Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 32
áliti til stjórnar samtakanna eigi síðar en
janúarlok 1989.
6. að stuðlað verði að aukinni þjónustu við
safnaðarmeðlimi sem njóta ekki safnaðar-
og/eða prestsþjónustu að staðaldri.
7. að unnið verði að því markvist að örva
upplýsingaflæði milli hinna ýmsu stjórna
safnaðarins og hins almenna safnaðarmeðlims.
8. að áhersla verði lögð á, að unga fólkið taki
virkan þátt í almennu safnaðarlífi, svo sem
hvíldardagsskóla, guðsþjónustu og stjórnunar-
störfum.
III.
Aðferð Jesú í boðunarstarfi sínu var sú að
hann notaði tíma til að umgangast almenning
og sinna líkamlegum og tilfinningalegum
þörfum fólks og þannig undirbjó hann jarð-
veginn fyrir þann andlega boðskap sem
hann hafði fram að færa. í ljósi þessa
leggjum við enn frekar til í sambandi við
boðunarstarf safnaðarins:
1. að könnuð verði sérstaklega þörf einstaklinga
og þjóðfélagsins hverju sinni og að sérhver
boðun safnaðarins í formi útgáfustarfs og
þjónustu bóksala, Biblíubréfaskóla, nám-
stefna o.s.frv. hafi sem takmark að full-
nægja ríkjandi þörf.
2. að áhersla verði lögð á að safnaðarmeðlimir
verði virkir í boðunarstarfi safnaðarins t.d.
sem leiðbeinendur og/eða aðstoðarmenn við
námstefnur.
3. að kannað verði gaumgæfilega hvernig hægt
sé að nýta fjölmiðlana í þeim tilgangi að
snerta líf almennings í landinu og að gerð
verði langtíma áætlun um uppbyggingu
fjölmiðlastarfs.
4. að stefnt verði að því að minnsta kosti einn
nýr söfnuður verði stofnaður á komandi
þriggja ára starfstímabili.
VI. Varðandi skólamál leggur aðalfundurinn enn
frekar til:
að kannaðir verði möguleikar á að nýta að-
stöðuna á Hlíðardalsskóla til uppbyggingu
starfs safnaðanna.
V. Aðalfundurinn mælist til þess að stjórn
Abventfréttir 5. 1988
Samtakanna og hver safnaðarstjórn um sig
leggi drög að framkvæmd ofangreindra
tillagna eftir því sem við á, og að slík
framkvæmdaáætlun verði birt í Aðventfréttum
eigi síðar en Október ár hvert á komandi
þriggja ára tímabili.
* * * *
Tillaga sem barst frá sameiginlegum fundi
fráfarandi stjórn samtakanna og skólanefnd HDS.
HLÍÐARDALSSKÓLI
Fulltrúar á 30. aðalfundi SDA á íslandi leggja til
að halda áfram skólahaldi á Hlíðardalsskóla af
þessum ástæðum:
1. Getum komið kristnum áhrifum, boðskap
Krists, hinum sérstaka boðskap fyrir okkar
tíma, að aðventboðskapnum til margra ung-
menna, fjölskyldna þeirra, ættingja og vina.
2. Einhverjir nemenda gætu unnist.
3. Framlag til þjónustu við þjóðfélagið eins og
verið hefur.
a. Liður í fyrirbyggjandi starfi gegn ýmsum
neikvæðum áhrifum sem herja á ungt fólk.
b. Hjálpa unglingum sem eiga við erfiðar
heimilisástæður að etja.
c. Sumarbúðastarf.
4. í dag má segja að skólinn og staðurinn
allur sé vel búinn til áframhaldandi
skólastarfs - að byggingu og ýmsu öðru.
5. Fyrir jákvæða kynningu af aðventsöfnuðinum
og aðventboðskapnum má eyða fordómum og
vanþekkingu þar sem slík kynning næði
eyrum og athygli.
6. Gefur möguleika á aðventframhaldskóla síðar
meir þyrftum við á slíkum skóla að halda.
7. Gæti verið góð nýting á fjármunum (ríkis-
styrk, skólagjöldum) sem annars hyrfu úr
starfi safnaðarins.
SKILYRÐI FYRIR ÁFRAMHALDANDI SKÓLA-
HALDI.
1. Gott samhent starfslið ráðið til minnst 3-5
ára tímabil.