Aðventfréttir - 01.05.1988, Qupperneq 23
SKÝRSLA LEIKMANNADEILDAR
Allt safnaðarstarf er að miklum hluta leikmanna-
starf. Hvíldardagsskóli fullorðinna og barna,
skátastarfið, ungmennastarfið, söng- og tónlistar-
starfið, margs konar félagsstarfsemi, aðstoð við
opinbert starf, heimsóknarstarf, starf systra-
félagsins, haustsöfnunin, fundar- og nefndarstörf,
allt þetta og meira til er þrotlaust leikmanna-
starf. Ýmislegt af þessu starfi fær umfjöllun í
öðrum skýrslum. Hér vil ég því nema staðar sér-
staklega við þrennt: Starf Systrafélaganna,
haustsöfnunina og tækifærin til að vinna að
boðun.
Systrafélögin
Starf systrafélaganna er sennilega það starf í
söfnuðinum sem flestir verða sem minnst varir við
og sem hvílir á alltof fárra herðum. Líknar- og
hjálparstarf safnaðarins þarf að vera starf allra
þótt það megi gjarnan vera og er best komið,
undir stjórn systranna. Það sem við köllum starf
systrafélaganna var afar ríkur þáttur I starfi
frelsarans, og opnaði oft leiðina fyrir hinn
andlega boðskap til hjálpræðis.
Öflun fjár til þess að geta líknað og hjálpað
öðrum er stór þáttur í öllu starfi systra-
félaganna. Hinn árlegi basar er sjálfsagt þekkt-
asti viðburðurinn á starfsári systrafélaganna. En
hve mörg okkar þekkjum til fataúthlutunar og
þess gífurlega undirbúnings sem það krefst? Eða
flóamarkaðs og þeirrar vinnu sem hann kostar
kvöld eftir kvöld? eða jólaúthlutunarinnar?
Hér þyrftu sannarlega að koma til fleiri hendur.
Þökk sé þeim, sem að þessu starfa, fyrir fórnfúst
og óeigingjarnt starf.
Haustsöfnunin
Haustsöfnunin er árlegur viðburður sem varla fer
framhjá nokkrum safnaðarmeðlim. Söfnunin er
stórátak hjá ekki stærri hóp og skiptist í tvo
hluta. Annars vegar eru söfnunarferðirnar til
Akureyrar og umhverfis landið og sérstök ferð um
Snæfellsnes og hinsvegar söfnunin í heimasvæðum
safnaðanna. Sérstaka athygli vekur hinn mikli
munur á söfnun í hinum vel - ræktuðu heima-
svæðum og svo aftur þar sem engir safn-
aðarmeðlimir búa og söfnunarhópur kemur að, oft
á óhentugum tíma dags.
Svo virðist sem þátttaka í haustsöfnun hafi
almennt aukist á s.l. þremur árum, sérstaklega á
meðal unga fólksins, bæði í ferðunum um Iandið
og sérstaklega í sumum heimasvæðunum.
Móttökurnar hjá almenningi hafa ætíð verið mjög
góðar, og ef nokkuð þá hafa þær orðið betri með
hverju árinu.
Heildarsöfnunin s.l. þrjú ár var sem hér segir:
* 1985 - 2.599.064,15
* 1986 - 3.058.759,19
* 1987 - 3.700.000,00
Boðun
Á s.l. þremur árum hafa 10 smábækur, svokölluð
fimmbóka sett, bæst við þær fimm eftir George
Vandeman sem komu út árið 1984. Þessar bækur
hafa verið afar vinsælar og fjöldi manns notað
þær í sínu persónulega útbreiðslustarfi. Þessar
bækur, 15 talsins heita:
Nýtt líf
Hið óhagganlega
Óvæntir atburðir
Blekkingarleikurinn
Gleymdur dagur
Sýkn saka
Verða heilbrigðir að deyja?
Að tjóðra sólina
Hvers vegna stendur öllum á sama?
Valkosturinn
Undir opnum himni
Hvað er handan grafar?
Hemill á streituna
Endimörk tímans
ísrael og kirkjan
Þessar bækur, ásamt fleirum, hafa legið frammi á
biðstofum og i anddyrum og ekki staðið lengi við.
Þörfin fyrir þessar bækur hefur verið ótvíræð.
Leikmenn hafa einnig látið að sér kveða í
bókaútgáfu, námskeiðahaldi og jafnvel sótt
námskeið fyrir leikmannaprédikara. Allt lofar
þettá góðu um vaxandi þátt leikmanna í starfinu.
Að lokum vil ég geta þess sérstaklega að oft er
starfinu rétt mikil hjálparhönd í kyrrþey þar sem
vinstri höndin veit ekki hvað sú hægri gjörir.
Stundum "kemst upp" um þessi hljóðlátu verk, því
ávöxturinn dylst ekki. Guði sé þökk fyrir hin
margvíslegu störf leikmanna, stór og smá, erfið
sem ljúfari, því án þeirra væri ekkert safnaðar-
starf. Erling B. Snorrason. •
Adventfréltir 5. 1988