Aðventfréttir - 01.07.1988, Blaðsíða 13

Aðventfréttir - 01.07.1988, Blaðsíða 13
KRISTNI í HEIMINUM STÓRA VIKAN 1988 HUGUR OKKAR LEITAR AFTUR TIL PAKISTAN Á vetrarfundi Stór-Evrópudeildarinnar 1987 var ákveðið að fórn Stóru-vikunnar 1988 skyldi vera notað til að útvega trúboðum okkar í Pakistan betri bústaði til að búa í, og að bæta aðstöðu kirkna og safnaðarskóla okkar í Sind og Punjab héruðunum í Pakistan. Ray Dabrowski segir frá: "Formaðurinn fyrir starfi okkar í Sind héraðinu, br. Ditta, sýndi mér stað þar sem 6 af okkar prestum búa. Þegar við gengum gegnum þriggja hæða byggingu í Paposhangar og heimsóttum íbú- ana sögðu þeir að það væri nauð- synlegt að skipta íbúðunum enn frekar því það þyrfti pláss fyrir enn eina fjölskyldu í viðbót. "Við búum tólf manns í tveim íbúðum." Það getur ekki verið létt fyrir þetta fólk að lifa við slík skilyrði í einu litlu herbergi og litlu eldhúsi. Ungur kennari sagði: "Við getum ekki boðið fólki í heimsókn, því það er ekki einu sinni pláss til að sitja á gólfinu, og oft fáum við ættingja í heim- sókn." í Sind leitumst við nú við að útvega trúboðum okkar betri húsakost. Við höfum áform um að selja núverandi íbúðir og kaupa lóð og byggja stærra hús. Þegar við gefum gjafir okkar í Stóru-vikufórninni, munu þær geta gert lífið aðeins léttara fyrir kristniboða okkar í Pak- istan." Á ferð sinni um Karachi heyrði Ray Dabrowski trúarsöngva koma frá hátölurum sem voru staðsettir á einu af húsunum. Einhver sagði við hann: "Þegar fólk heyrir söngvana kemur það." Litlu síðar byrjaði fólk að streyma að litlu húsi sem notað var sem kirkja. Prestur safnað- arins sagði: "Þetta er Essa Negri safnaðarskólinn. Við höldum hér hvíldardagsskóla á eftirmiðdög- um hvíldardagana. Við köllum fólk saman með hjálp hátalarana. Eftir fáeinar mínútur er hér allt fullt af fólki." Þau halda guðsþjónustur í safnaðarskólan- um, þau vonast til að geta eign- ast kirkju einhverntíma og að geta stækkað skólann. Leiðsögumaður minn segir:"Við höfum 125 börn og fjóra kenn- ara, en hér er ekki nóg pláss. Við vildum gjarnan geta stækkað skólann. Við getum ekki náð góð- um árangri eins og aðstæður eru nú. Essa Negri er betri enn Hussan D’Silva skólinn, þau hafa 95 börn og þrjá kennara, en aðeins eina kennslustofu." í Sind hafa menn hugsað sér að setja skilvegg í þessa einu kennslustofu, en í hinum skól- anum vilja þeir byggja aðra hæð til og hafa þar tvær kennslu- stofur og íbúð fyrir prestinn. Einn af þjóðarleiðtogum Pakistan segir: "Það besta sem samfélag okkar getur boðið Pakistan, er menntun. Þegar börnin læra að lesa og skrifa og læra að þekkja hugmyndir kristninnar verða þau góðir borgarar." . Nær helmingur allra jarðarbúa, eða 2,5 milljarðar, hafa enga þekkingu á kristindómnum. Það finnast engir kristnir söfnuðir meðal 16,750 afmarkaðra hópa fólks víða í heiminum. Það eru miklar líkur fyrir því að stærsti hluti þessa fólks muni deyja án þess að heyra nafn Jesús nefnt. Það mun ske - nema kristið fólk sé fúst til að yfirgefa þægilega tilveru sína heimafyrir, til að gerast kristniboðar hjá fólki sem hefur allt aðra menningu og kenna þeim hinn undursamlega boðskap kristinnar trúar. HEIMSÚTVARP AÐVENTISTA Útvarpsstöðin í Forli tók á móti 3,184 póstkortum árið 1987. Það var 34% meira en árið 1986. Hlustandi frá Englandi skrifar: "Ég vil mjög gjarnan segja frá því að það er mjög uppörvandi að hlusta á útsendingar ykkar. Það gleður hjarta mitt þegar ég stilli inn á AWR, það er vingj- arnlegasta röddin sem ég fæ að heyra á stuttbylgju sending- unum. Haldið áfram ykkar góða starfi." PÁFINN OG SOVÉT- RÍKIN Það hafa verið settar fram hugmyndir um að Jóhannes Páll páfi II myndi heimsækja Sovét- ríkin árið 1988 á 1000 ára af- mæli kristnitöku í Rússlandi. Yfirbiskup rússnesku rétttrún- aðarkirkjunnar sem er biskup Moskvuborgar og alls Rússlands hefur sagt í viðtali við kaþólskt blað á Ítalíu, að sambandið milli kaþólsku- og rétttrúnaðarkirkj- unnar yrði að vera betra áður en páfinn gæti og heimsótt Sovét- ríkin. Aðventfréttir 6-7. 1988

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.