Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 18

Aðventfréttir - 01.05.1988, Blaðsíða 18
hvarvetna hefur ríkt og hljómað óvissan um, hvort yrði skóli næsta ár. Slíkur málblær hlýtur að hafa neikvæð áhrif allsstaðar og á alla, hugsanlega nemendur, hugsanlegt starfsfólk og alla, sem við málið koma. Og fyrir þann, sem er í forsvari er afar erfitt að magna og efla starf á slíkum óvissu grundvelli. Hlíðardalsskóli sem slíkur Þessi skóli ætti að vera í stakk búinn til að framkvæma framhaldsmenntun allt upp í há- skólastig. Grunnskólinn ætti að afgreiðast í safnaðarskólunum, Hlíðardalsskólinn fyrir fram- haldið. Framkvæmdir Hér væri réttara að segja: Stórframkvæmdir, því að á liðnu starfstímabili hefur slíkt átt sér stað: 1. Heimavist Miðheima - kvennavist - var endurnýjuð í hólf og gólf með því að allar innréttingar, hurðir og dyrakarmar meðtalin, gólfdúkar, gólfteppi, allt hvað heitir og er, var endurnýjað, allt málað í hólf og gólf. Stendur sú vist því sem ný væri og vel til allra hluta vandað. 2. Ráðist var í að standsetja böð og búningsklefa við Leikheima - fimleika- og hátíðarsal skólans Því miður var ekki hægt að fullljúka því verki einungis að koma þessu húsnæði í nothæft ástand. 3. Á síðastliðnu sumri voru öll húsakynni staðarins máluð að utan og er ytra svipmót staðarins svo sem best verður á kosið. 4. Keyptir voru stólar í báðar vistir og eina kennslustofu. 5. Sófar beggja vista voru búnir nýju áklæði, svo og ýmsir gamlir stólar, sem slíks þurfti með. 6. Nýja, vandaða ljósritunarvél eignaðist skólinn á yfirstandandi skólaári. Þannig hefur margt stórvægilegt áunnist á þessu tímabili og erum við þakklát fyrir það, öllum sem við málin hafa komið. Bíðandi verkefni Hér skal nefna ýmislegt, sem bíður afgreiðslu. 1. Uppþvottaherbergi skólans vantar endurnýjun - flísalagningu, vinnuborð, vaska og rör- lagnir. Þessar vistarverur eru í óhæfu ástandi. 2. Vesturvæng Sveinheima - piltavistar vantar endurnýjun. 3. Böð og búningsklefar við Leikheima vantar flísalagningu, bekki með veggjum og fata- hengi. 4. Sundlaugina þarf að tengja hitaveitu skólans. Fram að þessu, og enn, er heita vatnið leitt í ofanjarðarröri beint frá Ókólni (borholunni) þetta er alls ófullnægjandi og stórhættulegt. Þegar hefur orðið af þessu eitt alvarlegt slys, þó fyrir Guðs mildi ekki yrði svo slæmt sem tilefnið var. Sárt er, að ævilangt mun maður, sem nú er bara smásveinn bera merki ólokins verks. 5. Enn vantar glugga í snyrtingu tengibyggingar milli Leikheima og Sveinheima, svo í kjall- araglugga þar. 6. Enn vantar húsgögnin í dagstofu Miðheima (kvennavist). Að koma þar inn er sem að ganga út á eyðimörk 7. Þá vantar skólann ritvél, hér er aðeins til ein, eldgömul ritvél. Slíkt gekk fram af skólaskoðunarmönnum erlendum. Þetta er auðvitað óviðunandi, en þar kemur til mótvægis, að tölvan, sem var á skrifstofunni í Reykjavík á að ganga hingað, þegar búið er að losa hana fyllilega þaðan. Þrátt fyrir það vantar samt ritvél í raun og veru. 8. Þá vantar tilfinnanlega dýnur í leikfimi- salinn. 9. í eldhúsið þyrfti að koma loftræstitæki yfir eldavélina, gufugleypir hefur slíkur búnaður verið nefndur. 10. Báðar snyrtingarnar í Miðheimum bíða endur- nýjunar. 11. Eins og er á skólinn engin bollapör. Af þessum lista sést, að ýmislegt bíður enn, í afgreiðslu, en misjafnlega brýnt og kostnaðarsamt. Fyrir hönd skólans skal þakka allar gerðar umbætur. Skírn Þó ekki sé hægt að tilfæra tölur um skírða einstaklinga í þessari greinargerð, því miður, Aðventfréttir 5. 1988

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.