaður við bygging-
una er kr. 41,345,000 sem skiptist þannig:
Frá 13. hvíldardagsskólafórn
Frá Stór-Evrópudeildinni
Frá Samtökunum og safnaðar-
meðlimum
Frá allsherjarsjóði Samtakanna
Frestun frágangs (síðari fjár-
mögnun)
Sjálfboðavinna á 5 árum
Frá Reykjavíkurborg (umsókn um
niðurfellingu gatnagerðargjalda)
8,000,000
7,345,000
13,500,000
5,000,000
3,000,000
1,500,000
3,000,000
Áætlaður byggingarkostnaður 41,345,000
Endanlegar útlitsteikningar munu liggja fyrir
innan skamms og hefur verið ákveðið að gefa út
aukaeintak af AÐVENTFRÉTTUM með myndum
og öðrum upplýsingum fyrir safnaðarmeðlimi.
Árið 1985 sendu margir safnaðarmeðlimir loforð
um framlög til þessarar byggingar. Þegar hefur
talsvert fé borist til Samtakanna frá hinum
ýmsu trúsystkinum. Framlög sem borist hafa í
þennan hátt á undanförnum þrem árum eru sem
hér segir:
1985 kr. 189,951.30
Adventfréttir 5. 1988