Aðventfréttir - 01.07.1988, Blaðsíða 15
©
líklegt að við munum uppgötva að
Drottinn er að færa okkur tæki
í hendurnar sem mun gera okkur
kleift að að ná til almennings
gegnum leiðir sem okkur hefur
deymt um en aldrei fyrr haft
möguleika á að gera að veruleika.
Það er sannarlega að renna upp
nýr dagur í boðunarstarfi okkar
þegar við getum boðað boðskap
okkar í vikulegum sjónvarps-
þáttum." Biðjum fyrir þessu
mikilvæga brautryðjendastarfi.
ÚTVARPSSENDINGAR
AÐVENTISTA
ASÍUDEILD
Þegar fellibyljir skullu á eyjunni
Guam þann 12. og 13. janúar s.l.
gat útvarpsstöð aðventista haldið
áfram starfrækslu sinni þrátt
fyrir að vindstyrkurinn næði 160
kílómetra hraða á klukkustund.
Þegar straumurinn rofnaði tók
það aðeins 30 sek. áður en vara-
rafstöðin, sem notuð er í neyðar
tilvikum, var komin í gang.
ALABANÍA - TRÚAR-
LEG NÖFN BÖNNUÐ
Yfirvöld í Alabníu hafa lýst því
yfir að nöfn gefin börnum verði
að vera í fullu samræmi við
guðleyisstefnu stjórnvalda. Árið
1967 voru trúarbrögð bönnuð í
Albaníu. Samkvæmt tölfræði-
legum upplýsingum Brittanica frá
1980 skiptast íbúar Albaníu, sem
eru um þrjár milljónir, á eftir-
farandi hátt hvað varðar trúar-
skoðanir: 55.4 % eru "ekki
trúhnegðir", 18.7 % eru "guð-
leysingjar", Múhameðstrúarmenn
telja 20.5 % íbúa en kritstnir
menn 5.4 af hundraði.
10.000 AÐVENTSKÁ-
TAR frá sjö samböndum munu
sameinast á skátamóti sem
haldið verður að Agapa Farms,
Pennsylvaníu, Bandaríjunum, 7,-
12. ágúst, 1988.
MINNING
Guðrún Ingibjörg Sigurjónsdóttir
f. 31. 08. 1903
d. 21. 04. 1988
Guðrún Ingibjörg Sigurjónsdóttir
fæddist 31. ágúst 1903 að Stóru-
Vatnsleysu, Kálfatjarnarhreppi.
Foreldrar hennar voru Sigurjón
Jónsson og Guðrún Filippusdóttir.
Að systkinum til átti Guðrún eina
systur, Jónínu - Jónu Heiðar,
eins og við þekkjum hana.
í foreldrahúsum ólst Guðrún
upp, lauk barnaskólanámi í
heimabyggð, fór árið 1923 til
Reykjavíkur, vann þar fyrir sér
við saumaskap og varð útlærð
saumakona. Árið 1930 hóf hún
hjúkrunarnám. Að því loknu vann
hún fyrst í stað við Lands-
spítalann en fór þá til Dan-
merkur til að fullnuma sig frekar
í starfsgrein sinni, þar vann hún
við St. Hans Hospital, Hróar-
skeldu og Köbenhavns Amts
Sygehus, Gentofte, sem voru á
þeirri tíð hvað fremst í sinni
röð. Að því loknu heim hvarf
hún heim á ný og fór þá til
starfa við Landsspítalann. Árið
1937 var hún ráðin sem bæjar-
hjúkrunarkona til Vestmanna-
eyja. Þar gekk hún að eiga Jón
Ólafsson útvegsbónda frá Hólmi,
Vestmannaeyjum. Þau eignuðust
einn son barna, Ólaf Jónsson
rafvélavirkja og brunavörð. Hann
lifir móður sína. Mann sinn
missti Guðrún árið 1946, flutti þá
til Reykjavíkur og bjó þar æ
síðan. Þar starfaði hún lengst af
við sjúkrahúsið Sólheimar og
síðan við Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur uns hún lét af
störfum. Á síðari árum hnignaði
heilsufari systur Guðrúnar.
Síðustu þrjú æviárin dvaldi hún
að Kumbaravogi, Stokkseyri og
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands,
Selfossi 21. apríl s.l. sem var
sumardagurinn fyrsti. Útför
hennar var gerð frá Fossvogs-
kapellu 6. maí s.l. og veitti
undirritaður þá þjónustu.
Þessi kona var heilsteypt og
traust í tryggðum, hæversk, lagði
öðrum aldrei illt til, en dvaldi
jafnan við það sem fagurt var og
göfgandi og mannbætandi. í því
starfi var hún vel látin og
eftirsótt. í söfnuð okkar gekk
hún árið 1951 og fylgdi honum
upp frá því. í harmi og sjúk-
leika kvartaði hún aldrei, heldur
setti traust sitt á Hann, sem
lyftir og veitir styrk í hverri
raun. Ástvinum hennar tjái ég
innilegustu samúð.
Blessuð sé minning hinnar látnu
systur. •
Jón Hj. Jónsson
AÐVENTFRÉTTIR
51. árg. - áður BRÆÐRABANDIÐ
Hönnun og umbrot Prentun
Sigurður Þorsteinsson Prentstofan
Otgefendur Ritstjóri og ábyrgðarmaður
S.D.AÐVENTISTAR Á ÍSLANDI ERIC GUÐMUNDSSON
Aðventfréttir 6-7. 1988