Aðventfréttir - 01.07.1988, Blaðsíða 1
ADVGNT
6.1988
FRGTTIR
SKÓLI OG MENNINGARMIÐSTÖÐ
í SUÐURHLÍÐUM, REYKJAVÍK
Skóla og menningarmiðstöð mun brátt rísa í Suðurhlíðum. Þetta er án
efa hið stærsta verkefni sem söfnuðurinn hefur ráðist í frá því hann
reisti Hlíðardalsskóla. Nú hyllir undir að byggingarframkvæmdir fari
að hefjast í Suðurhlíðum. Kæru systkini, stöndum saman um að biðja
og starfa fyrir þetta verkefni sem mun marka þáttaskil í starfinu á
höfuðborgarsvæðinu og vfðar um landið.
60 ár frá stofnun
barnaskóla
Allt frá því að barnaskólastarf
hófst í Reykjavík á vegum
safnaðarins árið 1928, fyrir
réttum 60 árum, hefur sú
starfsemi verið á hrakhólum hvað
húsnæði varðar. í um 40 ár, eða
fram til ársins 1967 var skólinn
starfræktur en lagðist þá niður
einmitt vegna ófullnægjandi
húsnæðis og leikvallar. Árið 1971
var stofnuð byggingarnefnd til að
huga að byggingu nýrrar skóla-
byggingar þannig að endurreisa
mætti starfsemi hans. Fengin var
lóð við Sogaveginn en þegar
skólarekstur var hafinn að nýju
árið 1976 í bráðabirgðahúsnæði
að Bauganesi 13 í Skerjafirðinum,
þótti mönnum Sogavegslóðin ekki
hentug til byggingar, bæði vegna
halla lóðarinnar og nálægð
Miklubrautar sem er mikil
umferðaræð. Voru höfð maka-
skipti á Sogavegslóðinni og
núverandi lóð í Suðurhliðum.
Tafir
Þegar við fengum vilyrði fyrir
lóðinni í Suðurhlíðum var það
svæði ekki fullfrágengið hvað
skipulag snertir af hálfu
borgarinnar. Það var ekki fyrr en
síðla á síðasta ári að það var
fullfrágengið hvernig þessi lóð
myndi líta út og hvar hun yrði
staðsett nákvæmlega. Þá kom það
í ljós að eitt aðal holræsi
svæðisins lá í gegnum lóðina og
gerði hana óbyggingarhæfa.
Lausn hefur nú fengist á því
máli. (Sjá annars staðar í þessu
blaði.)
Staðan f dag
Jón Æ. Karlsson, kennari, sem
hefur verið ráðinn skólastjóri
hins nýja skóla, starfar nú sem
byggingar- og verkefnastjóri
byggingarinnar. Hann hefur
undanfarin vetur starfað með
arkitektinum, Knúti Jeppesen,
Framhald á bls. 14
Sjá enn frekar f blaðinu
um þetta efni:
Framkvæmdir hafnar á lóð-
inni í Suðurhlíðum
Bls. 6
Stór-Evrópudeildin sam-
þykkir fjárveitingu í
skóla og menningarmiðstöð
Bls. 6
Skóla og menningarmiðstöð
- fjársöTnun
Bls. 12