Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 21
SKÝRSLA BÓKAFORLAGSINS
Frá síðasta aðalfundi hafa eftirtaldar bækur komið
út á vegum Bókaforlagsins.
Á árinu 1985 bættust við 5 nýjar bækur í 15
bóka smáritasafnið og bera þær nöfnin:
Verða heilbrigðir að deyja?
Hvers vegna stendur öllum á sama?
Að tjóðra sólina
Valkosturinn
Sýkn saka
Svo komu þær næstu fimm á árinu 1986 og hétu
þær:
Endimörk tímans
Hvað er handan grafar?
Hemill á streituna
ísrael og kirkjan
Undir opnum himni
Þá eru þær komnar, allar fimmtán í smábóka-
safnið, og er mikill fengur í því að hafa þau öll,
þessi góðu og uppbyggilegu smárit nú til
dreifingar. Á síðasta ári létum við líka
endurprenta fyrstu fimm ritin eftir George E.
Vandeman, því þau voru þá uppseld.
"Maðurinn sem breytti heiminum" er
teiknimyndabók sem kom út 1986. Þetta er bók
um líf og starf Jesú og fyrstu ár postulanna.
Teiknimyndabók þessi er sú eina sinnar tegundar
hér á landi og er ætluð til að vega eitthvað upp á
móti því flóði af misjafnlega góðum
teiknimyndabókum sem nú flæðir yfir æsku þessa
lands.
"Hvers vegna?" er barna- og unglingabók sem
við sendum frá okkur 1987. í þessari bók er
svarað mörgum spurningum sem vakna hjá ungum
sem öldnum við hin ýmsu og oft á tíðum
óskiljanlegu atvik daglegs lífs. Þar er sýnt fram á
blekkingar Satans og viðleitni hans til að spilla
og eyðileggja sköpunarverk Guðs, en einnig
hvernig góður Guð leiðir allt til góðs, fyrir þá
sem hann elska.
"Barátta um borð", bók sem áður hafði verið
gefin út 1921 undir nafninu "Sigur kærleikans",
kom líka á markaðinn á árinu 1987, endurþýdd af
Sigurði Bjarnasyni. Þetta er sönn frásögn um
afturhvarf og breytt líferni drykkfellds sjómanns
um aldamótin, og hvernig fyrirbænum og tárum
elskandi móður var svarað, honum og fjölda
annarra til blessunar.
Biblíulexíurnar fyrir alla aldurshópa hafa svo
sem endranær komið reglulega út,
ársfjórðungslega.
Vonandi tekst okkur að koma þessum bókum inn
á sem flest íslensk heimili, samlöndum okkar,
smáum sem stórum til tímanlegrar og eilíflegrar
blessunar.
Trausti Sveinsson •
SKÝRSLA UM FJÖLSKYLDUMÁL
Vegna þeirrar upplausnar og kreppuástands sem
ríkir í málefnum fjölskyldunnar í vestrænu
þjóðfélagi í dag hefur þeim spurningum verið
varpað fram af málsmetandi mönnum hvort hjóna-
bandið og það fjölskyldumynstur sem við búum við
í dag hafi gengið sér til húðar.
En menn vilja gleyma því að hjónabandið er
stofnað af Guði sjálfum við sköpun heimsins og
þau lögmál sem liggja til grundvallar
hjónabandinu og fjölskyldunni eru lögmál Guðs.
Að þekkja þessi lögmál og fylgja þeim er
frumskilyrði hamingjusams hjónabands.
En í þjóðfélagi okkar í dag eru margir sem
þekkja hvorki þessi lögmál né höfund þeirra. í
stað þess að endurspegla dýpt hins guðdómlega
kærleika í sambúð og samskiptum einstaklinga
verður fjölskyldan oft vettvangur valdabaráttu í
anda þeirrar ólgu og upplausnar sem ríkir innan
þjóðfélagsins. Hve ógnvekjandi er ekki fjöldi
hinna uppleystu heimila. Hver getur metið alla þá
ógæfu sem af þessu hlýst, eða þann sársauka,
ótta og kvíða bæði maka og barna sem hlut eiga
að máli?
í maí 1985 var sérstök fjölskyldudeild stofnuð
innan Samtakanna og tilgangur hennar var skipu-
lagning fyrirbyggjandi og leiðbeinandi starfs í
' sambandi við málefni fjölskyldunnar og var okkur
hjónum falin stjórn þeirrar deildar. Þegar þetta
átti sér stað hafði þegar verið hafið starf varðandi
þessi mál og mót hafði verið haldið að frumkvæði
Þrastar B. Steinþórssonar að Ölfusborgum, Hvera-
gerði, í apríl það ár. Þangað var hjónum boðið að
koma og fjallað var um ýmis mál hjónabandinu og
f jölskyldunni aðlútandi. Síðan hefur
fjölskyldudeildin formlega staðið að árlegum
Aðvent/réttir 5. 1988