Aðventfréttir - 01.07.1988, Qupperneq 5
HLÍÐARDALSSKÓLI
ÁFRAMHALDANDI REKSTUR
Á aðalfundi samtakanna í apríl s.
1. var, eins og kunnugt er
ákveðið að halda áfram rekstri
skólans, að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum um starfsfólk, fjárhag
skólahald og nemendaval.
Undanfarna tvo mánuði hefur
verið unnið ötullega að þessum
málum og 1. júní s.l. voru þau
það vel á veg komin og mörg
þeirra vel í höfn þannig að ljóst
þótti að skólinn myndi halda
áfram.
BRUNAVARNAKERFI
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að uppsetningu á mjög
fullkomnu brunavarnakerfi í
öllum skólabyggingum, þ.e. aðal-
byggingunni, salnum og drengja-
vistinni. Kerfið, uppkomið mun
kosta um 7-800 þúsund. Verið er
að leggja síðustu hönd á verkið,
þannig að það sé tilbúið fyrir
sumarbúðir. Sem dæmi um um-
fang kerfisins má nefna að reyk-
skynjarar eru á annað hundrað.
Síðustu dagana hefur viðhalds-
maður staðarins, Hörður Bjarna-
son, ásamt aðstoðarmönnum sín-
um, Sigurði J. Sveinssyni og
Bjarka Smárasyni, unnið hörðum
höndum oft langt fram á kvöld,
með rafvirkjunum, til þess að ná
þessu fyrir sumarbúðirnar en þær
byrja mánudaginn 20. júní.
SUMARBÚÐIR
Sumarbúðirnar í ár verða með
svipuðu sniði og verið hefur.
Sumarbúðastjóri er Birgir Guð-
steinsson, gamalreyndur og vin-
sæll sumarbúðastjóri.
Vegna sívaxandi og harðnandi
samkeppni við fjölda nýrra
sumarbúða er sú tíð liðin að færri
komist að en vilja. Samt munu
verða góðir hópar barna 1. og 2.
tímabil, og sjálfsagt verður góður
hópur 3. og siðasta tímabilið
þegar þar að kemur. Sumar-
búðirnar eru fyrir drengi og
stúlkur á aldrinum 8-12 ára.
Tímabilin eru þrjú. 1. tímabilið
er frá 20. júní til 29. júní. 2.
tímabilið er frá 1. til 10. júlí og
hið 3. frá 12. til 21. júlí.
SJÁLFBOÐALIÐAR
Ár hvert er óskað eftir sjálf-
boðaliðum til að aðstoða við vist-
arstjórn og viðhald og önnur
störf. Oftast er beðið um aðstoð-
arvistarstjóra pilta og aðstoðar-
mann viðhaldsmanns.
Þetta unga fólk, oftast erlendis
frá, hefur unnið vel og dyggi-
lega, sumir skarað fram úr.
Henrik Jörgensen og Solveig
Krusholm komu hingað á sínum
tíma sem sjálfboðaliðar að
Hlíðardalsskóla. Sumir voru hér
meira en eitt ár eins og Bettina
Kobialka og Lanette Rozell. ( Þið
sem kynntust Lanette hefðuð
gaman af að vita að hún gifti sig
í vor og heitir nú Lanette And-
erson ).
Sjálfboðaliðarnir sem voru hér I
vetur sem leið eru nú allir farnir
heim, Robert Norris og Jeff
Sparks til Bandaríkjanna og Lisa
Tooby til Ástralíu.
HOFÐINGLEG GJÖF
Fyrir nokkrum dögum barst
skólanum höfðingleg gjöf, flygill,
frá hjónunum Skúla Torfasyni og
Ellu Jack. Þessi mikla og góða
gjöf kom sér sannarlega vel, því
píanó skólans, sem er komið til
ára sinna er í afar slæmu ást-
andi.
Flygilinn er þegar kominn suður
og sómir sér vel í kapellu skól-
ans. Innilegustu þakkir til Skúla
og Ellu fyrir þessa höfðinglegu
gjöf. Guð blessi þau og alla
velunnara Hlíðardalsskóla. Þökk
fyrir allan stuðning og hlýhug
fyrr og síðar.
7. BEKKUR
Sjöundi bekkur hefur ekki verið
starfræktur í fjölda mörg ár, en
nú er ætlunin að bjóða upp á 7.
bekk á ný ef næg aðsókn verður.
Fleiri bekkjardeildir gefa meiri
breidd í nemendahópinn, stærri
starfsliðshóp og möguleika fyrir
nemenda að vera 3 frekar en að-
eins 2 ár á skólanum.
HUGSAÐ TIL SKÓLANS
Að lokum langar mig til þess að
biðja ykkur, kæru systkini að
hugsa til skólans, minnast hans
í bænum ykkar, að hann mætti
enn vera sterkt tæki i hendi
Guðs til eflingar starfi hans á
okkar landi, mörgum til bless-
unar. •
Erling B. Snorrason
Aðvent/réttir 6-7. 1988