Aðventfréttir - 01.07.1988, Qupperneq 10
INNSÖFNUNIN -
HJÁLPARSTARFIÐ
1988
í ár hefst innsöfnunin sunnudaginn 7. ágúst með söfnun á Akureyri
og síðan verður farið í söfnunarferðir umhverfis landið eins og
venjulega. Safnað verður á Suð-Vesturhorninu frá 1. september og
stefnt verður að því að ljúka seinni hluta söfnunar seinni hluta þess
mánaðar. Þegar við sjáum við hvernig skilyrði sumt fólk lifir í dag þá
verðum við fullviss þess að þörf fólks fyrir hjálp er mikil.
Samtök aðventista sem heims-
samtök reka hinar ýmsu stofn-
anir svo sem skóla, sjúkrahús og
heilsustöðvar og söfnunarféð
rennur í sjóð og úr honum er
deilt til staða þar sem þörfin er
talin mest. Hjálparstarfið er
mjög mikilvægt til að geta
aðstoðað þá hluta heimsins sem
ekki búa við sömu kjör og við og
einnig er þetta beint svar við
því sem Jesús sagði í 25 kafla
Matteusarguðspjalls. "Sannlega
segi ég yður, það allt, sem þér
gjörðuð einum minna minnstu
bræðra, það hafið þér gjört mér."
En við getum einnig snúið þessu
við og sagt: "Þvi að hungraður
var ég, en þér gáfuð mér ekki að
eta, þyrstur var ég en þér
gáfuð mér ekki að drekka, gestur
var ég en þér hýstuð mig ekki,
nakinn, en þér klædduð mig
ekki, ég var sjúkur og í
fangelsi, en ekki vitjuðuð þér
mín."
Innsöfnunin er enn eitt tækifæri
til að færa hjálp og gefa bata
heimi, sem er í neyð.
Innsöfnunin er það tækifæri sem
þú getur nýtt þér til þess að
taka þátt í því starfi sem Jesús
talar um. Haustið er annatími í
okkar trú-boðsstarfi. Verum þess
vegna dugleg við að koma okkur
af stað þegar söfnunartíminn
hefst og ljúka því verki sem
allra fyrst. Þetta þýðir ekki að
þau ykkar sem vön eru að vinna
við söfn-unina fram eftir hausti
megið ekki gera það. Starf ykkar
hefur mikla þýðingu fyrir starfið
í heiminum og margt fólk á líf
sitt undir fórnfýsi ykkar komid.
Ef þú þekkir einhvern, sem ekki
hefur áður farið út í söfnun,
taktu þá viðkomandi með þér og
sýndu honum hvernig þú berð þig
að.
Aldrei hefur neyðin í heiminum
verið meiri. Þrátt fyrir tæknií-
væðingu heimsins og öll hugs-
anleg hjálpartæki, eru það fleiri
og fleiri sem verða háðir kær-
leika þínum og mínum.
HVERT ER SVAR ÞITT? •
FYRRVERANDI MANN
ÆTUR SKÍRÐAR
Aðventprestur sem starfar á há-
lendi austurhluta Papua Nýju
Guineu hefur skírt 111 manns á
svæði sem hefur verið talið aðal
umráðasvæði mannæta.
FYRSTI BLÖKKU-
MANNA ERKIBISKUP
INN
Þann 15. mars s.l. tilnefndi
Jóhannes Páll II, páfi, Eugene A.
Marion aðstoðarbiskup, til að
vera erkibiskup í Atlanta,
Georgíu. Hann er fyrsti blökku-
maðurinn sem verður erkibiskup i
Bandaríkjunum.
DEILAN MIKLA
í ár 1988 eru liðin hundrað ár
frá því að Deilan mikla var gefin
út í fyrsta sinni. Nú er búið að
þýða hana yfir á 47 tungumál.
Aðeins "Vegurinn til Krists" er
til á fleiri tungumálum.
Aðventfréttir 6-7. 1988