Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 22
hjónamótum en hefur notið aðstoðar ýmissra
starfsmanna og maka þeirra, ekki minnst Jónu og
Þrastar sem stutt hafa þetta starf með ráðum og
dáð, sem þau lögðu grundvöllinn að. Einnig hafa
aðrir tekið virkan þátt í framkvæmd hvers móts
og tvenn hjón hafa verið valin til að taka
sérstakan þátt í undirbúningi, stjórnun og
framkvæmd hvers móts og kunnum við þessum
aðilum innilegustu þakkir fyrir velunnin störf.
Árin 1986 og 1987 voru mót haldin að Munaðar-
nesi og Húsafelli og í fyrirlestrum og umræðum
var fjallað um ýmis efni svo sem sjálfsímynd,
samskipti foreldra og barna, traust, gagnkvæma
virðingu, tjáskipti o.fl.
Af öðru sem gerst hefur á vegum fjölskyldu-
deildarinnar má nefna guðsþjónustur sem haldnar
hafa verið í Reykjavík þar sem fjallað hefur verið
um málefni fjölskyldunnar og einnig hefur farið
fram ráðgjafastarfssemi.
Söfnuðurinn hefur verið kallaður til þess að gegna
mikilvægu hlutverki á okkar tímum, einnig hvað
varðar verndun og eflingu fjölskyldnanna. Hér er
verk að vinna bæði innan safnaðarins sem utan. í
ljósi þessa er það augljóst að það verk sem hér
hefur verið greint frá stuttlega er hvergi nærri
fullnægjandi, og betur má ef duga skal. Það er
einlæg ósk okkar að starf fjölskyldudeildarinnar
mætti eflast fyrir kraft Heilags anda og visku
Guðs á komandi starfstímabili.
Reykjavík 7. apríl 1988
Laila og Eric Guðmundsson •
SKÝRSLA HVÍLDARDAGSSKÓLA DEILDARINNAR
Síðaðstliðið þriggja ára starfstímabil hefur enginn
deildarstjóri fengist til að veita forstöðu hvíldar-
dagsskóladeildinni. Samt hefur hvíldardagsskólinn
verið í sókn og á því sést vel hve rótgróinn
hann er og hversu ríkan sess hann skipar í lífi
safnaðarins.
Mjög stórt skref var stigið í málefni hvíldardags-
skólans á síðasta aðalfundi, þá var samþykkt að
gefa út sérstakar hvíldardagsskólalexíur fyrir
unglinga. Þetta hefur verið gert og hefur Bóka-
forlagið haft veg og vanda af þeirri útgáfu. í
haust verður komin heil lexíuröð, þriggja ára
lexíuröð, sem síðan má nota aftur, líkt og gert er
með lexíur yngri aldurshópa.
Annað framfaraspor, afar skemmtilegt, er nýtt
útlit og viðbótarefni í lexíum fullorðinna. Þær eru
nú prentaðar í Danmörku og fáum við þar sömu
litkápu og er á dönsku lexíunum. Auk lexíanna
sjálfra er svo að finna "Fréttir frá heimsstarfinu"
(áður kallað kristniboðsfrásagnir), kirkjuárið,
sólarlagstöflu, morgunvöku og loks skrá yfir
bækur Ellen G. White.
Fjölmargir hafa lokið lofsorði á þessar nýju lexíur
og látið í ljósi þakklæti fyrir þetta viðbótarefni.
Sérstaklega hafa "Fréttir frá heimsstarfinu" létt
undir með þeim sem áður voru að þýða þessa
lestra úr ensku og dönsku. Einnig hefur þetta
nýja fyrirkomulag orðið óvæntur liðsauki í að
virkja marga fleiri til þátttöku í hvíldar-
dagsskólanum.
í heildina virðast safnaðarmeðlimir vera trúfastir
meðlimir hvíldardagsskólans. Mikið og fórnfúst
leikmannastarf er unnið vikulega á þeim vettvangi
ekki síst í barnahvíldardagsskólanum. Oftast
hvílir hið mikla starf barnahvíldardagsskólans á
fárra herðum ár eftir ár. Og því vandaðri sem
barnahvíldardagsskólinn er, og þannig er hann
hér á landi, þeim mun meiri vinna í undirbúningi.
Sérstakar þakkir til þeirra sem þannig vinna dýr-
mætt starf fyrir börnin okkar vikulega, ár eftir
ár.
Um hvíldardagsskólagjafir vísast til skýrslu
gjaldkera Samtakanna. Gagnlegt væri að fulltrúar
ræddu ýmis mál hvíldardagsskólans, þann tíma
sem þessum málaflokki er ætlaður, svo sem:
namskeið fyrir hvíldardagsskólakennara, tímann
sem yfirferð Iexíu er ætlaður, breiðari þátttöku í
stjórnun hvíidardagsskólans, öflugra átak í að
bjóða vinum og kunningjum í hvíldardagsskólann.
Þökk sé öllum þeim sem gert hafa hvíldar-
dagsskólann að þeirri blessun sem hann er og
hefur verið.
Erling B. Snorrason •
Aðvent/réttir 5. 1988