Aðventfréttir - 01.07.1988, Blaðsíða 14

Aðventfréttir - 01.07.1988, Blaðsíða 14
Framhald af forsíðu svo og annast öll samskipti við borgaryfirvöld. Nú liggja fyrir teikningar af fyrirhugaðri byggingu og ekkert er því til fyrirstöðu að tekin verði fyrsta skóflustunga alveg á næstunni og hafist verði handa við að grafa fyrir grunni hússins. Þess vegna þótti rétt að kynna þetta verkefni sérstaklega í þessu tölublaði Aðventfrétta. Sameinað átak Hér liggur mikið verkefni fyrir sem ekki verður unnið nema með sameinuði átaki, ekki einungis alls Reykjarvíkursafnaðar, heldur allra safnaðarmeðlima á íslandi. Einnig væri dásamlegt að finna stuðning íslenskra safnaðar- meðlima erlendis við þetta framtak. Það er staðföst trú okkar að skóli og menningarmið- stöð í Suðurhlíðum muni verða söfnuðinum í heild sinni og boðunarstarfi hans til ómældrar blessunar. Sú starfsemi sem hér mun fara fram mun verða söf- nuðinum sú lyftistöng sem hann þarfnast á okkar tíma. Sam- einumst um að bera þetta verkefni fram fyrir almáttugan Guð á örmum bænarinnar. Án máttar hans erum við alls einskis megnug. • Framhald af bls. 11 röngum forsendum verður það að vera boðun o^ andleg endur- nýjun. Ef við höfum lagt áherslu á annað af þessum atriðum þann- ig að hitt hefur fallið í skuggann þurfum við að breyta til. Ef til vill þurfum við að hafa markmið í huga fyrir timabilið 1990 - 95 sem stuðlar að jafnvægi í þessum efnum. • KVIKMYNDATÖKU- MAÐUR SNYR TIL KRISTINNAR TRÚAR Kvikmyndatökumaður nokkur sem hefur verið með í hóp sem var að taka kvikmynd um sköp- unina og vísindi, varð svo hugfangin af boðskap myndar- innar að hann ákvað að þjóna Kristi. Myndin heitir á frum- málinu "The Genesis Solution," eða "sköpunar lausnin" og er litmynd 45 mínútna löng. INDÓNESIA Fyrrverandi leiðtogi bóksala heimsótti nýlega bæinn Manado í Austur-Indónesíudeildinni. Hann sagði að þegar hann hefði komið til þessa bæjar árið 1952 þá hefðu aðeins verið 4 bóksala- leiðtogar og 43 bóksalar. í dag eru 19 bóksalaleiðtogar og 259 bóksalar í fullu starfi í deildinni og meðlimatala safnaðarins hefur aukist frá 4000 þúsund árið 1952 til 53.000 þúsund árið 1988. TRÚBOÐI RÁÖIN AF DÖGUM Á NYJU GUIENU Peter Knopper, 32 ára leiðtogi þjálfunarskóla leikmanna í Homu, Papua á Nýju Guineu, var skot- inn til bana af ræningja þann 16. mars, 1988. Hann var fæddur í Hollandi en kom til Ástralíu á unglingsárum. Hann var vígður til prestsstarfa 1987. ÞÁTTUM GERORG VANDEMANS SJÓN- VARPAÐ í EVRÓPU Stórkostlegt nýtt tækifær gefst nú til þess að sjónvarpa aðventboskapnum yfir gerfihnött í Evrópu. Fyrir fáeinum vikum var George Vandeman boðin aðgangur að sjónvarpsstöðinni Super Channel. Vandeman er okkur vel kunnur hér á landi gegnum fimm-rita flokkinn vinsæla, sem var gefin út hér nýlega. Sjónvarpsstöðin Super Channel sendir dagskrá sína yfir gerfihnött til meira en 12 milljóna heimila í 15 löndum í Evrópu. Super Channel, sem er að endurskipuleggja dagskrá sína, óskar eftir því að sjónvarpa hinum vinsælu 30 mínutna þáttum Vandamans "Ritað er" á sunnudags morgnum. Átta lönd í okkar deild geta tekið á móti dagskrá Super Channel og þar af leiðandi nýtt sér þetta frábæra tækifæri: Danmörk, Finnland, Ungverjaland, írland, Holland, Noregur, Sviþjóð og Stóra- Bretland. En til þess að þessar sjónvarpssendingar beri tilætlaðan árangur verður söfnuðurinn í þessum löndum að vera undirbúin undir að senda þeim áhorfendum þáttanna meira efni og upplýsingar sem þess óska. Allir þessir þættir eru á ensku og því er þessi póst- þjónusta þeim mun mikilvægari. Einnig þarf símaþjónusta að vera fyrir hendi. Án þess konar þjónustu til fylgdar við þættina, myndu þeir hafa sáralítil sem engin áhrif. Hver er svo kostnaðurinn við að sjónvarpa þessum þáttum yfir gerfihnött? Fyrsta árið myndi verðið vera 350.000 - 400.000 dollara eða milli 17 og 20 milljónir króna, svimandi upphæð í okkar augum, en í rauninni einungis brot af því, sem álíka sendingar kosta í Bandaríkjun- um. Þar eð verðið fer eftir fjölda heimila sem eru áskrifendur Super Channel, og þar eð fjöldi áskrifenda fer ört vaxandi, er það mjög líklegt að verðið verði enn hærra á komandi árum. Formaður deildar okkar í segir um þennan nýja möguleika sem nú er að skapast: "Ef við erum fær um að veita þessu nýja tækifæri sem nú gefst til boðunar fullan stuðning, er mjög Aðventfréttir 6-7. 1988

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.